Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Side 14
74 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005
Fréttír DV
Réttlætið á að vera blint. Engu að síður upplifa æ fleiri íslendingar sig svikna af dómstólunum.
Við þurfum að horfa upp á barnaníðinga sem dómarar hlífa við refsingu, konur eru barðar en
ofbeldismennirnir sleppa af því að dómara finnst þær hafa átt það skilið, vitnum er neitað um vernd
og lögreglumennirnir sjálfir þora ekki að kæra þekkta ofbeldismenn. Á stundum gæti borgurum hér á
landi liðið eins og listunnandanum sem borgaði milljónir fyrir abstrakt-málverk eftir apa. Réttlætið er
ekki blint og kröftum dómara eytt í að að skammast út í hvernig fjallað erum hrottalega ofbeldismenn
í Qölmiðlum landsins. DV tók saman nokkur atriði sem dómarar hafa klikkað á síðastliðið eitt ár.
Jón Steinar Gunnlaugsson Skilaði
sératkvæði um að sakamaður ætti ekki
að fá refsingu afþví að fjölmiðlar hefðu
fjallað um mál hans.
elindaréttlætisgyðjan.Táknræn
fynrbl^nt réttlæti sem gerir ekki upp a
milli manna. ---------—
T
2. febrúar2005
Níddust á börn-
um en slu
viöfangelsi
Þrír dómarar í Héraðsdómi
Reykjaness hlífðu rúmlega sjö-
tugum barnaníðingi við því að
fara í fangelsi. Hann
hafði þá í Qögur ár
K margoft misnotað
B dótturdóttur kon-
unnar sinnar frá því
JR? hún var tólf ára þar til
JK hún var sextán, og
- fl boðið henni fé fyrir
að eiga við sig sam-
ræði. Hann fékk skilorðsbundið
fangelsi en stúlkan situr uppi
með skömmina alla sína ævi.
f fyrrasumar ákváðu dómar-
ar í Héraðsdómi Reykjavíkur að
skilorðsbinda dóm í sex mán-
| uði yfir öðrum stjúpafa. Sá
níddist á sjö ára gamaUi stúlku
| sem var í pössun hjá honum.
Afanum var gert að greiða
stúlkunni 600 þúsund krónur.
4. desember 2004 þótti ein-
um héraðsdómara, Gunnari
Aðalsteinssyni, rétt að láta það
nægja að barnaníðingur færi í
fimm sálfræðitíma, til þess að
skilorðsbinda dóm yfir manni
! sem játaði kynferðisbrot gegn
| fimm ára systur kærustu sinnar.
Maðurinn sem er tuttugu og
eins árs hafði stúlkuna á heimili
sínu og misnotaði iiana gróf-
I lega. í dómi héraðsdóms seg-
ir:„í dómsskýrslu, sem tekin var
af kæranda í Barnahúsi 19. júlí
2004, sagði hún að ákærði hafi
sleikt pjölluna hennar þegar
þau hafi legið uppi í rúmi og
verið að horfa á skrípó.“
19. október2004
Konan sem átti
skilið að vera lamin
Guðmundur L. Jóhannesson, dómari í Héraðs-
dómi Reykjaness, ákvað að þar sem kona Kjartans
Ólafssonar hefði reitt hann til reiði, væri ástæðu-
laust að veita honum refsingu fyrir að hafa sannar-
lega ráðist á hana og beitt hana ofbeldi. Hjá lögregl-
unni sagði fyrrum eiginkona Kjartans að hann hefði
ásakað hana um að halda ffamhjá honum. Kjartan
hafi lamið hana í höfúðið og kallað ónöfiium. Hann
hefði orðið viti sínu fjær af bræði, tekið hana háls-
taki og hert að þar til hún misstí meðvitund. Þegar
hún rankaði við sér hafi hann haldið áffam, rifið
hana úr bolnum og nærbuxunum og gert tilraun til
að nauðga henni. Hún hafi náð að flýja hálfnakin úr
íbúðinni og hitt tvær konur sem komu henni í sam-
band við Kvennaathvarfið.
Kjartan viðurkenndi fyrir dómi að
2hafa lagt hendur á fyrrum eigin-
| konu sína. Hann sagðist hafa misst
I stjóm á skapi sínu þegar hún tjáði
* honum að hún væri að halda fram-
hjá. í kjölfarið segir Kjartan að hann
hafi tekið konuna hálstaki og „tusk-
að hana til". Guðmtmdur dómari
komst að þeirri niðurstöðu að átökin
hefðu komið til vegna erfiðleika í sam-
bandinu. Óumdeilt sé að til átaka hafi komið miUi
Kjartans og eiginkonu hans, enda hafi Kjartan við-
urkennt það fyrir dómnum. Dómarinn segir einnig
að í þessari tilteknu árás hafi Kjartan lagt hendur á
eiginkonu sína í mikilh bræði og „að kærandi [eig-
inkona Kjartans] kxmni að hafa valdið því“. í niður-
lagi dómsins er ákvörðun refsingar á hendur Kjart-
ani ff estað, svo ffemi hann haldi skilorð í þrjú ár.
Málið fór eftír krókaleiðum fyrir Hæstarétt þar sem
ákveðið var að Kjartan hefði valdið áverkum konu
sinnar. Með vísan til gagna málsins var talið ósann-
að að konan hefði gefið honum tilefin til árásarinn-
ar og að til átaka hefði komið milli þeirra. Hæsti-
réttur sagði að árásin væri alvarleg og Kjartan ættí
sér engar málsbætur. Hann þarf ekki að sitja inni ef
hann heldur skilorð. Einn dómari, Jón Steinar
Gunnlaugsson, vildi meira að segja sleppa þeirri
refsingu.
28. apríl 2005
Fjölmiðlarýni
Jóns Steinars
Jón Steinar Gunnlaugsson, nýi
hæstaréttardómarinn, hefur stað-
ið í ströngu í stuttbuxnadeildinni
þar sem hann situr með ffænda
vinar síns, Ólafi Berki Þorvalds-
syni. Jón Steinar hefur komið inn
með sjónarhól verjandans sem
virkar sumpart sem mótvægi við
kerfiskarlana sem sitja í Hæsta-
réttí. í máli Kjartans Ólafssonar
vildi Jón Steinar sleppa Kjartani
við refsingu af því að birtar hefðu
verið af honum myndir í fjölmiðl-
um. „Fallast má á með ákærða að
opinber umfjöliun um brot hans,
þar sem meðal ann-
3ars var birt mynd
k af honum undir
f nafni, hafi verið
einhliða og
ósanngjöm og til
þess fallin að
valda honum
þjáningum og
skaða á þann hátt, sem
hann hefur lýst,“ sagði Jón Stein-
ar. Honum þóttí að þetta hefði
átt að skipta máli til hagsbóta fyr-
ir Kjartan á meðan hann virðist
telja að aðrir dómarar hafi verið
litaðir af umræðunni um brot
Kjartans.