Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Síða 38
38 LAUCARDAGUR 4. JÚNÍ2005 Helgarblað DV Á sumrin draga margir íslendingar fram tjöldin og útilegubúnaðinn og flykkjast út í guðs græna náttúruna. Aðrir geta ekki hugsað sér að sofa í tjaldi og velja frekar þægindin í sumarbústöðum eða á gistiheimilum og hótelum. DV heyrði í nokkrum þjóðþekktum einstaklingum og forvitnaðist um eftirminnilegustu útileg- urnar og uppáhaldsstaðina. ÍL . m 1 i \ ■ Wá jif { lltí_ Gaman að tralla með kassagítar „Það er langt síðan ég fór í útilegu en hef í staðinn farið í sumarbústaðarferðir," segir Bryndís Ásmundsdóttir leik- legu og þá er Snæfellsnesið eins og það leggur sig uppá- haldsstaðurinn minn og kannski Laugarvatn líka. Ég væri til í að fara í útilegu á hverju sumri og gera það að hefð því mér finnst mjög gaman að sofa í tjaldi og þegar ég var lítil fékk ég að tjalda í garðinum og gista. Einhvern veginn er þetta samt ekki á „to do"-listanum í dag sem er algjör synd.“ Bryndís segist öllu duglegri að skreppa með vinum í sumarbústaði sem sé útilega út af fyrir sig. „Það er mega-æði að fara í pottinn og grilla, taka upp kassagítarinn og tralla. Síðast þegar ég fór var al- veg ótrúlega gaman þar sem einn vinur minn kom með singstar og við sunum til sex um morguninn þar sem við vorum í svo mikilli keppni," segir Bryn- dís sem hefur einu sinni reynt að sameina veiði og útilegu. „Ég hef einu sinni farið í veiði- Bryndís Ásmundsdóttir túr með pabba mínum og átti þá að „Samt fínnst mér rosalega taka upp fiskinn og drepa. Ég gat það gaman I útilegu og þá er Snæ- ekki svo ég setti hann aftur útí grátandi fellsnesið eins og það leggur 0„ þag var minni veiði lokið." sig uppáhaldsstaðurinn minn og kannski Laugarvatn lika." Lærði á gítar til að spila á Þjóðhátíð „Ég geri mjög lítið af því að fara í útilegur eftir að ég eignaðist fjölskyldu, við förum aðailega heim tii Eyja. Það er okkar innan- landsferðalag," segir Þorsteinn Gunnarsson íþrótta- fréttamaður á Stöð 2 og Sýn. Þorsteinn fer þó reglulega til Akureyrar á Pollamótið en hingað til hefur hann gist í leigðum sum- arbústöðum. „Nú stendur hins vegar til að kaupa tjald og fara í alvöru útilegu á Akureyri," segir Þorsteinn og bætir við að krakkarnir sínir séu orðnir mjög spenntir. „Mér líst líka mjög vel á þetta enda hef ég ekki sofið í tjaldi síðan ég var unglingur. í þá daga var maður oft í tjaldi á Þjóðháú'ð í Eyj- um þó maður gisti sjaldan þar. Þangað ætlum við líka í sumar en þá tökum við fram hústjaldið okkar sem er þó allt of stórt fyrir Pollamótið. Gítarinn fer að sjálfsögðu með til Eyja enda lærði ég á gítar í þeim eina til gangi að geta spilað á Þjóðhátíð, eins og svo margir Eyjamenn." Þegar Þor- steinn er inntur eftir skemmtilegustu úti- leguminningunni rifjar hann upp atburð sem átti sér stað í Lyngfellisdal í Vest- mannaeyjum þegar hann var ung- lingur. „Þar vorum við, heilt fótboltagengi og tjölduð- um saman í dalnum. Þetta átti að vera rólegt en breyttist heldur betur þegar nokkur hundruð unglingar mættu á sama stað til að skemmta sér. Þetta var.æði skraut- legt og afar eftir- minnileg nótt en þó án skandala." legu a HKuieyn. Aðalheiður Ólafsdóttir „Égfór þangað einu sinni á ball með Gildrunnisem varalveg frá- bært, eins og maöur væri kominn á : Greedence Clearwater-tónleika." Húsafell í uppáhaldi „Mér finnst Húsafell ferlega skemmtilegur staður og hef farið þangað reglulega með bestu vinum mínum," segir Aðaiheiður Ólafsdóttir söngkona, betur þekkt sem Heiða í Idolinu. „Eitt skiptið var klikkað veður, 17-18°C hiti og við vöktum alla nóttina þangað til sólin kom upp. Það gerðist svo sem ekkert merkilegt nema maður vaknaði í hita- kófi," segir Heiða og bætir við að það hafi verið gaman að vera full í sólbaði. „Skemmtilegustu útileguminningamar mínar eru án efa frá Húsafeili og svo finnst mér líka gaman í Úthlíðinni. Ég fór þangað einu sinni á ball með Gildrunni sem var alveg frá- bært, eins og maður væri kominn á Greedence Clearwater-tónleika. Mér finnst alveg æðislegt að gista í tjaldi og á svakalega fínt tjald með góðu partí-hæfu fortjaldi. það besta er að mæta með gítar, grilla, drekka og syngja en það versta er að það er orðið erfitt að finna staði þar sem ungt fólk má syngja fram eftir nótt- um en þá tjaidar maður bara í óbyggðum. Ég æda að reyna að vera dugleg að fara í útilegur í sumar því . það er alltaf jafit gott að komast að- eins út í náttúr- ima og ég er bjartsýná að sum- arið verði æðis- legt." Algjör útilegukerling „Mér finnst mjög gaman í útilegu og vona að ég komist í sumar og ég fer allavega með Vinstri grænum á Mývatnsöræfi," segir Kol- brún Halldórsdóttir alþingismaður. Kolbrún og félagar ætía að leigja sumarbústað að Björgum við ósa Skjálfandafljóts og svo stefnir hún einnig á Rauðasand en hann er einn af uppá- haldsstöðum hennar á landinu. „Mér finnst mjög gaman að gista í tjaldi og fjölskyldan á gamaldags fjögurra manna tjald frá Seglagerðinni Ægi. Foreldrar mínir voru ekki duglegir að fara í útíegur en maðurinn minn er hins vegar frá Vestmannaeyjum og alinn upp við Þjóðhátíð í Eyjum og hann kynntí mig fyrir þessum kúlt- úr. Við fórum fýrst í Skaftafellið sem mér fannst dásam- legt og það er honum og Skaftafelli að þakka að ég varð að útilegu-kerlingu," segir Kolbrún og bætir við að hún eigi skemmtilegustu útileguminninguna frá Skaftafelh. „Þegar sonur okkar sat uppi í hlíðinni og teiknaði um- hverfið opnuðust dásemdir útíegulífsins fyrir mér og við förum þangað reglulega. Við tökum veiðigræjurn- ar með en gítarinn bíður heima. Hann fór með í ferð- irnar þegar maður var yngri. Þá var gaman að sitja við varðeld og syngja. I dag finnst mér skemmti- iegast að fara í fjölskylduferðir og þá er mesta sportið að finna góð- Kolbrún Ha||dórsdóttir an hyl þvi v.ð erum svo miklir „ViðfórumfyrstlSkaftafellið Spartverjar. Mestu hetjurnar eru 5em mér fannst dásamlegt og þeir sem þora að baða sig í það erhonum og Skaftafelli að | kaldasta hylnum. “ þakka að ég varð að útiiegu- kerlingu."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.