Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Page 39
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005 39 Óumræðanlega fallegur staður í sumarbústað með ófríska konuna „Konan mín er nú ófrísk núna svo við förum ekki mikið í útilegur í sumar," segir söngvarinn og Idolstjarnan Kalli Bjarni en konan hans á von á sér um mánaðamótin ágúst/september. „Þá er náttúrlega ekki hægt að bjóða ófrískri konu upp á harða dýnu eða tjald en í staðinn ætlum við í sumarbústað. Við eigum pantaðan sumarbústað núna í byrjun júní en þá verður tekinn í notkun nýr bústaður hjá Sjómanna- félaginu og við ætlum að vera þau fýrstu til að prófa. Þar er heitur pottur og allt fyrir konuna." Kaili Bjarni segist hafa verið duglegur að kíkja í útilegur síðasta sumar. „í dag eru útilegurnar aðallega fýrir krakkana og þá erum við að veiða, grilla og hafa ofan af fyrir þeim. En þegar ég var unglingur snérist þetta rnn allt annað og maður endaði sjaldan í sama tjaldinu. Einu sinni vorum við vinirnir á útihátíð þar sem allir voru með Tal-tjöld. Vinur minn rauk til og tjaldaði og ætlaði svo að ná sér í vatn og vistir. Þegar hann kom til bara vom komin 2000 Tal-tjöld í viðbót svo hann fann tjaldið aldrei aftur. Þá var mikið hlegið." Kalli Bjami segir uppáhaldsstaðinn sinn vera Húsa- fell en þangað hefur hann komið nokkmm sinnum. „Það er æðislegt að vera í Húsa- felli en við eigum svo marga fallega staði hér á landi og ég hef ábyggilega ekki kom- ið á þá næstum því alla.“ „í gamla daga var alveg sama hversu sætir strákar buðu mér í úti- legu því ég hata að sofa í tjaldi og vil frekar huggulegt hótelherbergi í fal- legu umhverfi," segir Guðrún Ás- mundsdóttir leikkona og bætir við að hún viú ekkert verra en harðfisk um allt tjaldgólf og prímus sem virkar ekki. „Einu sinni upplifði ég það að prímusinn virkaði en svo gátum við ekki slökkt á honum svo af biturri reynslu fer ég ekki í fleiri útilegur." Guðrún segist samt eiga sinn uppáhaldsstað á landinu sem hún heimsækir reglulega. „Heiðardalur rétt hjá Vík í Mýrdal er án efa fallegasti dalurinn á landinu og ég er svo heppin að eiga þar frændfólk sem á þar sumarbústað. Upphaflega var þessi dalur eldgígur enda em fjöll á alla kanta. Þarna fer maður ofan í yndis- legan dal með vatni í og þegar veðrið er gott speglast Qöllin I vatninu. Þama er hægt að fara í góða göngutúra og skoða fossa og ár og í rauninni held ég að ef ég ætti ekki aðgang að svona gestrisnu fólki þá myndi ég ömgg- lega láta mig hafa það að gista í tjaldi bara til að eyða þar tíma því þetta er óumræðanlega fallegur staður.“ Guðrún Ásmundsdóttir „Heiðardalur rétt hjá Vlk í Mýr■ dal erán efa fallegasti dalur- inn á landinu og ég er svo heppin að eiga þar frændfólk sem á þar sumarbústað." Kalli Bjarni „Það eræðislegt að vera l Húsafelli en við eigum svo marga fallega staði hér á landi og ég hefábyggilega ekki komið á þá næstum því aila. “ Blónmkaiw í/i/i r* v~n tn v~n i l maur íZr. 990 Gefinn fyrir hið villta líf náttúrunnar „Mér finnst skemmtilegast að fara óvænt af stað í útilegur," segir Freyr Eyjólfsson, útvarps- og tónlistarmaður. „Það er best að setja bara tjaldið I skottið þegar vel viðrar og keyra af stað og láta kylfu ráða kastí," segir Freyr og bætír við að hann haldi mest upp á Snæ- fellsnesið. „Mér finnst mjög gaman að sofa í tjaldi og er gefinn fyrir hið villta h'f tjaldútilegunnar og vel það fram yfir bústaðinn. Ég er að spá í að fara til írlands í sumar og hjóla um og sofa í tjaldi þar í landi. Eg hef verið að undirbúa þá útilegu með því að skoða hjólaleigur, tjaldsvæðin og sögu landsins með ítar- legum hættí,“ segir Freyr og bætir að- spurður við að hann fari líklega eitt- hvert innanlands einnig í sumar. „Mínar óvæntu útilegur em alltaf inni í myndinni en þær em svo óplanaðar að ég veit ekkert hvort eða hvenær ég fer af stað en mig langar mest að heim- sækja Kverkfjöll, það er minn draumastaður. Þegar ég er í útilegum finnst mér skemmtí- legast að ganga á fjöll og þá er nauðsynlegt að vita eitthvað um sögu staðarins. Draumaferðin er góður matur, gönguferð, fallegt umhverfi og enginn gsm-sími, eins konar eintal við náttúmna.“ i i i i i i Saknarðu einhvers? legureru aiiiannrn / myndinni en þær eru svo óplanaðar að ég veit ekkert hvort eða hvenær ég fer af stað en mig langar mest að heimsækja Kverk- fjöll.það erminn draumastaður." Láttu DV koma með þér í sumarleyfið Ný ókeypis þjónusta fyrír áskrífendur DV Þú hefur um fjóra kosti að velja þegar þú ferð að heiman í sumar: • Við geymum blaðið og sendum þér öll eintökin þegar þú kemur heim aftur. • Við sendum blaðið til ættingja eða vina. • Við sendum blaðið á nýtt heimilisfang í fríinu, t.d. í sumarbústaðinn. • Þú færð t.d. 14 miða, áður en þú leggur af stað í 14 daga ferðalag um landið, og afhendir miðana á sölustöðum DV um land allt. Hafðu samband áður en þú ferð í fríið. Láttu okkur vita hvað við eigum að gera við blaðið þitt á meðan eða hvert við eigum að senda það. Hafðu samband í síma 550 5000 TT - hefur þú séð DV í dag? ÍSIENSKA AUCLfSINCASTOFAN EHF./SIA.IS - ME 21271 (S/2MS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.