Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2005, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ2005
Síðast en ekki síst DV
Grjóthnullungur féll af vörubfl við Rauðavatn. Sá hefði ekki kembt hærurnar sem
hefði fengið þennan á toppinn. DV-mynd GVA
Rétta myndin
Hommar mótmæla Pólverjum
„Við sendum bréfið fyrir tveimur
dögum," segir Heimir Már Pétursson,
formaður Hinsegin daga og varafor-
seti InterPride. Fyrr í vikunni sendu
Hinsegin dagar bréf til borgarstjóra
Varsjár í Póllandi þar sem því er mót-
mælt að lagt var bann við Gay Pride-
göngunni, sem átti að fara fram eftir
rúmaviku.
„Þetta er gamalt vandamál hjá
þeim. Lögreglan stoppaði gönguna í
fyrra og þar áður réðust
nýnasistar á gönguna. Nú
var lögreglan hinsvegar búin að sam-
þykkja hana en borgarstjórinn tók sig
til og bannaði hana. Þetta er líka
svona í Rúmeníu. Þeir æda þó að
Ha?
ganga þótt þeim hafi verið synjað um
leyfi," segir Heimir en gangan í Búka-
rest fer fram í dag og má því búast við
látum þar.
„Þessar þjóðir þurfa að átta sig á
því að þær hafa gengið inn í Evrópu,“
segir Heimur um afturhaldsseggina í
austantjaldslöndunum. Hann er
þessa dagana á fullu í því að undirbúa
hina íslensku göngu, sem fer fram
seinna í sumar. Hátíðin
lengist úr tveimur dögum
í fjóra og von er á
skemmtikröftum frá
Bandaríkjunum, Noregi,
Þýskalandi og Skotlandi.
Vér mótmælum
Heimir með bréfið til
hr. Lech Kaczynski,
afturhaidsborgar-
stjórans ÍVarsjá.
Hvað veist þú um
Bubba
IMens I
1. Hvað heitir Bubbi fullu
nafni?
2. Hver söng með Bubba í
jhljómsveitinni GCD?
3. Hver skrifaði ævisögu
Bubba árið 1990?
4. Hvenær kvæntist Bubbi
Brynju Gunnarsdóttur?
5. Hvenær kom Bubbi fyrst
fram?
Svör neðst á síöunni
Hvað segir
mamma?
„Ég er auð-
vitað mjög
stalt af
stráknum
mínum og
samgleðst
honum inni-
lega/'segir
Hrefna Lilja
Valsdóttir.
„Það hefur
verið mikill
metnaður hjá honum að komast I
landsliðið og hann er búinn að
stefna að þessu lengi. Hann var
reyndar aðeins búinn að fá nasa-
þefinn afþessu fyrir nokkrum árum
þegar hann fór með B-landsliðinu
.» til Indlands. Því miður næ ég ekki
að sjá fyrri leikinn, en ég mæti pott-
þétt á seinni leikinn og vona inni-
lega að hann fái að spreyta sig i
honum."
Helgi Valur Daníelsson knatt-
spyrnumaður er fæddur 13.júlí
1981 og er alinn upp á Selfossi
og iReykjavík. Á dögunum var
hann valinn í landsliðshóp ís-
lands sem mætir Ungverjalandi
og Möltu.
Menningarnótt logar Slegist um tonleika
Stöð 2 hefur í hyggju að ná til sín
undirbúningi og framkvæmd stærstu
tónleika landsins, útitónleikanna við
Reykjavflcurhöfn á Menningamótt.
Rás 2 fór af stað með tónleikahald á
Miðbakkanum fyrir tveimur ámm og
hafa verið ailt að 110 þúsund manns í
nágrenni við tónleikana. Eftir miklu er
að slægjast því um er að ræða gott efni
til fjölmiðlunar og auglýs-
inga miðað við umfangið.
„Jú, við höf-
USSULL
Óli Palli, Rás 2 Stend-
ur i ströngu viö undir-
búning tónleikanna og
býst ekki við öðru en að
Rás 2 sjái um þá.
Stöo
Heimir Jónasson,
2 „Við höfum verið að
skoða þetta aðeins und-
anfarið en það hefur ekki
verið gengið frá neinu."
þetta aðeins undanfarið en það hefur
ekki verið gengið frá neinu," segir
Heimir Jónasson, dagskrárstjóri
Stöðvar 2, og staðfesú þar með vilja
stöðvarinnar til að krækja í umsjón
með landsins fjölmennustu tón-
leikum.
Tónleikarnir á Miðbakkanum hafa
rekið smiðshöggið á Menningamótt í
Reykjavík undanfarin tvö ár. Sam-
kvæmt áæúunum lögreglunnar þykir
lfldegt að tónleikamir á Menning-
arnótt í fyrra hafi náð eyrum
allt að 110 þúsund
manns.
Sif Gunnarsdóttir,
verkefriisstjóri við-
burða á Höfuðborg-
ar-
stofu,
Sif Gunnarsdóttir, Höfuð-
borgarstofu „Það ereðli-
legt að margir hafi áhuga á
að sjá um stórviðburð á borð
viðþessa tónleika."
segir
að eðli-
legt sé
að
margir hafi áhuga á
að sjá um þennan
viðburð, sérstaklega í
ijósi þess umfangs
sem um er að ræða.
„Það hafa margir
sýnt þessum stærsta
viðburði Menning-
amætur áhuga. Það
em einhverjir töfrar
við þetta sem gera
það að verkum að
110 þúsund manns vilja vera við-
staddir. Við viljum náttúrlega að þetta
sé eins vel úr garði gert og hugsast get-
ur," segir Sif. Hún ítrekar að Höfuð-
borgarstofa hafi verið mjög ánægð
með þá vinnu sem Rás 2 hefur lagt í
verkið undanfarin ár.
Ólafur Páll Gunnarsson, dagskrár-
gerðarmaður á Rás 2, segist ekki
kannast við að neitt annað standi til
en að Rás 2 sjái um þetta eins og áður.
Mikil vinna hafi þegar verið lögð í
Menningarnótt Þessir
fjölmennustu tónleikar
landsins náðu til eyrna
1W þúsund landsmanna
slðustu menningarnótt.
undirbúninginn og viðræður séu
hafhar við hljómsveitir. Ólafur segir
margt gera það spennandi að standa á
bak við tónleika sem þessa. Menning-
amóttin sem viðburður sé sífellt að
aukast að umfangi og tónleikamir séu
forléikurinn að hápunkti kvöldsins,
sem er flugeldasýningin. „Hér vfrma
menn ótrauðir að undirbúningnum,"
segir Ólafur Páll.
sigtryggur@dv.is
ídag
im
Nú er mál að skella sér í
skýluna. Sundlaugarnar æpa á
sólþyrsta enda verða engin ský
á himni í dag. Þó gæti farið að
rigna á morgun en hitinn
verður fyrir ofan frostmark.
Regndropamir gætu látið sjá
sig selnnipartinn en skúrinn er
góður fyrir gróðurinn. Þeir allra
svartsýnustu segja að
golan verði rok, en
eitthvað verður að A
hreyfa við S
fánanum.
á sMHpPffW
- ' :
sKSf
g ■ A morgun
Í10
Gaman að sjá alþingismann brjóta
odd afoflæti sínu og leggja til þjóð-
arbúsins. Slldveiðitúr Magnúsar
Þórs Hafsteinssonar var ferð til fjár.
Svörviöspumlngum:
1. Hann heitir Ásbjöm Kristinsson Morthens. 2. Þaö var
Rúnar Júlíusson. 3. Það var Silja Aðalsteinsdóttir. 4. Hann
^iftist henni 25, desember 1987.5. Þaö var í nóvember
árið 1976 í Glæsibæ.
MHinn
Kaupmannahöfn Oslo 16 Krít/Chania 23 Alicante 28
12 Berlín 32 Rimini 23
Stokkhólmur 17 Frankfurt 31 New York 25
Helsinki 14 Las Palmas 24 San Francisco 17
London 17 Barcelona 24 Orlando/Flórída 33
S'%hv-
Sólarupprás Sólarlag í Árdegisflóð 0431
f Reykjavlk Reykjavík Siðdegisflóð 1636
03.15 2339