Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2005, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst FÖSTUDAGUR 24. JUNI2005 3 ""•vjurjpu*, Hvíld og bið á Lækjartorgi I wm Beðið á Lækjartorgi Hluti þeirra 38 barna sem biðu eftirstrætó á Lækjartorgi. Skyndimyndin að þessu sinni sýnir börn bíða eftir strætó og hvíla sig um leið við blómabeð á Lækjartorgi. Börnin eru hluti 38 barna hóps frá leikskólan- um Hagaborg sem var á leið upp á Suðurlandsbraut. „Börnin eru að fara í heimsókn í leikskólann Steinahlíð sem er á Suðurlandsbraut," segir Sigríður Sigurðardóttír leikskóla- stjóri. Börnin voru að skipta um strætó og var ferðin á Steina- hlíð ein af sumarferðum þeirra.„Það er farið í allskonar svona ferðiryfir sumarið. Krökkunum finnst það mjög skemmtilegt," bættí hún við. Skyndimyndin Spurning dagsins Er bið eftir sjúkrahúsmeðferð of löng? Þaðerofmikil bið „Já, mér fínnst það. Það er ofmikil bið og vantar meiri fjárveitingar til að fjölga rýmum." Ómar Ingi Ákason, leikskóla- leiðbeinandi. „Jáhúnerof löng. Það þarf örugglega að gera eitthvað." Rannveig Kristjánsdótt- ir, vinnur hjá upplýsinga- miðstöðinni Kleif. „Ég þekki þetta ekki nógu vel. Fyrir þá sem þurfa á meðferð að halda þá væri gott að hafa biðina ekki langa. Björk Þorleifsdóttir, eigandi Nonnabita. „Ég hefheyrt að hún sé of löng. Það er slæmt að fólk þurfí að bíða lengi með al- varleg veik- indi." Fanney Þórarinsdóttir nemi. „Þetta ergóð spurning en ég hefekki hug- mynd um svar.“ Tryggvi Hilmarsson, grafískur hönnuður. Mikið hefur verið rætt um langa biðlista sjúklinga vegna meðferðará heilbrigðisstofnunum. Dæmi eru um það að fólk á leið (aðgerð vegna offitu hafi þurft að bíða í allt að tvö ár eftir meðferð. Taðkvörn í byggðasafni Á gömlu myndinni að þessu sinni má sjá prófessorinn og ævisagnaritarann Hannes Hólmstein Gissurarson. „Myndin er líklega tekin fyrir tæpum þrjátíu árum á Skúlagötu 4,“ segh Hannes eftir að hafa virt myndina fyrir sér. Á myndinni eru, auk Hannesar, frá vinstri: Skafti Harðarson, sem var með Hannesi í stjój-n Félags frjáls- hyggjumanna og rekur nú bygginga- vöruverslanir útí í BretlandhSigurð- ur Hektorsson, sem nú er læknfr, og Tryggvi Agnarsson, sem nú rekur lögfræðistofu. „Við kynntumst í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta," segir Hannes. „Ég annaðist um tíma út- varpsþátt, þar sem ég kynnti ýmsar frjálslyndar hugmyndir. Svavar Gestsson var þá ritstjóri Þjóðviljans og kallaði útvarpsþáttinn minn „taðkvörn í byggðasafni“. „Það er beðið út um allan heim eftir því að ég verði kjörinn forseti," sagði Ástþór Magnússon á blaða- mannafundi þann 25. júní2004. Heimsbyggðin ' þarfaðbíöaeftirþvííað minnsta kosti þrjú ár í viðbótþvi næstu forseta- kosningar verða ekki fyrr en 2008. ,rj r W w M Það er staðreynd... ...að kóalabirnir sofa í um 22 klukkutíma á sólarhring. ÞAU ERU FRÆNDSYSTKIN Fréttamaðurinn & fréttakonan Guðrún Heimisdóttir og Sindri Sindrason eru syst- kinabörn. Þau eru bæði fréttamenn Stöðvar 2. Guö- rún var áður þekkt sem gæludýra Guðrún, en hún sá um gæludýrainnskot I Stundinni okkar þegar hún var yngri. Sindri er menntaður fjölmiðlafræðingur frá Búlgaríu og var áður biaðamaður á Viðskiptablað- inu. Guðrún er dóttir Heimis Sindrasonar tannlæknis en Sindri er sonur Sindra Sindrasonar fjárfestis og fyrr- um stjórnarmanns Pharmaco. www.ostur.is Kryddsmjörið kitlar bragðlaukanna! Gott er að hafa mismunandi tegundir af kryddsmjöri við höndina til að töfra fram rétta bragðið hverju sinni. Kryddsmjör er t.d. ómissandi með grillkjötinu, bökuðu kartöflunni, grillaða maískólfinum - eða ofan á snittubrauðið! Veldu þitt uppáhaldsbragö!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.