Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2005, Síða 39
DV' Síðasten ekkisíst
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ2005 39
Ég á raðhús í Garðabæ, hvítan
hund sem heitir Hugni og konu
sem kallar sig Dúbbu, ekki spyja
mig af hverju, hún hefur allar kallað
sig Dúbbu þó að hún heiti raun-
verulega Fáskrúðsfjörður. Fá-
skrúðsfjörður er auðvitað frekar
stirt nafn og ég skil hana að vissu
leyti en ég hef oft nefnt við hana
hvort hún vilji ekki kalla sig Skrúði
eða Fáu eða Fáskrúði en hún tekur
engum sönsum. Ég held að henni
finnist Dúbba eitthvað smart, eins
og hún sé diskódrottning eða vina-
leg kona sem vinnur í sjoppu, hún
leggur gríðarlega áherslu á að virka
vinaleg, les alla þjóðfélagspistla
Guðmundanna og svarar í símann
eins og nafnið hennar sé djók.
Þannig virkar hún frekar afkáraleg
dagsdaglega, að minnsta kosti
lungann úr árinu, þangað til það
kemur sumar.
Daufir nágrannar
Við erum með sambyggða bíl-
skúra, fólkið við hliðina á okkur er
þau Hörður og Unnur í Ræsi, ég veit
að lesendur muna eftir Herði en
hann er einn af þeim sem gáfu álit
sitt á Reykjavflcurmaraþoninu í
Mannlífi árið 1998 og sagði þar að
honum fyndist vanta millivega-
lengdir. Unnur er hins vegar algjör-
lega óþekkt kona, svona kona sem
maður þarf að hitta svona tvöhund-
uð sinnum áður en maður fer að
muna eftir henni. Samt sem áður er
hún brjóstastór og hefur vinalegt
andlit, miklu vinalegra en Dúdda,
konan mín (sem fer alveg örugglega
í taugarnar á Fáskrúðsfirði). Hörður
og Unnur eiga 75 m2 sumarbústað
við Laugarvatn, við eigum 67 m2
sumarbústað rétt ofar í hlíðinni
(með aðeins betra útsýni, he, he).
Sumarstúss og púss
Átjánda júní hittumst við úti við
bflskúrana og byrjum að fara í
gegnum sumarbústaðardótið. Við
Þorsteinn
Guðmundsson
nýtur sumarsins
í Seyöisfirði.
bústaðinn
eigum sambærilega hluti,
aðallega vegna þess að við
höfum nýtt okkur öll „tveir
fyrir einn“-tilboð sem aug-
lýst eru. Hörður er ofboðs-
lega opinn fyrir tilboðum og
fylgist betur með en nokkur
sem ég þekki. Það er meira
að segja hægt að fletta upp í
honum, þrjú ár aftur í tím-
ann, en hann treystir sér
ekki til þess að muna fjórða
árið því það myndi krefjast
of mikils tíma og æfingar.
Hann hefur gefið í skyn að
hann komi til með að
muna tilboð 10 ár aftur í
tímann þegar hann fer á
eftirlaun en ég á nú eftir
að sjá það, hann slær mig
að minnsta kosti eins og
maður sem er lfldegur til
að fá heilabilunarsjúk-
dóm. Við vonum það besta
Hvað með Freyju?
Við bónum, þurrkum af, púss-
um, slípum og málum. Stundum
spreyjum við en þá gerum við það
undir sameiginlegu plasti sem
Unnur fær hjá Freyju, þeir eiga
alltaf lagera af byggingarplasti þar.
Við prófum og fýilum á og endum
svo daginn á því að fara yfir þau til-
boð sem höfða til okkar, allt fer
þetta fram á planinu fyrir framan
bflskúrana. Ég get ekki hugsað mér
að bjóða þeim inn til okkar, ég veit
það myndi bara enda í einhverri
hringavitleysu og áður en við viss-
um af værum við farin að bera
saman húsgögn. Þetta árið
ákváðum við að það væri kominn
tími á útikamínur. Við höfum lengi
beðið með að kaupa þær vegna
þess að þær hafa verið svo dýrar en
nú er dollarinn lágur og það er trú-
lega ástæðan fyrir því hvað þeir hjá
Arni ehf. geta boðið ódýrar kamín-
ur. Við fórum svo á mánudeginum
og keyptum sitt hvora kamínuna á
mánudeginum til þess að geta sam-
einað sendibfl.
Konan er vitlaus
Nú erum við komin upp í sumar-
bústað og ég er búinn að finna upp á
nýju gríni. Ég kalla konuna mína
Seyðisfjörð og hún er alveg brjáluð,
hvæsir eins og köttur þegar ég segi
þetta við hana og ég er líka búinn að
fá krakkana í lið með mér, þau kalla
hana lflca Seyðisfjörð. Hún biður
mig um að hætta þessu, stundum
með tárin í augunum, en ég segi
alltaf við hana: hey, ef þú ert svona
ótrúlega skapgóð þá hlýturðu að
geta tekið smá gríni. Við höfum ekk-
ert séð Hörð og Unni, hvorug fjöl-
skyldan er mikið fyrir það að vera úti
við en ég veit að þau voru deginum á
eftir okkur að kveikja upp í kamín-
unni sinni, he, he. Ég býst við því að
ég hafi bara meiri hæfileika í þetta
sumarstúss allt. Bestu kveðjm frá
Seyðisfirði, he, he.
'<r * .♦ 4 t . '
Kaupmannahöfn
Osló
London
París
Það kólnaði í gær og (dag
verður vindur. Slæmar
fréttir. Þó er Ijós í myrkrinu.
Bjart verður yfir norður og
austurlandi og hitinn gæti Nokkur vindur
jafnvel farið upp í 18 stig
sem hlýtur aðteljast gott,
Hitinn mun haldast
svipaður um
helgina svo
setjið á ykkur
ferðaskóna og
vindjakkan.
22 Algarve 26 Róm
23 Mallorca
28 Krít/Chania 27 Kýpur
32 Barcelona 28 Rimini
Sólarupprás Sólarlagl Árdegisflóð 0751
(Reykjavík Reykjavík Síðdegisflóð 20.16
02.56 24.04
Símon Blrgisson
• Fyrirsætan fagra
Helga Lind Björg-
vinsdóttir er á
lausu eftir storma-
samt samband við
leikarann Þorvald
Davíö Kristjáns-
son. Um síðustu
helgi sást hún á
Vegamótum með
knattspyrnumann-
inn Gylfa Einars-
son upp á arminn
en hann spilar með
liði Leeds í Bret-
landi. Gylfi er hér á
landi í stuttri heimsókn og segist
ætla aftur til Eng-
lands eftir helgi.
Hann er þögull
sem gröfin þegar
kemur að sam-
bandinu við Helgu
Lind. „Ég er bara í
sumarfríi hér
heima að slaka á,“
segir hann...
• Þeir voru fleiri
sem slettu úr
klaufunum á Vega-
mótum um síðustu
helgi. Brynja
Noröquist mætti
ásamt eiginmanni
sínum Þórhalli Gunnarssyni til
að hlusta á son sinn Robba í
Chronic spila hip-hop eins og
hann er vanur. Segja gestir stað-
arins að Brynja
hafi dansað eins og
óð væri og þurfti
Þórhallur á endan-
um að ýta henni út
af staðnum. Mun
Þórhallur ekki vera
eins harður rapp-
aðdáandi og konan
hans sem ýtti víst syni sínum út í
rappið á sínum tíma...
• Kári Stefánsson var ekki á
Vegamótum um
síðustu helgi. Hann
var ekki heldur í
Laugum að spila
körfubolta eins og
hann lýsti yfir í DV
í gær. Heimildar-
menn í innsta
hring forstjórans
eru víst undrandi á
þessum yfirlýsing-
um því síðustu ár
hefur Kári verið
fastur gestur í há-
degiskörfubolta í
World Class. Þar
hefur Kári spilað
reglulega við menn eins og Jón
Amór Stefánsson
og Helga Má
Magnússon. Segja
kunnugir að Kári
taki sig vel út á
vellinum með gler-
augu eins og
Bandarflcjamaður-
inn Horace Grant...
• í Hafnarfirði eru
miklar hræringar í
sparisjóðnum sem
enginn skilur. Að-
almaðurinn er víst
Páll Pálsson stjórn-
arformaður bank-
ans sem hefur
undanfarið mont-
að sig af því að vera að kaupa
umboð stofnfjáreigenda til að ná
yfirráðum í bankanum. Kannski
eru meiri fréttir úr Firðinum að
Gunnar Már Levísson í Herra
Hafnarfirði hefur fest kaup á
penthouse-íbúð á Rafha-reitn-
um. Kostaði íbúðin litlar 40 millj-
ónir sem er ekki mikið þegar þú
ert herra Hafnarfjörður...