Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2005, Blaðsíða 17
DV Sport
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ2005 17
Löng ferð hjá
Guðjóni í
fyrsta leik
Guöjón Þórðarson mun mæta
Torquay á útivelli í íyrsta leik
tímabiisins sem hefst þann 6.
ágúst kl. 15. Ferðalagið sem Guð-
jón og hans menn þurfa að leggja
í er langt en Nottingham er stað-
sett miðsvæðis á norðanverðu
Englandi en Torquay er bær á
suðvesturströnd Englands. Tor-
quay féll úr 2. deild í fyrra og ætti
því að reynast verðugur andstæð-
ingur fyrir Guðjón en mikil eftir-
vænting ríkir fyrir fyrsta leik Notts
County. Miklar vonir eru bundnar
við Guðjón og vonast menn til að
hann muni strax sýna góðan ár-
angur. í fyrradag nældi hann í
fyrsta leikmanninn er hann samdi
við markvörðinn Kevin Pilkington
sem hafði spilað
með nágrannalið-
■É| inu Mansfield sem
'■ einnig leikur f
f ‘’fL: JmÍ ensku 3. deildinni.
Guðmundur
tekur vtð
Gróttu
GuðmundurÁmi Sigfússon
hefur skrifað undir þriggja ára
samning við handknattleiksdeild
Gróttu um að taka við þjálfun
liðsins. Grótta mun ekki tefla
fram liöi í fyrstu deildinni á næsta
ári, en Guðmundur mun sjá um
þjálfun annars og þriðja flokks fé-
lagsins í vetur og félagið stefnir að
því að vera með í aimarri deild-
inni veturinn 2006-7. Liðið verður
með svokallaðan meistarallokks-
hóp í vetur sem mun taka þátt í
bikarkeppnum og öðrum mótum.
Guðmundur er öllum hnútum
kunnugur hjá liðinu, enda upp-
alinn (iróttumaöur og er endur-
komu hans fagnað á Nesinu þar
sem fjöldi ungra og efnilegra leik-
manna er við æfingar og ætlar sér
stóra hluti í framtíðinni.
Newcastle á
eftir Emre
Belozoglu Emre, ieikmaóur
Inter Milano á Ítalíu, er undir
smásjánni hjá Newcastle United.
Emre, sem er tuttugu og fjögurra
ára gamall, er duglegur miðju-
maður sem myndi nýtast New-
castle vel. Umboðsmaður leik-
mannsins staðfesti áhuga frá lið-
um á Englandi við enska fjölmiðla
í gær. „Við ætlum að reyna að
ganga frá því með hvaða liði Emre
leikur á næsta tímabili fyrir lok
vikunnar." Graeme Souness,
knattspyrnustjórí Newcastle
United, er mikiii aðdáandi leik-
mannsins en hann
fylgdist með hon- /
um stíga sín fýrstu ^
skref í Tyrklandi -l
þegar Souness í Wjjmmmt
þjáifaði í þar. !^P»- ¥>
Latmakröfur leik- | . i
mannsins eru áar,
en hann er
meðum
sextfuþús-
und pund á
viku. . ^ l£’
Nú eru allar líkur á því að íslenski landsliðsframherjinn Heiðar Helguson muni
spila i Ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Fulham, West Ham, Sunderland og
Wigan vilja öll fá Heiðar i sinar raðir en tvö fyrstnefndu liðin eru mun liklegri til
að hreppa Heiðar þar sem þau lið eru staðsett i London rétt eins og Watford.
Heiðar í viðræðum við
Fulham í allan gærdau
næsta vetur.
Heiðar hafði upphaflega áætlað að koma heim til íslands í frí
síðastliðinn miðvikudag en nú hefur fengist staðfest að þeirri
heimferð var frestað með tiltölulega skömmum fyrirvara. Enskir
fjölmiðlar greina frá því að Fulham sé líklegast til að tryggja sér
þjónustu Heiðars og samkvæmt heimildum DV var Heiðar í við-
ræðum við stjórnarmenn félagsins fram eftir degi í gær. Ekki
náðist í Heiðar til að staðfesta það þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Talið er að Heiðar hafi ekki hug á
að yfirgefa núverandi heimkynni sín í
höfuðborg Englands, en þar hefur
hann búið síðan hann kom til Wat-
ford sumarið 2000. Með hliðsjón af
því hafa Fulham og West Ham ákveð-
ið forskot á Sunderland og Wigan í
viðræðunum við Heiðar þar sem þau
eru staðsett í London og þyrfti Heið-
ar þannig ekki að færa sig um set.
Forráðamenn Watford höfðu
áður samþykkt tilboð frá Sunderland
sem hljóðaði upp á 1,1 miiljón punda
auk 250 þúsund til viðbótar næði
Sunderland að halda sæti sínu í
ensku úrvalsdeildinni á næsta ári. í
gær gengust stjórnarmenn Watford
síðan við sambæriiegu tilboði frá Ful-
ham svo ljóst er að þeir hafa gefið
upp vonina um að halda í Heiðar fyr-
ir næsta ár.
Heiðar, sem er 27 ára gamall og
hefur skorað 67 mörk fýrir Watford á
tæpum fimm ára ferli sínum hjá fé-
laginu, hafnaði nýjum samningi sem
félagið bauð honum undir lok síðasta
tímabils. Heiðar skoraði 20 mörk fyr-
ir Watford í öllum keppnum á síðustu
leiktíð.
Coleman hefur áhuga
Talið er að Heiðar hafi mestan
áhuga á að fara til Fulham og að tvær
ástæður ráði þar mestu. Annars veg-
ar myndu félagsskipti þangað
ekki fela í sér búferlaflutn-
inga fyrir Heiðar og
fjölskyldu hans
Hins vegar er Ful-
ham, öfugt við
hin liðin, fyrir
löngu búið að
festa sig í
sessi sem
úrvalsdeild-
arlið á
Englandi.
Hin liðin,]
Sunderland,
West Ham
og Wigan, eru öll
nýliðar í efstu deild
og er það viðtekin
venja á Englandi að
nýliðar eigi erfitt uppdráttar á sínu
fyrsta ári í deildinni.
Auk þess hefur Chris Coleman,
stjóri Fulham, lýst því opinberlega
yfir að hann leiti logandi ljósi að arf-
taka hins gamalreynda Andys Cole,
sem er að öllum lfldndum á leið frá
félaginu í sumar. Það myndi þýða að
Heiðar yrði sjáifkrafa einn af fyrstu
kostum Colemans í
framlfnu Fulham
ásamt ekki ómerk-
Það myndi þýða að
Heiðar yrði sjálfkrafa
einn affyrstu kostum
Colemansí
framiínu
Fulham.
Stuðningsmenniniir
vilja ólmir fá Heiðar
Stuðningsmenn Fuiham hafa
míinð rætt um Heiðar á hinum
ýmsu spjallsíðum félagsins og
virðast flestir vera á því að hann
geti orðið hinn besti liðsstyrkur.
Eftirfarandi eru dæmi um þau orð
sem voru látin falla um Heiðar:
„Ég hefséö hann spila og hann er
eins og blóðhundur. Hann mun
koma með ákveðnina og baráttuna
sem vantaði iliðið í fyrra."
„Hann gerði varnarmönnum Chelsea
lífiö leitt í bikarkeppninni fyrir tveim-
ur árum og yrði styrkur fyrir flest lið í
úrvalsdeildinni."
an monnum en
Brian McBride og
Tomasz Radzinski.
Baráttujaxl Heiðar Helguson
sést hér í baráttu við Chris
Powell, leikmann VJest Ham, i
leik liðanna I ensku !. deildinni í
vetur.Svogætifariðaðþeir
mættust á ný I úrvalsdeildinni
„Slðasta tlmabil gerði hann
20 mörk fyrir liðiö sem h'afnaði i
18. sæti 11. deild. Þar að auki var
hann meiddur I tvo mánuði. Þarfað
segja meira um getu þessa manns?“
„Hann er mjög góður leikmaður, með
fínan hraða, sterkur, öflugur I loftinu,
leggur hart að sér og klárar sln færi
vel. En hann er ekki stórkostlegur
framherji. Hann er sannarlega leik-
maður sem á heima I úrvalsdeildinni
og ég er viss um að hann á eftir aö
verða markahæsti leikmaður Fulham
fari svo að hann komi til okkar.
Chelsea flaggar veskinu framan í keppinautana eins og ótt væri
Bauð 6,8 milljarða í Shevchenko
Chelsea hefur lengi verið á hött-
unum eftir framherjanum Andriy
Shevchenko hjá AC Milan og enska
blaðið Mirror greindi frá því í gær
að ítalska liðið hefði á dögunum
neitað boði Chelsea í leikmanninn
að upphæð 48,9 miiljón pund og þá
átti argentínski framherjinn Hem-
an Crespo að fylgja með í kaupun-
um.
Crespo er sjálfur metinn á um
átta milljónir punda og því hefðu
þessi tímamótaviðskipti þýtt að
Shevchenko yrði langdýrasti knatt-
spyrnumaður sögunnar, en sá dýr-
asti hingað til er Zinedine Zidane hjá
Real Madrid, sem kostaði félagið
46,5 milljónir punda á sínum tíma.
Ef af kaupunum á Shevchenko hefði
orðið, segir sagan að Chelsea hefði
verið tilbúið að greiða honum
150.000 pund í laun á viku fyrir fjög-
urra ára samning. Svörin sem feng-
ust frá Milan þegar fyrirspurnir
bámst um Shevchenko voru þó
mjög afdráttarlaus: „Nei, Sheva
er ekki til sölu.“