Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2005, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ2005
DV
Þrjár nýjar myndir eru á leið í tökur á Islandi og eru þær í listrænni kantinum. Fókus náði tali af Christian Leigh,
leikstjóra myndarinnar American widow sem verður tekin hér í haust,
ífellt fleiri
i erlend
Cll r. Jteknar
lomvnairj
>d a Islanai
upp
Mikiö hefur heyrst af erlendum
stórmyndum sem teknar eru upp á
íslandi. Nýlega heyrðist frá fýrir-
huguðum tökum á kvikmynd sem
byggð er á bók Ólafs Jóhann Ólafs-
son, Slóð fiðrildanna. Nú hafa heil-
ar þrjár nýjar bíómyndir bæst í
þennan hóp. Þær mætti flokka sem
listrænar „költ“-myndir. DV náði
tali af leikstjóra einnar þeirra.
American widow er eftir breska
leikstjórann Christian S. Leigh sem
hefur verið að gera mjög góða hluti
í kvikmyndagerð undanfarið. Þegar
Fókus náði tali af leikstjóranum var
hann staddur í Evrópu við tökur á
myndinni. „Við erum að plana að
taka eitt stærsta atriði American
widow á íslandi. Tökur á atriðinu
hefjast líklega snemma í haust. í
augnablikinu er ég staddur í
Evrópu ásamt samstarfsfólki mínu.
Við erum við tökur héma og erum
að leggja á ráðin fyrir næstu töku-
staði sem verða í Japan." Spurður
hvers vegna ísland varð fyrir valinu
svaraði Leigh: „Þeirri spumingu er
auðsvarað: ísland er mjög fallegur
staður og skemmtilegur. Landið á
heljarinnar magn af ís og það er
einmitt það sem okkur vantar fyrir
atriðið."
Leikstjóri Gummo til íslands
Kvikmyndin er um bandaríska
ekkju sem ákveður að reyna að
hagnast á fjöldamorðunum þann 11.
septemher 2001. Leigh hefur unnið
mikið með tónskáldinu John Cale
og var síðasta samstarfsverkeflii
þeirra, kvikmyndin The Process,
kölluð „ævintýralegasta verkið sem
frumsýnt var í fyrra“ af hinu virta
tímariti Variety.
Önnur myndin heitir Mister Lon-
ely eftir sérvitra kvikmyndagerðar-
manninn Harmony Korine. Korine
er þekktastur fýrir mynd sína
Gummo (1997), sem er ein þekktasta
„költmynd" síðasta áratugs. Hann
skrifaði handritið að hinni gífur-
lega umdeildu mynd Larry Clark,
kids (1995), þegar hann var aðeins'
19 ára gamall. Korine hefur einnig
unnið með töframanninum David
Blane og stórleikaranum Johnny
Meistarinn bak við linsuna
Christian Leigh minnir ögn
á leikstjórann sáluga
Stanley Kubrick.
I Kolthetjan Harmony
L I Korine er gífurlega vin-
wsæll í neöanjarðarkvik-
^ 1 myndaheiminum.
Rahan hinn franski
Teiknimyndahetja
André Chéret verð-
ur leikstýrt af
Christoph Gans.
Depp. Þess
má til gam-
ans geta að
hann skrifaði
hluta textans
að laginu
„Harm of
wiil“ með
Björk. Björk
og Korine
hafa verið vin-
ir í lengri tíma
og mættu sam-
an, hönd í
hönd, á kvik-
myndahátíð-
ina í Rotter-
dam árið 1998.
Korine er þekktur fyrir að brjóta
upp hið ameríska sagnarform í
kvikmyndum með mjög lausum frá-
sagnarstíl sínum. Heyrst hefur að
mynd hans Mister Lonely fjalii um
mann sem fastur er í risavaxinni
plastflösku í fjallshlíð. Myndin mun
einnig verða tekin upp í París og
Brasilíu en meirihlutann á að taka
hér á landi.
Bestu tökustaðirnir á íslandi
Þriðja myndin, Rahan, er frönsk
og leikstýrt af Christopher Gans.
Myndin er byggð á teiknimyndasög-
um André Chéret og er sögusviðið
forsögulegt. Söguheljan, Rahan, er
gerður munaðarlaus af villidýrum
og elst upp hjá hópi af cro-magnon
veiðimönnum og söfhurum. Ekkert
tal mun verða í myndinni fyrir utan
forsögulegt uml sem leikararnir
semja á staðnum. Öll sagan verður
sögð á sjónrænan hátt. Heyrst hefur
að mögulega verði myndin tekin í
Kanada í stað íslands, en leikstjór-
inn hefur margoft lýst því yfir að
bestu tökustaðirnir fyrir myndina
séu hér á landi.
If
SP*
' v. júCP
Quiznos
eisiu- og
fundabakk
Tilboð
á nýjum stað í Lækjargötu
Frftt gos úr vél fýlgir mat
til 10 júlí.
á,:;:.,
r ; ~
■i
Heitar samlokur
í
i
erðum.
*
S JH
'&Á'-il' witííw