Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2005, Page 31
I
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 24. JÚNl2005 31
r
“ Kristni lögtekin á Þingvöllum
Lesendur
»• ■. ;
'• 4." v
Ur bloggheimum
Dýrt piss
Nú er hvolpurinn kom-
inn. Fyrsta nóttin varí
nótt og greyið svaffrá
tvö tii sjö. Hann er auð-
vitað búinn að pissa og
kúka inni eins og honum sé
greitt fyrir það. Þetta er bara gaman
og börnin eru sériega dugleg að
passa hann.
Ylfa Mist Helgadóttir - Húsmóðir
gegn kerfinu - ylfa.is
Góð spurning
Hvernig verður maður
þjóðþekktur rithöfund-
ur? Það er mjög ein-
falt. Maður segir fólki
að maður sé þjóðþekkt-
ur rithöfundur. Öllu flóknara
erþaðekki.
Hermann Stefánsson
nordanattin.blogspot.com
búbúbú!
Fór á ættarmót og það
var gaman... fór samt
snemma heim vegna
þess að ég ermeð eitt-
hvað ofnæmi fyrir of
langri samveru með ætt-
inni... fattaði samt í gær að ofnæmið
var eiginlega vegna veikinda.er
sátt. hélt að hjarta mitt hefði minnk-
að um einhver númer og ég gæti
ekki elskað lengur. en ég get það víst!
er ekkert að deyja úr veikindum en
ég er ekki söm... sem þýðir að ég er
ekki eins dugleg og venjulega... tek
samt tvöfalda vakt í dag....
Brynja Magnúsdóttir -
brynjusulta.blogspot.com
At My Most Beauti-
ful
Er að taka til þessa
dagana, tekstuttar
tarnir í einu.Þarf
nefnilega alltafað
skoða svo mikið í leið-
inni, rifja upp. Núna eru það minnis-
bækurnar. Þær eru eitthvað tak-
markað skipulagðar þannig að
maður veit aldrei hvaða ár er fyrr en
eftir að hafa lesið eitthvað smáræði.
Ásgeir H. Ingólfsson -
asgeirhi.blogspot.com
Kristin trú (kaþólsk) var lögtekin
á Alþingi á Þingvöllum við Öxará á
þessum degi árið 1000. Dagsetning-
in virðist ekki umdeild en ártalið er
frekar á reiki. Skorist hafði í odda
með kristnum mönnum og heiðn-
um og var upplausn yfirvofandi.
Þingheimur hafði skipst í tvær fylk-
ingar, heiðna og kristna. Fylkingarn-
ar höfðu hvor sinn lögsögumann og
sögðu sig úr lögum hvor við aðra.
Lögsögumaður kristinna manna
var Síðu-Hallur, en Þorgeir Þorkels-
son Ljósvetningagoði var lögsögu-
maður heiðinna manna. Lögsögu-
I Kristni lögtekin Á
. I Þingvöllum úrskurðaði
J Þorgeir Ljósvetninga-
isj goði að allir ísiending-
marskyldu vera kristnir.
mennirnir tveir sammæltust um að
Þorgeir skyldi ákveða hvora trúna fs-
lendingar allir skyldu hafa. Þorgeir
lagðist undir feld og hafðist þar við
nóttina og næsta dag. Eftir það gekk
hann að Lögbergi og kvað upp þann
úrskurð að íslendingar skyldu taka
kristna trú en heiðnir fengju áfram
I dacf
Þennan dag, árið 1988 var
vatnsrennibrautin í
Laugardalslaug sett í
gang. Fyrstu ferðina fóru
tvö reykvísk börn, Júlíus
og Hafrún. Laugin var
síðan opin fram eftir
kvöldi i tilefni
Jónsmessunnar.
að stunda sína trú þótt leynt skyldi
fara.
Kaþólsk trú var ríkjkandi á ís-
landi allt fram til 1550 þegar Jón Ara-
son, síðasti kaþólski biskupinn, var
hálshöggvinn í Skálholti ásamt
tveimur sonum síntim.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
lkm srsw
>iM I AIIMA I,1-7^ I t iHki ..
ru áminntaðar
WRlAsrbrÍR*
Jón Einarsson
spáir i komu Clints ' A
Lögfræðingurinn segir
Guðbjörg hringdi
Ég velti því fyrir mér hvers
vegna í ósköpunum konur taka sig
ekki saman og stofna sinn eigin líf-
eyrissjóð. Konur hafa ekki jafnrétti
og þær vantar lífeyrissjóð. Hann
yrði mjög stór og efnaður ef teknar
yrðu prósentur af launum kvenna
sem þær myndu leggja í lífeyris-
sjóð. Það myndi kannski ekki líta
vel út í byrjun en þetta þarf að
komast í umræðuna.
Konur fengju jafnrétti í kaupi og
væru ekki að fara í aðra lífeyris-
sjóði eins og þær gera nú. Þær ættu
að reikna þetta saman og sjá hve
mikill sjóðurinn yrði og ættu að
hugleiða það vandlega. Þær mega
samt ekki fara úr sínum sjóðum.
Þetta yrði gjörbreyting fyrir réttlæti
kvenna. Þær ættu að vita af því að
þarna er stór grunnur fyrir jafn-
réttið. Auðvitað á samt ekkert að
verða úr þessu, vegna þess að þetta
yrði erfitt fyrir lífeyrissjóðina og
þjóðfélagið í heild sinni. Þetta er
ekkert nema ógnun og á ekki að
komast til framkvæmda. Þær verða
bara að vita af þessari hugmynd.
Mannréttindi ófæddra barna
Einar Ingvi Magnússon skrifar:
Mannréttindamál eru mörg í
deiglunni um þessar mundir. Um
daginn vann kona mál til að fá að
ættleiða böm. Flún hafði verið álitin
of þybbin til að taka að sér kjörbam.
Á síðasta ári söfnuðust samkvæmt
fréttum 40 þúsund manns í miðbæ
Lesendur
Reykjavíkur til að styðja mannrétt-
indabaráttu homma og lesbía.
En hvað um mannréttindi verð-
andi fólks, sem er enn ófætt, en hefur
samt byrjað að vaxa og vera til? Hvað
um mannréttindi ófæddra bama?
Þau em minna metin, jafnvel þótt líf
þeirra sé í húfi. Það er skelfilegt til
þess að vita að fjöldi ófæddra bama
skuli vera í bráðri hfshættu á meðan
línur þessar em færðar í letur.
Ófædd böm em fóstur, afleggjarar
ætta sinna í föður-og móðurlegg. Þau
hafa byrjað að vera til og eru í mótun
og hröðum vexti, þótt þau séu enn í
móðurlífi.
Hátt í þúsund böm em borin út úr
móðurlífi á ári á íslandi, í aðgerðum
sem kallast fóstureyðingar; em tekin
af lífi í lögvemduðum læknisverkum.
Stór hluti fóstureyðinga er ffarn-
kvæmdur að tilstuðlan félagsverk-
fræðinga, sem hafa komist að þeirri
niðurstöðu að verðandi móðir sé of
ung til að ala upp bam. Félagsverk-
fræðingar ráðleggja því viðkomandi
verðandi móður í fóstureyðingu.
Réttur hins ófædda einstaklings er
því ekki tryggður. Ófætt fólk er því í
miklum hfsháska gagnvart félags-
verkfræðingum, sem hafa lítinn
skilning á siðfræði og virðingu gagn-
vaiit lífi og limum ófædda fólksins.
Það er í lögum að deyða megi ein-
stakling í móðurlifi 'á félagslegum
grundvelli og það er óhikað gert. En
hver kom þeirri hugsun inn hjá fag-
lærðum útrýmingarforingjum að í
lagi væri að eyða mannslífum í móð-
urlífi? Er ekki eitthvað öfugsnúið við
framkvæmd og réttlætingu slíkra
voðaverka?
Sjálfur á ég fjögur yndisleg böm.
Ég þakka mínum sæla fyrir að þau
sluppu úr bráðri lífshættu vegna út-
rýmingarstefhu og afskiptasemi ís-
lenskra félagsmálayfirvalda.
Ifeel likealucky punk
Töffarinn Clint Eastwood er
óumdeilanlega einn mesti meistari
kvikmyndasögunnar. Nýverið bár-
ust þær fréttir að hann hefði valið að
taka upp senur í nýjustu mynd sfna
hér á landi. Það er ánægjulegt út frá
fjárhagslegu sjónarmiði sem auknar
tekjur inn í hagkerfið og heiður fyrir
land og þjóð.
Því miður sjá sumir ógnir í öllum
framkvæmdum. Talað er eins og að-
standendur myndarinnar muni
eyðileggja fsland með sprengingum.
En getur það staðist? Tilgangur
sprenginga í kvikmyndum er oftast
tii að eyðileggja tiltekinn hluta leik-
myndarinnar. Til tilfærslu eða nið-
urbrots jarðefrta þarf sérhæfðar
sprengjur sem settar eru upp í bor-
holum í jörð. Fyrir holunum er mælt
samkvæmt lögmálum bygginga-
verkfræðinnar. Það þarf mun meiri
sprengikraft til að brjóta blágrýtis-
ldöpp en til að eyðileggja leikmynd.
Jafnframt þarf enginn að halda
það að leikstjórar og framleiðendur
kvikmynda nú á dögum tald áhættu
í umhverfisvemdarmálum. Þeir
þurfa að selja myndimar á alþjóð-
legum markaði, markaði sem er
mjög meðvitaður um umhverfis-
vemd.
Loks veit ég ekki betur en að Suð-
umesin' séu nú þegar sprengju-
svæði. Umhverfissinnar ættu ff emur
að snúa sér að því sem og hreinsun á
þrávirkum efnum og málmum
bandaríska vamarliðsins á Suður-
nesjum og víðar. Því segi ég: Vertu
velkominn til íslands Clint, sem og
kvikmyndagerðarmenn allir!
C
‘O .
f5
»2
gð
■o
-
Maöur dagsins
r.iW
Eins og annað líf
„Ég byrjaði að fitna um
sjö ára aldur. Ég byrjaði að
fara í megranir um 10 ára
aldur og prófaði í raun allt
sem hægt var til að losna út
úr þessu. Það gera sér samt
ekki allir grein fýrir því að
ofát er fíkn Sem gífurlega
erfitt er að ráða við. Eftir því
sem maður fitnar meira
þeim mun erfiðara verður
þetta. Það er svo yfirþyrm-
andi tilfinning sem hellist
yfir mann þegar maður hefur
varla tölu á öllum þeim kíló-
um sem maður þarf að losna
við, að á endanum hefur
maður sig ekki í að gera neitt
og gefst upp. Það er ofsalega
erfitt að hreyfa sig þegar
maður er svona feitur, en
lang erfiðast er að ganga inn í
ræktina. Hér á landi er útlits-
dýrkunin svo mikil að það
virðist vera leyfilegt að
hreyta hvaða skítakomment-
um sem er í mann, auk þess
sem augnagoturnar og svip-
brigðin geta sagt meira en
þúsund orð. Þetta verður í
raun fangelsi þegar lengra
líður. Ég heyrði til að mynda
einu sinni að læknirinn sem
framkvæmir þessar aðgerðir
hér á landi hafi verið spurður
hvar hann hefði fundið allt
þetta ofsalega feita fólk sem
er á biðlista hjá honum. Mál-
ið er nefnilega það að við
erum svo mikið í felum þegar
þetta er komið á þetta stig.
Maður vill ekki fara út og
finna endalaust fyrir sting-
andi augnaráði og láta fylgj-
ast með því sem maður
borðar og kaupir inn. Hvað
kemur fólki þetta við?
Ég hafði haft svo mikið
Það kemur stundum fyrir aö míg
langar að rjúka upp á manneskju og
biðja hana taka á þessu.
ógeð á sjálfri mér að ég gat
ekki einu sinni hugsað um að
stofna til sambands við ein-
hvern, núna loksins hef ég
öðlast sjálfstraust. Hugurinn
er samt lengi að taka við sér
hvað þetta varðar.
Eftir að ég grenntist eru
lífsgæði mín svo allt önnur
að það er varla hægt að líkja
því saman. Heilsan. er til
dæmis allt önnur bæði and-
lega og líkamlega, í raun er
þetta bara eins og að fá nýtt
líf.
Það kemur stundum fyrir
að mig langar að ijúka upp
að manneskju og biðja hana
Jóna Hlín Guðjónsdóttir fór f offituaðgerð fyrir Þremur árum^
Síðan þá hefur hún hefur lést um 85 kg og segir hun aðgerðina
hafa gefið sér nýtt lif og nýja lifnaðarhættil
taka á þessu. Ég veit samt að
það er til fólk sem er svona
feitt og líður ekki illa yfir því
og það er auðvitað allt í lagi
ef þetta er ekki að eyðileggja í
þeim stoðkerfið og svo fram-
vegis. Oft er það nú samt að
maður sér vanh'ðan skína úr
andliti þess og þá langar
mann svo til að segja eitt-
hvað, jafnvel þótt ég muni
hvað mér þótti leiðinlegt að
heyra sífelldar ráðleggingar
annarra aftur og aftur. Engu
að síður þá er þetta leið til
nýs h'fs og nýrra lifnaðar-
hátta.