Freyr - 15.06.1948, Side 3
Maður er nefndur W. E. Petersen. Hann
er prófessor í lífeðlisfræði við háskól-
ann í St. Paul, Minnesota, í Bandaríkjum
Ameríku, en heimsfrægð hefir hann hlotið
fyrir rannsóknr sínar og mikilsverðar upp-
götvanir viðvíkjandi myndun mjólkurinn-
ar í júgrum kúnna, og í sambandi við þær
uppgötvanir hefir hann — með langvinn-
um tilraunum — sannað, hvaða aðferðir
ber að nota við mjaltir, til þess að fá sem
mesta mjólk og losna að verulegu leyti við
galla þá og skaða, sem kýrnar hafa til
þessa fengið vegna einhverra misgripa, eða
misnotkunar véla, við mjaltir.
Nefndur prófessor hefir verið á ferðalagi
um Evrópu í vetur til þess að veita fræðslu
um þessi efni. Dvaldi hann fyrst 6 vikur
í Englandi, í boði búnaðarfélaganna og
búnaðarblaðanna þar og flutti erindi á
á mörgum stöðum, sýndi kvikmyndir og
kenndi hraðmjaltaaðferð sína. Svíar og
Danir buðu honum og heim til þess að
fræðast af honum, enda þótt prófessorar
og aðrir fræöimenn þessara landa væru
þegar búnir að heimsækja hann vestan
hafs, og sjá og skoða rannsóknarstofur
hans og læra hraðmjaltir og allt sem þeim
heyrir til.
Flutti prófessor Petersen erindi og sýndi
kvikmyndir við landbúnaðarháskólana í
Kaupmannahöfn og Ultúna og víðar.
Um 25 ára skeið hefir prófessor Petersen
stundað rannsóknir á sviði þeirrar greinar
lífeðlisfræðinnar, er snertir myndun mjólk-
urinnar í júgrinu, og um margra ára skeið
hefir hann framkvæmt tilraunir varðandí
mjaltir. Það var þó ekki fyrr en árið 1939