Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1948, Blaðsíða 6

Freyr - 15.06.1948, Blaðsíða 6
186 FREYR vélin látin toga spenana alltof lengi. Mjalt- irnar eiga aö ganga greitt, á þann hátt fæst mest mjólk og með því móti er hætt- an á júgurkvillum minni en annars. Til- raunir hafa sýnt, að nythæðin verður mest þegar hratt er mjaltað. Kýr nokkur var mjólkuð á‘þann hátt, að fyrst var einn speni þurrmjaltaður. Síð- an var næsti speni tekinn og svo hver af öðrum. Þegar mjólkin úr hverju júgri var vegin kom í ljós, að: Úr spena nr. 1 var mjólkurmagnið eins og venja var til — — — 2 var það 7% of lítið — — — 3 var það 15% of lítið — — — 4 var það 30% of lítið Skýringin á þessu fyrirbæri er ósköp einföld. Hormón það, sem myndast í heila- dinglinum og setur mjólkurstrauminn í gang, verkar með fullum krafti í 3—6 mínútur og aðeins á meðan það verkar á júgrið er mjólkurframleiðslan þar í full- um gangi. Þess vegna eru hraðmjaltir alltaf góðar mjaltir. Það er slæmur vani að láta mjaltavélina hanga á kúnni í 5—10 mínút- ur. Sú mjaltaaðferð mun einatt valda minnkandi nytjum og einnig því, að kýrn- ar selja ekki að lokum, svo að allmikið verður eftir til að hreyta. Þúsundir — og aftur þúsundir — kúa eru eyðilagðar árlega af júgurbólgu, sem á rót sina að rekja til þess, að mjaltavélar voru látnir pína júgrin allt of lengi. Hætt- an á því, að júgrin eða spenarnir bíði tjón við mjaltir, er ekki mikil á meðan mjólkin streymir ört úr þeim. Hún vex aftur á móti þegar vélin er lengur á en þörf gerist. Duglegur mjaltamaður getur mjaltað 25—30 kýr á klukkustund með tveim vél- fötum. Hann fær meiri mjólk og hraustari júgur á kúnum sínum heldur en hinn, sem lengi er að mjalta. Framanskráð eru aðeins fáein orð — út- dráttur — úr erindum þeim, sem hinn heimsfrægi vísindamaður flytur um þess- ar mundir í, að minnsta kosti, þrem heims- álfum. Víða um lönd er aðferð hans þegar tekin í notkun og hefir sums staðar náð mikilli útbreiðslu. Á Norðurlöndum er þegar hafin starfsemi til útbreiðslu hraðmjalta. Pró- fessor I. Jóhansson, búnaðarskólanum við Uppsala í Svíþjóð, hefir lagt sérstaka á- herzlu á að sanna gildi hennar fram yfir eldri mjaltaaðferðir og mælir hann með notkun hennar. En tíma þarf til þess að hún lærist og verði almenningsiðja. Og að- eins þar sem mjaltavélar eru notaðar, er möguleiki til þess að notfæra sér nýjung þessa að fullu. Mjaltavélum fjölgar mjög ört hér á landi þessi árin. Margra hluta er að gæta í sam- bandi við notkun þeirra og meðferð alla, og mjög er áríðandi að fylgt sé reglum þeim, er mæla fyrir um notkun vélanna. Þegar farið er að nota þessar vélar er þess að minnast, að annarsvegar er það vélin, hinsvegar lifandi og starfandi skepna, og vegna þeirra beggja verður að viðhafa hina fyllstu nákvæmni. Mjaltir með vélum er ekki vandalaust verk. í Frey nr. 8—9 og 11—12, 1945, birtust greinar og myndir um mjaltaaðferð þá, sem að framan greinir. Er sumt af því, sem þar er sagt, endurtekið hér, en hvort- tveggja er, að góð vísa er sjaldan of oft kveðin og svo hitt, að ýmsir þeirra, sem nú eiga mjaltavélar, hafa ef til vill ekki séð umrædd blöð. Því er viðeigandi að benda á þau hér, og svo skal það brýnt fyrir þeim, sem nota mjaltavélar, að hagnýta leið- beiningar þær, sem komið hafa út á prenti um notkun þeirra.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.