Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1948, Blaðsíða 9

Freyr - 15.06.1948, Blaðsíða 9
ÍREYR 189 mér lítill ættarsvipur með þeim og Há- legg. Aldursmismunur hryssanna jók á þennan útlitsmun. Hópur Drottningar í Gufunesi hlaut II. verðlaun sem ættstofn á sýningunni. 4. ættstofn: Kári frá Grímstungu og 4 dætur hans. Sýnandi Hrossaræktarfélag Hraungerðishrepps. Kári er 13 vetra gam- all, vindrauður, tápmikill hestur. Hann er tæpar 57 tommur á hæð, óvenju reistur, þreklegur hestur. Höfuðsvipurinn bendir á þol og ákveðinn vilja. Fætur eru sterk- legir, annar afturfótur þó lítið eitt kjúku- snúinn. Fótaburður góður að framan en of náinn á afturfótum. Dætur Kára voru á aldrinum 4—9 vetra. Þær eru óvenju fönguleg hross, 55 y2 tomma á hæð, með glæsilega frambygg- ingu, þreklegan vöxt og mikinn og góðan vilja. Þær hafa þó flestar lýti sem særir auga áhorfandans. Það er sami galli og getið et um hjá föður þeirra, ekki nógu réttir afturfætur og of náinn fótaburður á afturfótum. Það er erfitt að meta og skipa í verð- laun hrossum eins og Kára og dætrum hans. Dómnefndin tók þá afstöðu að meta þau hvert fyrir sig hátt sem einstaklinga en skipa þeim sem nr. 2 í II. verðlaunum sem ættstofni. Þar fyrir býzt ég við, að dómnefndin og undirritaður séum sam- mála um, að Kára eigi að nota sem kyn- bótahest eins lengi og unnt er, en þó varla mjög lengi á sama stað. Ég hygg, að hann mundi bæta hrossastofninn í flestum sveitum landsins, en sérstaklega þar sem ekki er nógu létt yfir hrossunum, og þar sem gætir tuskuskapar í meira eða minna mæli. í Hraungerðishreppi eru nú flest hross undan Berghyls-Brún og Kára frá Grims- tungu. Þetta voru hvort tveggja ágætir stóðhestar, enda er þar nú mikið af úr- vals hrossum. Hraungerðismenn þurfa því að vanda sig, er þeir velja stóðhest á eftir Kára. 5. ættstofn: Börn Blakks frá Árnanesi. — Sýnandi Hrossaræktarfélag Hrunamanna- hrepps. Sýndur var stóðhesturinn Roði og systur hans 4, á aldrinum 11 og 12 vetra. Roða er lýst hér að framan og vísast til þess. Blakksdæturnar eru stórar, tæpar 55 tommur, vel reistar, þreklegar, fætur ekki nógu réttir á sumum þeirra. Þær virðast hafa fjör meira en í meðallagi og mikla reiðhestshæfileika. Heldur lýtti það af- kvæmi Blakks, að þau voru ólík mjög að lit. Blakkur hefir ekki haft nema einn ríkjandi eiginleika af fjórum, sem ráða um háralit. Aftur á móti mun Skuggi hafa 3 ríkjandi eiginleika af 4. Þetta hefir litla þýðingu fyrir notagildi hrossanna, en ó- neitanlega er áferðarfallegra á hópsýningu visst samræmi í lit. Annars var sterkt ætt- armót með þessum afkvæmum Blakks og báru þau vitni um það hvílíkur öndvegis- hestur Blakkur var. Börn Blakks frá Árnariesi hlutu II. verð- laun sem ættstofn. Ég tel það mjög mikið álitamál hvernig réttlátast hefði verið að raða ættstofnum þeim, sem hlutu II. verð- laun. En ég hygg, að dómnefndin hafi sett afkvæmi Nasa fremst vegna þess, að þau hafi haft bezta fótabyggingu. 6. ættstofn: Afkvæmi Þokka frá Brún. Sýnandi Hrossaræktarfélag Mýrdæla. — Sýndur var stóðhc:turinn Þytur, 3 vetra, undan Pílu á Felli (dóttur Þokka) og Skugga frá Bjarnarnesi. Eigandi Björgvin Eiríksson, Felli, Mýrdal. Þytur er vænn þrevetlingur, 54 tommur á hæð. Hann er

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.