Freyr - 15.06.1948, Side 10
190
FREYR
þreklega vaxinn, en hefir heldur klunna-
legar hreyfingar og grófa byggingu. Hann
virðist hafa takmarkaðan vilja og að öllu
samanlögðu vera hæpið stóðhestsefni.
Sýndar voru 4 dætur Þokka frá Brún, á
aldrinum 6—11 vetra. Þær voru 2 jarpar,
1 grá og 1 bleikálótt. Þær eru í meðallagi
stórar, fullar 53 y2 tomma, en þreklega
vaxnar. Lundin er gæf og góður vinnuvilji.
Af byggingarlýtum má helzt nefna, að þær
eru fremur lausholda, höfuðið nokkuð
gróft og of lágur makki. Ég sá Þokka frá
Brún aðeins einu sinni, en það var á hér-
aðssýningunni við Þjórsárbrú 1938. Af
þeirri viðkynningu varð ég fyrir nokkrum
vonbrigðum yfir að sjá afkvæmi hans á
landssýningunni í Reykjavík. Nú veit ég
að þau voru ekki í sínu fegursta skarti
þarna. Öll voru þau þó í góðum holdum,
en líklega hefir ekkert þeirra verið á járn-
um um veturinn. Ég hygg, að þetta skýri
nokkuð, að ekki var glaðara yfir þessum
hrossum undan Þokka en raun bar vitni.
Afkvæmi Þokka frá Brún hlutu III. verð-
laun sem ættstofn.
7. ættstofn: Blakkur frá Skipholti og 4
dætur hans. Sýnandi Hrossaræktarfélag
Leirár- og Melasveitar. Blakkur er 8 vetra,
undan Brúnku Stefáns í Skipholti og son-
arsonur Blakks frá Árnanesi. Blakkur er
tæpar 55 tommur, með fremur stuttan,
sveran háls,' ákaflega þreklegan bol og
lend, og sterka, rétta fætur. Hann mun
vera fremur þungur og hefir sterklegar og
dugnaðarlegar hreyfingar. Hesturinn hefir
engin reiðhestseinkenni og óttast ég, að
hann hafi ekki nægilega g ða lund til þess
að vera góður dráttarhestui.
Dætur hans, sem sýndar voru með hon-
um, voru 3 fjögurra vetra og 1 fimm vetra.
Ein þeirra var með stærstu hryssunum á
sýningunni en hinar voru fremur smáar
(52 tommur). Ég hygg, að þessar hryssur
hafi verið heldur illa tilhafðar á sýning-
unni og hafi því átt erfiða aðstöðu í sam-
anburði við gefnar hryssur. Þær eru yfir-
leitt réttar að beinabyggingu en heldur
dauft yfir þeim. Ég óttast að það verði
ekki aðrar kynbætur að Skipholtsblakk en
bætt kjötframleiðsla.
Skipholts-Blakkur og dætur hans fengu
III. verðlaun sem ættstofn.
★
Hér hefir verið rakin niðurstaða ætt-
flokkakeppninnar. Því miður komu ekki
til keppninnar margir frægir kynstofnar.
Um það þýðir ekki að sakast. En óneitan-
léga ber það hrossaræktaráhuganum ekki
lofsamlegt vitni. Annars má vænta, að
þarna hafi verið nokkrar af beztu hrossa-
ættum landsins. Það mun ekki heldur vera
nein tilviljun hvernig þeir voru ættaðir
ættflokkarnir, sem báru sigur af hólmi.
Þannig er Nasi frá Skarði ættfaðir allra
hrossanna í þremur fremstu ættflokkun-
um, og Blakkur frá Árnanesi að tveimur
fyrstu ættflokkunum. í ættflokk Roða er
20% Skarðs-Nasablóð og 30% Blakksblóð,
en í Skuggaættflokknum 22.5% Nasablóð
og 12.5% Blakksblóð. Þegar blandast sam-
an hin hnitmiðaða líkamsbygging Nasa
frá Skarði og orkan og vöxturinn frá
Blakk frá Árnanesi, er útlit fyrir, að
komi fram einstaklingar meiri kostum
búnir en hjá flestum öðrum hrossastofn-
um á landinu.
B. Einstaklingskeppnin.
1. Stóðhestar: Hér fer á eftir skrá yfir
þá stóðhesta sem kepptu um einstaklings-
verðlaun. Röðuri dómnefndarinnar er
haldið: