Freyr - 15.06.1948, Page 12
192
FREYR
Aldur ár Faðir Móðir ö ð XI ro i w <3 I PQ Fótleggur Verð'aun á sýningunni
í cm
22. Móra í Eystra-Súlanesi 5 Blakkur, Leir. og Msv. Freyja á Melum 144 169 17.5 II.
23. Fluga í Pétursey 10 Þokki, Mýrdal Róða frá Hvoli 139 163 17.5 II.
24. Harpa í Eyjarhólum 7 Þokki, Mýrdal Freyja, Eyjarhólum 141 170 17.5 II.
25. Jörp í Eystra-Sulunesi 4 Blakkur, Leir. og Msv. Grána frá Arkalæk 136 157 17.0 III.
26. Blesa á Melum 4 Blakkur, Leir. og Msv. Bleikblesa frá Aðalb. 137 158 17.0 III.
27. Stjarna á Melum 5 Blakkur, Leir. og Msv. Skola á Melum 135 166 17.0 III.
28. Píla á Felli 11 Þokki, Mýrdal Bleik frá Vatnsk.h. 140 163 17.0 III.
Töflurnar hér að framan og dómsniður- Nökkvi er 6 vetra, jarpur, 57 tommur,
stöður skýra sig sjálfar. Þó skal þess getið,
að dómnefndin taldi röðun hryssanna
nokkuð af handahófi innan hvers verð-
launaflokks, vegna þess, að dómnefndinni
hafi ekki gefizt tími til að raða þeim af
nákvæmni.
Það er meiri vandi en margur hyggur að
raða hrossum eftir gæðum, þegar reið-
hestar og dráttarhestar eru hafðir í sömu
röðinni. Ef litið er t. d. á jafnaldrana:
Skipholts Blakk og Loga frá Dalsseli, þá
kemur í ljós, að Blakkur hefir sáralitlar
líkur til að gefa afkvæmi, sem eru betri til
reiða en mæður þeirra, en hefir á hinn
bóginn miklar líkur til þess að auka afl
og þunga hrossanna. Logi, aftur á móti,
virðist ekki álitlegur til þess að gefa væna
dráttarhesta, en hann hefir ljúfa lund,
góðan gang og vilja, og benda allar líkur
til þess, að þessir eiginleikar muni erfast
frá honum í ríkum mæli. Ekkert spor
hefir verið stigið í þá átt að hreinrækta
annars vegar dráttarhesta og hins vegar
reiðhesta. Ef við eigum að fara út á þá
braut, þurfum við alveg að endurskipu-
leggja kynbótastarfsemina í landinu. Á
meðan það er ekki gert, tel ég Blakk og
Loga báða annars flokks hesta, en Nökkva
á Hólum og hans líka fyrsta flokks hesta.
reistur, þreklegur, með rétta sterka fætur,
en of smáa hófa. Höfuðið táplegt, augun
hvöss, fótaburður þróttmikill og gangur
fjölbreyttur. Hér virðist allt standa til
boða: Nóg þrek ,gangfimi, mikið fjör og
ljúf lund. Af hverju stóð þessi hestur ekki
á toppinum, spyr nú einhver, sem les þess-
ar línur? Og svarið verður: Ef til vill hefir
það verið álitamál hver hinna þriggja:
Roði, Nökkvi eða Skuggi hefði átt að
standa efstur. Dómnefndin dæmdi eftir
því, sem lá í augum uppi, en það var að
Roði hafði fullkomnasta byggingu þessara
hesta. Aftur á móti hygg ég, að dómnefnd-
in hafi ekki lagt á metaskálarnar eigin-
leika eins og fjör, gangfimi o. fl.
Sómi frá Kiðabergi (eigandi Gunnar
Þorsteinsson, Ketilsstöðum, Mýrdal) stóð 5.
í röðinni. Það er glæsilegur hestur og vel
ættaður, (undan Sörla frá Kalkoti og út
af Skarðs Nasa í móðurætt). Hann hefir
verið of lítið notaður til undaneldis og of
lítið taminn.
Kópur frá Túni, eign Júlíusar í Hítar-
nesi, stóð næstur Sóma. Það er mikill
hestur og sterkur, viljugur og gangmikill
en vantar fríðleika.
Freyr í Gufunesi er aðeins 3 vetur. Hann
er stór, frekar grannbyggður, fagur foli.