Freyr - 15.06.1948, Side 14
194
FREYR
sonar á Grafarbakka. Hún er 11 vetra,
undan Blakk frá Árnanesi, 55 tommur,
reist, þrekleg með hnitmiðaða byggingu og
sterka fætur. Hún er hinn mesti gæð-
ingur.
Það yrði of langt mál að lýsa hverri ein-
stakri hryssu, enda má í töflunni fá
nokkrar upplýsingar um þær.
C. Keppnin um Sleipnisbikarinn.
Búnaðarfélag íslands efndi til verð-
launasamkeppni um veglegan silfurbikar,
Sleipnisbikarinn. Þetta er farandgripur og
skal keppt um hann á landssýningum.
Aðeins stóðhestar geta hlotið hann. Skal
sá stóðhestur fá hann, sem ber af að feg-
urð, byggingu, fjöri, ganghæfni og tamn-
ingu.
Aðeins 5 stóðhestar tóku þátt í þessari
keppni, en það voru þeir:
1. Skuggi frá Bjarnanesi, eig. Hesta-
mannafélagið „Faxi“, Borgarfirði.
2. Kópur frá Túni, eig. Júlíus Jónsson,
Hítarnesi, Hnappadalssýslu.
3. Logi í Dalsseli, eig. Leifur Auðunsson,
Dalsseli, Vestur-Eyjafjallahr.
4. Háleggur frá Auðsholti, eig. Stefán
Þorláksson, Reykjahlíð, Mosfellssveit.
5. Nökkvi frá Hólmi, eig. Kynbótabúið á
Hólum í Hjaltadal.
Keppnin fór fram á skeiðvellinum í
Reykjavík, og voru ekki aðrir áhorfendur
en dómnefndin.
Sleipnisbikarinn hlaut að þessu sinni
Skuggi frá Bjarnarnesi. Við afhendingu
bikarsins, sem fór fram á sýningarsvæð-
inu, komst Runólfur Sveinsson þannig að
orði, að Skuggi væri vel að þessum heið-
ursverðlaunum kominn, „því hér er um ó-
venjulegan gæðing að ræða og auk þess
afburða fallegan hest“. Skuggi er nú 10
vetra. Hann er 57 tommur að hæð, allvel
reistur með reiðhestslegum bol, nokkuð
stutta og afturdregna lend. Hann hefir
nokkurnveginn rétta fætur, allgóðan fóta-
burð og mikla fjölbreytni í gangi. Hestur-
inn er viljugur og skapgerðin ljúf. Hann
var notaður lítið eitt í Hornafirði áður en
hann var seldur Hrossaræktarfélagi Gnúp-
verja, en þar var hann notaður mikið til
undaneldis í 5 ár. Nú er hann í eigu Hesta-
mannafélagsins Faxa í Borgarfirði, og
ber það vonandi gæfu til að njóta hans
Skuggi frá Bjamanesi, ættbók nr. 201.
Eigandi: HestamannafélagiS „Faxi“,