Freyr - 15.06.1948, Side 17
FREYR
197
Vélunámskeið á Hvanneyri
vorið 19h8.
(Ljósm.: Guðni Þórðarson).
eyri í vor, undir handarjaðri formanns
nefndarinnar, en Guðmundur skólastjóri er
formaður hennar. Hófst námskeiðið um
hiiðjan apríl og stóð til hvítasunnu. Var
þar kennd meðferð og hirðing hinna helztu
aflvéla og annarra búvéla, sem nú eru not-
aðar, en á Hvanneyri er góður vélakostur
og fjölbreyttur. Þar eru ný tæki og þar er
gamalt að finna, og væri vel til fallið að
hefja þar nú tilraun til þess að koma upp
safni verkfæra og véla, sem sýnt gæti þró-
un þessa þáttar í íslenzkum búskap. Þar
er einn þeirra „þúfnabana" sem um eitt
skeið voru notaöir hér, svo að ekki er þess
forngrips að sakna.
í námskeiðinu tóku 22 þátt að þessu
sinni.
Framkvœmdir á staðnum.
Bændaskólinn á Hvanneyri hefir nú
fengið raforku frá Andakílsvirkjuninni til
hiikilla þæginda, og eflast þau ennþá bet-
úr þegar lokið verður byggingu og útbún-
aði þeim, sem nú er í framkvæmd, til þess
að hita staðinn með vatni rafhituðu, með
orku Andakílsfossanna, um nætur.
Þá stendur yfir breyting á fjósinu á þann
veg, að loftræstikerfið, sem áður var ófull-
komið, er endurbætt, byggt er ofan á fjós-
ið svo að öll fær byggingin annan svip en
áður hafði og aðgerð við fjóshlöðu er fyrir-
huguð á næstunni á þann veg að efla skil-
yrði til aukinnar votheysgerðar. Súgþurrk-
unarkerfi var sett í hlöðuna í fyrra, en
blásarinn reyndist ófullnægjandi, enda er
vegghæð mikil.
Aðrar og merkar athafnir eru fyrirhug-
aðar á Hvanneyri og má að þeim víkja er
af framkvæmdum verður, en aðeins skal
hér nefnt, að ákveðið er að setja þar á stofn
sæðingarstöð, er starfi á vegum nautgripa-
ræktarfélaganna í Borgarfirði.
Það er staðarlegt á Hvanneyri svo sem
löngum hefir verið. Útsýnið er þar óbreytt
til fjalla og til hafs, en umhverfið breytist