Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Side 17
FIMMTUDAGUR 14.JÚLÍ2005 77
DV Sport
—
Wanchope tll
Katar
Sóknarmaðurinn Paulo
VVanchope hefur skrifað imdir
samning við Al-Gharafa Sports
Club sem er frá Katar. Bjartsýni
ríkti hjá enska liðinu Portsmoúth
um að fá Wanchope en hann valdi
peningana í Katar fram yfir. Hann
kemur frá spænska
liðinu Malaga sem
^ hafði ekki not fyrir
% hann áfram í her-
■?' búðum sínum.
~ . Wanchope hefur
leikið með íjðtda
MpÍA liða á Englandi
OP en þar sló
hann f gegn á
sínuin tíma.
Haim lék fyrir
Derby. West Ham
og Manchester
City og útílokar
ekki að snúa aftur f enska boltann
einhvern tíma í framtíðinni.
Wanchope er landsliðsmaður frá
Kosta-Rika.
IBV og Keflavflk
hefja leik í
Evrópukeppni
IÍBV og Keflavík leika f dag fyrri
leiki sína f 1. mnferð forkeppni
UEFA bikarsins. Keflvíkingar leika
á útivetli gen FC Etzella í Lúxem-
borg og fer leikurinn
— - -— _ fram á Stade du
\ W \/) Deich-leikvangin-
^/ um í Ettelbruck sem
tekur 650 manns f
sæti. Leikurinn hefst
kt- 16.30 að íslenskum
\_/ tíma. Eyjamenn fá aftur á
móti heimaleik gegn B36 frá
Færeyjum en það er f fyrsta sinn
sem íslenskt og færeyskt féiagslið
mætast f Evrópukeppni. Leikurinn
fer fram á Hásteinsvelli í Vest-
numiiaeyjuin oghefst hann klukk-
an 18.00. l>ess má geta að dómarar
leiksins eru frá Norður-írlandi.
Fiore loksins
aftur til ítalíu
Martröð Stefano Fiore í
spænska boltanum er iokið eftir
að hann tók þá ákvörðun að ganga
til liðs við Fiorentma. Þessi ítatski
landsliðsmaður var keyptur til
Valencia stuttu eftir að Claudio
Ranieri tók við þjálfun félagsins.
Honum gekk itla að aðlagast lífinu
á Spáni og þá var Ranieri rekinn
fyrr á þessu ári. „Það fór heilt ár til
spillis hjá mér hjá Valencia og ég
er ákveðinn í að bæta upp fyrir
það í Flórens. Ég hef fulta trú á því
að ég geti gert góða hlutí hérna,"
sagði Fiore sem kemur til Fiorent-
ina á eins árs lánssamningi.
íþróttavöruframleiðandinn Nike er farinn að nota myndir af körfuboltamanninum
Kobe Bryant í auglýsingum sínum á ný eftir að hann var handtekinn fyrir meint
kynferðisafbrot fyrir tveimur árum. Þetta fer fyrir brjóstið á mörgum sem þykir
hann óheppileg ímynd ungs fólks
Er Kobe Bryant góð
fyrirmynd?
Kobe Bryant hefur áunnið sér
slæman orðstír í NBA-deildinni
fyrir að vera þrjóskur, eigin-
gjarn, sjálfselskur, gráðugur
og hrokafullur.
Kobe Bryant hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarin tvö ár og
hefur upplifað sannkallað stjörnuhrap. Eftir að hann varð NBA-
meistari þrjú ár í röð með liði sínu, Los Angeles Lakers, í byrjun
áratugarins, fór snarlega að halla undan fæti hjá kappanum. Eft-
ir að hann átti þátt í að flæma Shaquille O’Neal og Phil Jackson
frá liði Lakers var hann kærður fyrir að nauðga
ungri stúlku í Colorado og missti í kjölfarið
alla auglýsingasamninga sína og ímynd
hans var í molum.
Lið Los Angeles tók mikla áhættu
þegar það gerði risasamning við
Bryant áður en dómur var kveðinn
upp í máli hans, en eftir löng og
ströng málaferli ákvað stúlkan að
falla frá kæru sinni vegna þess að
hún treysti sér ekki til að ganga í
gegnum frekari niðurlægingu sem
fylgir slíkum réttarhöldum. Hún
hafði fengið fyölda morðhótana frá
stuðningsmönnum Bryants, sem
reyndar fór ákaft fækkandi á þessum
tíma. Réttarhöldunum lauk því á
þann hátt að Bryant bað stúlkuna af-
sökunar opinberlega en þó hann hafi
gengist við því að hafa samræði við
stúlkuna viðurkenndi hann aldrei að
hafa nauðgað henni. Bryant greiddi
stúlkunni einhverjar miskabætur í
kjölfarið en ekkert hefur verið gefið
upp um hver sú upphæð hún var.
Stjörnuhrap
Auk þess að hafa verið ákærður
fyrir nauðgun, hefur Kobe Bryant
áunnið sér slæman orðstír í NBA
deildinni fyrir að vera þrjóskur,
eigingjam, sjálfselskur, gráðug-
ur og hrokafitllur, svo segja má
að leikmaðurinn megi muna
sinn fi'fil fegurri. Bryant var sak-
aður um að vera maðurinn sem
stóð á bak við það að brjóta upp
stórveldi Lakers á sínum tíma með
því að ftæma burt þjálfarann Phil
Jackson og miðherjann Shaquille
O’Neal, en hann lét ekki þar við sitja
og segja má að dropinn sem fyllti
mælinn hafi verið þegar hann ásak-
aði Karl Malone um að hafa stigið í
vænginn við konuna sína, einmitt á
meðan var verið að rétta yfir honum
sjálfum fyrir nauðgun.
Bryant var staðráðinn í að leiða
lið Lakers á sigurbraut á ný upp á sitt
einsdæmi, en sú áform hmndu til
gmnna á einu bretti í fyrra þegar ár-
angur Lakers var einn sá verstí í sögu
félagsins. Tölfræði Bryants var að
vísu með afbrigðum góð og engum
dyljast hæfileikar hans á körfu-
boltavellinum, en honum
mistókst hrapallega að gera aðra
leikmenn í kringum sig betri
og varð því
ljóst
að
Skammastu þfn! Kobe Bryanthefur far
/ð verulega illa að ráðislnu undanfarm
tvö ár og er ungu fólki slæm fyrimynd.
DV-mynd Reuters
hann gat ekki leitt liðið upp á sitt
einsdæmi eins og til stóð.
Nú virðist sem íþróttavörufram-
leiðandinn Nike sé þó búinn að taka
Kobe Bryant í sátt því í nýlegu hefti
blaðsins Sports Illustrated birtist
mynd af Bryant þar sem hann aug-
lýsir vöm Nike.
Lappað upp á iaskaða ímynd
Þetta þyldr mönnum vera til
marks um að nú eigi að gera tilraun
til að lappa upp á mjög svo laskaða
ímynd kappans og færa hann smátt
og smátt inn á síður blaða í auglýs-
ingaskyni, en það fellur ekki vel í
kramið hjá öllum. Cynthia Stone,
talsmaður samtaka fólks gegn kyn-
ferðisofbeldi í Colorado, gagnrýndi
ákvörðun Nike að nota andlit hans
aftur í auglýsingum sínum. „Stórfyr-
irtæki eins og Nike eiga stóran þátt í
að skapa fyrirmyndir fyrir ungt fólk
um heim allan og ég tel að það yrði
fyrirtækjum þessum til framdráttar
ef þau beindu sjónum sínum að
{þróttamönnum sem ekki aðeins
skara fram úr á leikvellinum, heldur
eru góðar fyrirmyndir utan hans,“
sagði Stone.
Afrek yfir skapgerðarbresti
Talsmaður samtaka auglýsenda í
íþróttum á Los Angeles-svæðinu
sagði þó að afrek íþróttamanna á
leikvellinum næðu yfir skapgerðar-
bresti þeirra utan vallar og því kæmi
ekki á óvart að Bryant hefði verið
tekinn í sátt, enda hafi hann verið
nýbúinn að skrifa undir risasamning
við Nike þegar hann var handtekinn
á sínum tíma. „Ég á hinsvegar eftir
að sjá að Kobe Bryant fari að auglýsa
vörur fyrir almennan markað í bráð.
Hann er farinn að auglýsa vöru sem
snertir leikinn sjálfan á ný, en slíkt
virðist ekki vera bundið við orðspor
hans utan vallarins," sagði talsmað-
urinn.
baldur@dv.is
Jose Mourinho byrjar sálfræðistríðið óvenju snemma
Stríðið er hafið í enska boltanum
Knattspymustjórinn Jose Mour-
inho hjá Chelsea er byijaður að
senda keppinautum sínum í ensku
úrvalsdeildinni tóninn í fjölmiðlum,
þó enn sé langt í fyrsta leik í ensku
úrvalsdeildinni, og hefur nú tekið
upp þráðinn þar sem frá var horfið í
fyrra í ásökunum sínum á hendur
liði Arsenal, sem hann fullyrðir að
njóti vemdar knattspymusam-
bandsins vegna setu stjórnarmanns
félagsins í enska knattspymusam-
bandinu.
„Ég hef engar áhyggjur af því
hvort menn draga siðfræði okkar í
efa,“ sagði Mourinho. „Ég hef hins-
vegar áhyggjur af því að lið í deild-
inni fái mjög misjafna meðferð hjá
knattspymusambandinu, sem virð-
ist sjá liðin ýmist sem djöfla eða
engla. Ég get ekki séð að við höfum
hegðað okkur þannig að við eigum
að vera stimplaðir sem djöflar, á
meðan Arsene Wenger og David
Dein, varaformaður stjómar Arsenal,
em taldir vera englar," sagði Portú-
galinn og fór ekki leynt með van-
þóknun sína á því að Dein ætti sæti í
enska knattspyrnusambandinu.
„Haldið þið að það sé tilviljun að
við skulum þurfa að spila útí-
leik í ensku deildinni strax ,
á eftir leik í meistaradeild-,
inni á meðan Arsenal fær;
heimaleik? Ég held ekki.
Ég veit það ekki, kannski ’
verð ég ennþá knattspymu-!
stjóri Chelsea eftir fimm ár
þegar David Dein verð-
ur vonandi hættur í
stjóm enska knatt-
spyrnusam-
bandsins. Menn i stjórn félaga eiga
alls ekki að vera í stjóm knattspyrnu-
sambandsins," sagði Mourinho.
Enska knattspyrnusambandið
var ekki lengi að bregðast við yfirlýs-
ingum hans og sendi strax frá sér
svohljóðandiyfirlýsingu: „Samband-
ið harmar ummæli Mourinhos og vill
taka það fram að David Dein var
kosinn í lýðræðislegri kosningu
og kemur hvergi nálægt aga-
í nefndarstörfum." Þá verður
kunngert fljótlega hvort
| Mourinho eigi yfir höfði sér
refsingu vegna ummæla
sinna.
Ræðst á Arsenal Jose Mour-
inhoheldurþvl framað
Arsenal hljóti sérmeðferð i
I Englandi. DV-mynd Reuters
V
FISHERS ÍVSOTION
6 laga goretex, microfiber,
mjög mjúkar.Taska og belti
Löng ending
Lengst reynsla af þessum
goretex vöðlum á íslandi.
Tilboðsverð 35.900.-
FiSHERS JVSÖTiON
3 laga goretex.Taska og belti
Tilboðsverð 28.900.-
glcsileguMÍ flugum
Vesturröst
Sérversiun veföimannsins
Lðugovegi 178 ■ 105 Reykjavik
Simof 551 6770 & 553 3380 Fax 581 3751