Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Page 19
DV Sport FIMMTUDAGUR 14.JÚLÍ2005 19 LANDSBANKADEILDIN Viktor Bjarki Arnarsson, miðjumaður hjá Fylki er leikmaður 10. umferðar Landsbankadeildarinnar hjá DV en hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í fyrsta deildarsigri Fylkismanna í Vesturbænum í tólf ár. 1*5? „Ég er að finna mig mjög vel í Árbænum og Fylkir er bara mjög flottur klúbbur. Fé- lagið heldur rosalega vel utan um leikmenn liðsins og það er alltaf ákveðin fjöl- skyldustemming í kring um hlutina þar. Mórallinn í liðinu er einstaklega góður og þó að það hafi verið mjög fínn mórall í liði Víkings í fyrra, var auðvitað erfitt að standa í þessaii fallbaráttu um sumarið og því kom það niður á andanum í liðinu. Það er allt annað að vera í svona liði sem er í toppbaráttunni og ég held að stemm- ingin gæti ekki verið betri. Menn eru allir í þessu til að hafa gaman af og það er frá- bært að vera í þannig hópi,“ sagði Viktor. Gengi Fylkis hefur ekki síður verið áhuga- vert þegar horft er til meiðsla lykilmanna hjá liðinu, en Viktor bendir á að ungu leikmenn- irnir hafi staðið sig ffábærlega í ijarveru lykil- mannanna. „Það eru vissulega mikil meiðsli hjá okkur, en mér finnst enginn vera að tala um að þessi og hinn sé meiddur hjá okkur eins og sum lið eru alltaf að tala um. Það kemur bara maður £ manns stað og ungu leikmennimir hafa staðið sig mjög vel. Auðvitað gætu þessir menn sem em meiddir styrkt okkur verulega, en það er enginn að hugsa um það heldur einbeita menn sér bara að því sem er fyrir hendi hveiju sinni." Klikkaði á markteig Viktor segist ekki vera farinn að huga að ffamtíð sinni hjá Víkingi, en hann er sem kunn- ugt er á lánssamningi hjá Fylki í sumar. „Ég er ekki farinn að hugsa neitt um framtíðina ennþá og reyni bara að einbeita mér að því sem ég er að gera núna. Ég gæti hinsvegar alveg hugsað mér að vera áfram hjá Fylki ef sú staða kæmi upp, því Fylkir er stórt og gott félag sem gerir vel við leikmenn sína,“ sagði Viktor, sem segir byrjun sína hjá liðinu hafa verið erfiða. „Mér gekk afar illa að nýta færin mín á fyrri helmingi mótsins og klúðraði meira að segja skoti á markteig á móti Keflvíkingum. Ég verð að viðurkenna að það var farið að sitja dálítið í mér hvað ég fór iUa með færin og gekk illa að skora. Ég var farinn áð heyra það utan að mér að fóUc væri ósátt við þetta, en ég fékk aUtaf fuU- an stuðning frá félögum mínum í liðinu og Láka þjálfara. Það hjálpaði mér mikið og ég vona að maður sé kominn yfir þetta núna,“ sagði Viktor sem hefur spUað nokkrar mismun- andi stöður hjá liðinu í sumar, en hver skyldi vera hans uppáhaldsstaða á veUinum? „Ég hef verið að spila á hægri kantinum og á miðjunni, en mér Uður langbest þegar ég get verið fljótandi ffamarlega á miðjunni. Eg er sóknarþenkjandi leikmaður og það hentar mér best að vera að fá boltann í lappirnar framar- lega á veUinum. Annars er ég ágætlega sáttur við að leika á kantinum llka, þannig að það er bara undir þjálfaranum komið hvar ég spUa hverju sinni." Áfram í Árbænum? Fylkir situr í þriðja sæti LandsbankadeUdar- innar, sjö stigum á eftir Val sem er í öðru sæti og Viktor segir aldrei að vita nema Fylkir geti strítt Valsmönnum eitthvað á lokasprettinum í deUdinni. „Við höfum verið að skora nóg af mörkum, það vantar ekki, en það er vamarleikurinn sem þarf að batna hjá okkur. Við gerum okkur grein fyrir því að við getum skorað mörk á móti hvaða Uði sem er, þannig að möguleikar okkar í þeim leikjum sem eftir eru felast í því að reyna að binda saman vörnina og þá er aldrei að vita nema við getum saxað á forskot Vals og FH, þó að mér sýnist nú FH-Uðið vera í algjörum sér- flokki í deUdinni í sumar. Við erum í það minnsta staðráðnir í að gera okkar besta," sagði Viktor Bjarki sem eins og áður sagði gæti vel hugsað sér að vera áfram hjáÁrbæjarliðinu. „Ég get ekki neitað því að mér Uður vel hérna og væri tU í að vera áfram, ég hef samt ekkert nema jákvæðar tUfinningar tU Víkings og því verður framtíðin bara að leiða í ljós hvar maður endar." baldur@dv.is * . - - , -„*.'■ t- .. ....*' -:■“** ■"■■ : „ . - ■ . ... Guðmundur Sævarsson (3) .. V. — • Fylkismaðurinn Viktor Bjarki Arnarsson fagnar marki gegn KR. DV-mynd E.ÓI. Öll stig Eyjamanna á Hásteinsvellinum Páll Einarsson (3) Pálmi Haraldsson HelgiValur Daníelsson (3) irétar Sigurðsson (3) Ólafur Páll Snorrason (3) Guðni Rúnar Helgason Eyjamenn hafa unnið 3 af af síðustu 4 heimaleikjum sínum en þetta eru jafn- framt einu stig iBV-liðsins í Landsbanka- deiidinni til þessa í sumar. (BV hefur tapað öllum fimm útileikjum sínum og markatala utan Vest- mannaeyja er hörmuleg eða 1-14 þeim í óhag. © Baldur Aðalsteinsson (4) Keflvlkingar hafa skorað (öllum leikj- unum sínum í Landsbankadeildinni nema í tveimur leikjum gegn toppliði FH. Þrátt fyrir QÓð tilþrif 1 báðum leikjunum gegn FH unnu Hafnfirðingar þá báða með markatölunni 5-0. Keflavíkurliðið hefur hins- vegar skorað tvö mörk að meðaltali (hinum átta deildarleikjum sínum. Steingrímur Jóhannesson Viktor Bjarki Arnarsson (2) © ,-s KR-ingar hafa í annað sinn (sumar tapað þremur leikjum (röð í Lands- bankadeildinni og hafa nú aðeins fagnað einum sigri (síðustu átta deildar- leikjum sínum. KR-liðið hefur tapað síð- ustu 315 mínútum sínum (deildinni með átta marka mun, 2-10, og það þrátt fyrir að liðið hafi spilað 225 af þessum mínútum á heimavelli sínum í Frostaskjólinu. Valsmenn hafa aldrei fengið meira en V' - ^ eitt mark á sig í þeim tíu leikjum sem ^ liðið hefur spilað í Landsbankadeildinni til þessa. Valsvörnin hélt hreinu þriðja leikinn í röð og (fimmta skipti alls (Grindavík á þriðju- dagskvöldið. Síðastur til að skora hjá Valsmönn- um var Eyjamaðurinn Steingrimur Jóhannesson, 23.júní síðastliðinn. Framarar hafa tapað fjórum leikjum ( tfA A röð og leikið sjö leiki f röð án þess að ^ vinna sigur í Landsbankadeildinni. Fram-liðið vann síðast leik þegar liðið mætti Þrótturum í Laugardalnum 27. maí sfðastllðinn. Ekkert lið í deildinni hefur fengið færri stig út úr síðustu sjö umferðunum en þau tvö sem Fram hefur nælt (. KR-ingar eru næstneðstir með tveimur stigum meira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.