Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2005, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 14.JÚLÍ2005 Menning DV ÞAÐ MÁ SANNA margtmeð tölfræði eins og sagan kennir. Starfsmenn Listahátíðar sendu frá sér fréttatil- kynningu í gær þar sem greint var frá könnun um hvortþjóðin vilji hafa þá starfandi ár eftir ár. Samkvæmt fréttatiikynningu Listahátíðar viija um 65% landsmanna að Listahátíð i Reykjavlksé á hverju ári „INÝLEGRI könnun Gallup var kannaður hugur fólks til að halda Listahátíð árlega. Kom þar skýrt fram að langflestir landsmenn, eða um 65%, eru hlynntir þvi að Listahátíð í Reykjavik sé haldin á hverju ári. En þess má geta að nýliðin Listahátið í Reykjavík var sú fyrsta sem haldin var á oddatöluári og má þvísegja að þá hafi farið fram fyrsta árlega hátíð- in. Listahátið í Reykjavik hefur verið haldin annaö hvertár allar götur slð- an 1970. NÁNAR TILTEKIÐ tiltekið kom fram aö 64.7 % landsmanna eru hlynnt ár- legri hátíð en 13,5% andvíg þvl að hátiðin sé á hverju ári og 21.8% voru hvorki hlynntþví né andvig. Marktækur munur var á afstöðu kynjanna i könnuninni en iIjós kom að rösklega 60% karla og 69% kvenna eru hlynnt árlegri hátíð. Einnig kom fram martækur munur á svörun eftir aldri og búsetu. Athygli vekur að eftir því sem fólk eryngra því hlynntara er það að Listahátíð í Reykjavík sé haldin árlega. Þá eru Reykvíkingar og fólk i ná- grannasveitarféiögum hlynntara ár- legri hátíð en fólk búsett i öðrum sveitarfélögunt). Sérstaka athygli vekur að fólk búsett I nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur er ivíð hlynntara árlegri hátíð en Reykvíkingar." Flugur SPURNING RÆÐUR svari. Eru ekki likur á að sama svarhlutfall heföi komið fram efspurthefði verið hvort ekki væri rétt að halda Listahátið annað hvert ár? Var aðspurðum gerð grein fyrir kostnaði? Ekki voru þeim boðnir aðrir kostir. Kvikmyndahátíð árlega, sem má kosta fimmtíu millur, eða tónlist- arhátið annað hvert ár eins og var upphaflega. Hvað dregur innkoma Listahátíðar á viðkvæman listamarkað mikið úr að- sókn á aðra viðburði? Mun hún til dæmis rústa öllu öðru listalífi um nær átta vikna skeið eða reynast örvandi? STARFSMÖNNUM Listahátíðar gengur ugglaust allt gott til. En fram- tlð Listahátíðar er bý'sna stórt mál og krefst opinberrar umræðu. Sú breyt- ing sem gerð var i ár með starfsemi hennarárið um kring var umdeilan- leg en fór furðu lágt. En skoðana- könnun gærdagsins tryggir þó eitt: Þeirsem tóku ákvörðun um hana voru ekki síst að tryggja starfsum- hverfi sitt næstu árin. Einar Hákonarson listmálari hefur tilkynnt aö hann opni sýningu í Hljómskála- garðinum í ágúst í tveimur stórum tjöldum. Hann segir sig útilokaðan frá sýning- arhaldi í sölum Listasafns Reykjavíkur þar sem einvaldurinn Eiríkur Þorláksson hampi bara tilteknu formi myndlistar. f j Einar Hákonarson listmálari Það f hefur aldrei verið lognmolla íkringum Emar og skoðanir hans á sýningar- haldi og aðstöðu tiisýninga. Einar hyggst opna sýningu sína 19. ágúst, daginn fyrir menninganótt, og á fullu tungli. Tjöldin tvö eru rúmir fimmhundruð fermetrar að grunn- máli en í þeim verða reistir sýningar- veggir til að hengja upp þau hátt í hundrað málverk sem Einar sýnir að þessu sinni. „Þetta eru verk frá síðustu fjórum árum - allt málverk," segir Ein- ar. „Flest þeirra voru máluð á árunum 2004-2005. Ég fór til Prag á sextugsaf- mæli mínu, leigði mér íbúð og vinnu- stofu og vann." Afraksturinn verður sýndur á tjaldsýningunni. Tvöfalt afmæli Hugmynd Einars var að halda upp á sextugsafmæli sitt og fjörutíu ára starfsferil með stórri sýningu. Hann segist hafa haft samband við Lista- safnið í haust og óskað eftir sýningar- rými í einhverjum af sölum safnsins á komandi vetri. Hann hafi ítrekað e indi sitt til menningarmálanefnd- ar og fengið þau svör að for- ( stöðumaður Listasafns Reykja- víkur væri einvaldur um sýning- ar í safninu. Einar segir skýringar á' ý ákvörðun Eiríks Þorlákssonar þá \ Eiríkur Þorláksson, stjórn- andi Listasafns Reykjavíkur Segir Einar ekki hafa sótt um til réttra aðila og svo hafi sýningar- skrá þessa árs veriö frágengin. að hann hafi þá stefiiu að halda fjöl- listinni fram. Á sama tíma sé það orð- ið ljóst að málverkið sé hvarvetna í sókn, en í samtökum listamanna ráði um þessar mundir fjöllistamenn öllu. • Áratuga einræði Einar gagnrýnir einræðisvald for- stöðumanna í rekstri stóru listasafn- anna: „Tíu ára ráðning í stóru söfnun- um getur hreinlega útilokað tiltekna listamenn frá sýningarhaldi. Það er skattfé borgaranna sem er notað á þennan hátt og þetta hefur gríðarleg áhrif á myndlistina, að ekki sé talað um afkomu tiltekinna myndlistar- manna." Hann talar um tveggja ára- tuga útilokun frá sýningum í sölum borgarinnar undir stjórn Gunnars Kvaran og Eiríks Þorlákssonar. Sótti aldrei um Eirfkur Þorláksson | segir ekki rétt að um- [ sókn Einars hafi verið l hafnað. Hún hafi aldrei borist. Einar . hafi ritað borgar- ráði bréf, en það sé I ekki pólitísk stjóm á ' Listasafni Reykjavík- ' ur. Einar hafi síðan ' skrifað menningar- málanefnd sem hafi bent honum bréf- lega á að ákvörðunarvald um sýningar í sölum Listasafns Reykjavíkur liggi hjá for- stöðumanni. Þegar beiðni Einars hafi borist með svo óformlegum hætti hafi þegar verið fullskipað í alla sali safnsins og verk- efnaslö-á skipulögð fyrir allt þetta ár í samræmi við starfsreglur. Eiríkur segir Einar hafa í mörg ár staðið í stríði við forstöðumenn Lista- safns Reykjavíkur. Hann hafi sjálfur á sínum tíma verið forstöðumaður Listasafnsins þegar það laut pólitískri stjórn og hafi líka starfað sem listráðu- nautur, en hafi verið ósáttur við stefnu saínsins og stjórnendur um árabil. Gömul deila Deila Einars við stjórn Listasafns Reykjavfkur er eitt af dæmum frá liðnu ári um flokkadrætti í hópi myndlistar- manna. Má í því sambandi minna á umræður um sýningahald Kjartans Guðjónssonar, starfslaunaumsókn Tryggva Ólafssonar og óánægju með val á myndlistarmönnum í sýningar Listahátíðar sem Jessica Morgan stýrði og Bragi Ásgeirsson hefur gagn- rýnt. Því má halda fram að sumir myndlistarmenn séu settir hjá í sýn- ingahaidi stóru safnanna. Það hefur um langt skeið ríkt sú stefna í stjórn- un listastofnana að þar væru einstak- lingar alls ráðandi. Tuttugu ára starfsferill í leikhússtjórastóli getur haft afgerandi áhrif um feril lista- manns. Sama er uppi á teningnum í myndlist. Eru tilteknir myndlistar- menn af eldri kynslóðinni hvorki nógu fínir né merkilegir til að þeim sé sinnt með sýningaraðstöðu og starfs- launum? Ef sagan leiddi það í ljós þegar lengra væri frá liðið væri það ljótur blettur á starfsferli embættis- manna. Hljómskálagarðurinn Sýning Einars er á sömu slóðum og Studentafélagið rak Tívolí sitt á stríðs- árunum til fjáröflunar fyrir byggingu stúdentagarða. Þá voru í Hljómskála- garðinum nokkur sýningartjöld og þyrptust bæjarbúar þangað þúsund- um saman. Tiltæki stúdenta varð tii þess að hugmyndin um skemmtigarð varð að veruleika nokkrum árum seinna í Vatnsmýrinni þar sem Tivolí- garðurinn reis. Á sömu slóðum hafa hátíðahöld á vegum íþrótta- og tóm- stundaráðs verið skipulögð sautjánda júní. Tiltæki Einars vekur því aftur þá spumingu hvort Hljómskálagarðurinn geti nýst betur sem samkomusvæði fyrir borgarbúa. Síðustu ár hafa hug- myndir verið á kreiki um að gera garð- inn nýtilegri fyrir borgarbúa, en garð- yrkjustjóri segir að samkvæmt rann- sóknum hafi borgarbúar mestan áhuga á að skrúðgarðar borgarinnar verði kyrrðarstaðir. Takist Áströlum aö koma Óperuhúsinu í Sidney á heimsminjaskrá má telja víst aö ýmsar byggingar fái sömu stöðu. Það yrði mikill áfangi fyrir þá sem vilja vernda eldri byggingar. Óperuhús á heimsminjaskrá Óperuhúslð í Sidney Hiö óvenjulega lag hússins, sem minnir á skeljar, hefur kallað fram margar athugasemdir I tlmans rás, en nú vildu allir Lilju kveðið hafa efhúsið kemst á heimsminjaskrá Unesco eins og áströlsk stjórnvöld vilja. Ástralskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Óperuhúsið í Sidney væri komið á varðveisluskrá yfir menningarverðmæti áströlsku þjóðarinnar. Þessi ákvörðun er fyr- irboði þess að ríkisstjóm Ástraiíu leggi fram ósk við Unesco, menn- ingarstofnun Sameinuðu Þjóðanna, að óperuhúsið verði sett á skrá yfir menningarverðmæti mannkynsins - heimsminjaskrána. Þetta em nokkur tíðindi. Bygg- ingin væri þá ef af yrði yngst þeirra svæða og bygginga sem skilgreind yrðu á þann veg. í Ástralíu segja menn í dag að upphaf byggingar- innar hafi reynst þáttaskil í menn- ingu og sjáifstæðisvitund þjóðar- innar. Stefna Ástralir á að koma húsinu á menningarskrá Unesco fyrir 2007 en þá verða fimmtfu ár liðin frá því farið var að reisa húsið. Undirbúningur hússins stóð all- ar götur frá því hugmyndinni var fyrst varpað ffarn af tónskáldinu Eugene Goossens á fimmta ára- tugnum. Ástralir vom þá snauðir af sameiningartáknum hafandi allar götur frá upphafi landnáms hvltra manna þar í álfu verið hjálenda Bretlands. Hugmynd um óperuhús í Sidney þótti í þá tíð hlægileg, þrátt fyrir að þjóðin ætti listamenn á því sviði sem nutu alþjóðlegrar viður- kenningar. Það var svo 1956 sem efnt var til alþjóðlegrar samkeppni um húsið. 233 tillögur bámst frá arkitektum í 33 löndum og bar danskur arkitekt, Jörn Utzon, sigur úr býtum í keppninni fyrir afar óvenjulegar hugmyndir og hófst byggingin. Hún var fjármögnuð með happa- drættispeningum en var ekki lokið fyrr en 1973. Þá hafði Utzon sagt sig fíá verkinu eftir linnulausar deilur við stjómvöld um frágang hússins. Það var svo fyrst í fyrra að samning- ar tókust milli hans og stjórnvalda um að byggingin verði klámð eftir hans vilja. Utzon er enn á lífi en hefur aldrei séð húsið, þó það sé talið hans helsta verk. Úrtöluraddir hafa löngu þagnað og er húsið nú eitt helsta kenniieiti álfunnar, borg- arinnar og þjóðarinnar sem for- smáði það á löngum byggingartím- anum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.