Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005
Menning DV
Lars Tunbjörk. Með góðfúslegu leyfi Ijósmyndarans og Ljósmyndasafns Reykjavíkur
Afhjúpaðir Svíar
Lars Tunbjörk ljósmyndari opn-
ar sýningu í Ljósmyndasafninu í
Grófarhúsi í dag. Sýningin sam-
anstendur af verkum úr myndaröð-
unum Ríki í uppnámi og Heima.
Þessar myndaraðir tilheyra þríleik
sem hófst með bókinni Landet
utom sig/ Ríki í uppnámi frá 1993
sem nú þykir orðin sígild meðal
áhugamanna um ljósmyndun. í
verkum sínum hefur Lars skoðað
veruleika okkar daga eins og hann
birtist í starfi og leik, á opinberum
vettvangi og nú síðast á heimilinu.
Tunbjörk hefur rannsakað og
ljósmyndað samfélagið eins og það
hefur þróast síðustu tvo áratugi og
eiga verk hans sér enga hliðstæðu í
sænskri ljósmyndun eða eins og
segir í frétt safnsins: „Á þessu tíma-
bili var hinu sænska velferðarríki
rótgróinna hefða og rígbundins
skipulags umtumað svo úr varð
auðvaldssinnað og alþjóðavætt
neyslusamfélag þar sem blái og
guli liturinn í þjóðfánanum em
ekki þekkjanlegir lengur. Fáir
sænskir ljósmyndarar hafa haft
eins víðtæk áhrif á starfsbræður
sína á jafn stuttum tíma og Lars
Tunbjörk gerði með myndafrá-
sögnum sinni í Stockholms-Tidn-
ingen, Metallarbetaren, Mánads-
journalen og Upp&Ner. í kjölfar út-
komu bókarinnar Ríki í uppnámi
hlotnaðist Tunbjörk svo einnig al-
þjóðleg viðurkenning."
Lars er stjarna í heimi ljósmynd-
unar. í seinni tíð
hafa birst reglulega
myndir eftir hann í
helstu tímaritum
heimsins og má
segja að New York
Times Magazine sé
hans helsti miðill.
Öland eftir Lars frá
1991 Hann bregður
nýju og skýru Ijósi d
veruleika sænska vel-
ferðarsamfélagsins sem
hefur hratt horfið fró
sinum rómuðu velferð til
skuggategri tíma.
Homunc Poeta Eitt verka Malcolms
Green d sýningunni i Kling & Bang.
Greená
Laugavegi
í dag opnar breski myndlist-
armaðurinn Malcolm Green
sýningu á verkum sínum í Kling
& Bang á Laugaveginum. Sýn-
inguna nefnir hann Banners
Bright og verður hún opin fram
til 25. september. Malcolm er frá
suðurhluta Englands en hefur
búið í Þýskalandi um tveggja
áratuga skeið. Hann stundaði
nám í dansi og sálarfræði á átt-
unda áratugnum og var einn
þáttakenda í Whitechapel Open
sem málari. Þá var hann j félagi
_, við Genesis P. Orridge, sem síð-
ar gerðist stofnandi Psycic TV
sem hingað kom sællar minn-
ingar. Malcolm starfaði sem
dansari og danshöfundur í Aust-
urríki og Þýskalandi fram til
1990, en rak á sama tíma Atlas
Press, útgáfufyrirtæki í London
sem gaf út framúrstefnutexta
ýmiss konar: expressjónisma,
dada og súrrealisma, aksjónista-
texta og fluxus-skrif.
Það var í gegnum starfsemi
Atlas að hann kynntist Dieter
Roth sem hvatti hann til sýn-
ingahalds og stóð fyrir hans
fyrstu sýningu. Á sýningunni í
Kling & Bang gallerí sýnir
Malcolm prentaða refla, sem
hann byrjaði að vinna á milli ár-
anna 1999 og 2004. Myndefnið
er unnið út frá hans daglegu
upplifunum og teikningum í
sldssubækur sem urðu að eins-
konar dagbókum. í fyrstu voru
myndimar unnar í stærðunum
30,48 x 30,48 á jámplötur þar
sem helstu atriði myndarinnar
vom hömmð út aftan frá. Eftir
margar myndir áttaði Malcolm
sig á að harm hafði ómeðvitað
unnið myndimar í þessari stærð
sem var nákvæmlega sama
stærð og LP-plötuumslög. Eftir
þessa uppgötvun áttaði hann sig
einnig á tengingu milli sinna
mynda og plötuumslaganna, þar
sem textinn er hluti myndarinn-
ar á sama hátt og myndin tekur
áhrif sín frá textanum. Malcolm
notar texta og myndefni á sinn
hátt, þar sem myndefnið breytir
merkingu og innihaldi textans
^ogsvo öfugt.
Sumar og haust renna saman í starfi íslenska dansflokksins. Hann er nýkominn úr
sýningarferðalagi með We are all Marlene FOR um Evrópu og dansarar flokksins eru
virkir á Reykvísku danshátíðinni sem nú stendur yfir í Borgarleikhúsinu. Æfingar
eru hafnar á verkefnum haustsins en framundan er annasamt ár flokksins. Nýjar sýn-
ingar í undirbúningi, komur gestaflokka og samstarf við Leikfélag Reykjavíkur.
Annjr íslenskg dansflnhksins
Innlond og utlond
íslenski dansflokkurinn er flagg-
skip íslenskra listdansara. Þrátt fýrir
að flokkurinn sé smár og hafi ekki
mikil efni hefur stjómendum hans
tekist að marka sér skýrt starfssvið,
bæði á heimavelli og ekki síður í út-
löndum, en flokkurinn er víða vel-
komirm til sýninga. í fyrra fór hann
með sýningar til ellefu borga í Evrópu
og Miðausturlöndum. Bar þar hæst
ferðir með Viö erum öil Marlene
Dietrich FOR eftir Emu Ómarsdóttur
og Emil Hrvatin. Á komandi ári held-
ur ferðalagið áfram með sýningum í
Danmörku, Ítalíu, Finnlandi, Svíþjóð
og víðar.
Heimavöllur
Starfið hér heima er kjaminn í til-
vem flokksins. Á þessum vetri flytur
hann fjögur frumsamin verk, tvö
þeirra eftir unga íslenska karla, dans-
höfunda sem semja sín fyrstu verk
fyrir íd á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins og tvö verk eftir þekkta erlenda
höfunda, Didy Veldman og Rui
Horta. Horta hefur starfað með
flokknum áður, en kemur og semur
verk fyrir sýningu flokksins í febrúar.
Þá verður eldra verk hans Pocket
Ocean, æft að nýju og sett upp í byrj-
un nóvember ásamt frumfluttum
verkum eftir þau Jóhann Frey Björg-
vinsson og Filippíu Eh'sdóttur, og
Peter Anderson.
Nóvembersýningin
Þau Jóhann Björgvinsson og Fil-
ippía Elísdóttur hafa átt gott samstarf
fýrr á þessu ári í tveimur sýningum, í
MinK og BanK og á Listahátíðaropn-
un. Nýtt verk þeirra tveggja ber heitið
Wonderland eða Undraland: „Við
erum öh tílgerðarleg og angistarfuU,
algjörlega föst í eigin heimi fuU af
ómeðvitaðri, ofbeldisfuUri spennu og
tómleika. Bæði í helvfti og lúmnaríki.
Algjör óreiða, fegurð og martröð"
segir f staðhæfingu þeirra um efrii
verksins. Davíð Þór Jónsson semur
tónlist fyrir Undralandið.
Peter Anderson hefur um langt
skeið verið ein helsta stoð flokksins,
kraftmikiU og hamslaus dansari.
Hann hefúr um nokkurt skeið sinnt
danssmíði og verk hans á nóvember -
sýningunni kaUar hann Critic’s
choice?Gagnrýnendur hrökkva í kút:
þetta er kómískt verk um danshöf-
undinn, dansarann og gagnrýnand-
ann og andstæðar hugmyndir um
hvað listin stendur fyrir. Verkið er
samið við tónhst eftir Lou Reed.
Haf í vösum okkar
Rui Horta samdi Pocket Ocean
fyrir íd 2001 og hefur flokkurirm sýnt
verkið í Reykjavík, Ottawa og Toronto
í Kanada og í Salisbury á Bredandi.
Þar leUcur Horta sér með þverstæður:
haf rúmast ekki í vasa, en við þráum,
hvert og eitt, að fanga hafið. „Við
erum aUtaf að seUast eftir því ómögu-
lega," segir Horta, en hans lærdómur
er að það er ferðin sem skiptir máU
ekki áfangastaðurinn.
Horta er eirm af athyghsverðustu
danshöfúndum í Evrópu. Harm er
portúgalskur að uppruna, en hefur
starfað mikíð á alþjóðlegum vett-
vangi, einna helst í Þýskalandi þar
sem dansflokkar hans S.O AP. og Rui
Horta Stageworks voru með bæki-
stöðvar á tíunda áratugnum. Auk
þess að semja verk og sýna með eigin
hópum hefur Horta samið verk fyrir
Gulbenkian baUettinn, CuUberg baU-
ettirm, BaUet du Grand-Théatre de
Genéve, Opera Dortmund, Opera
Númberg og Opera Linz meðal ann-
arra. Hann ætlar nú að semja nýtt
verk fyrir flokkinn sem verður frum-
sýnt í febrúar.
Góðir gestur
í lið með Horta og flokknum slæst
hoUensk kona, Didy Veldman, sem
hefur starfað sem dansari við Scap-
ino BaUet í HoUandi, BaUet du grand
theatre í Genf og Rambert dance
company. Hún samdi sitt fyrsta verk
árið 1987 fyrir Scapino BaUet, en síð-
an hefur hiin meðal armars samið
fyrir BaUet du grand theatre í Genf,
Rambert dance company, Les Grand
BaUets Canadiens, Gulbenkian, GuU-
berg, Northern BaUet Theatre, New
Zealand BaUet, Komische Oper Berl-
in, Scottish Dance theatre og fleiri.
Hún mun semja annað þeirra
tveggja verka sem frumsýnd verða í
febrúar. Bæði njóta þau Horta alþjóð-
legrar viðurkenningar og er það enn
einn áfangi íd í alþjóðlegu starfi að ná
þessum kröftum hingað tíl starfa.
Bæði verkin em heimsfrumsýningar.
Sambúð með Leikfélagi
Reykjavíkur
í nágrenni við Leikfélagið hafa
þróast upp samstarfssvið utan kaffi-
stofú, reykherbergja og matsalar. í
janúar leggur íd sitt í stórsýningu LR
á Carmen. Þar verða dansarar með
leikurum á sviði og söngvumm í nú-
tímalegri útfærslu á Carmen.
Þá heldur áfram samstarfi flokk-
anna tveggja um 25 tíma dansleik-
hús, samkeppni LR og íd sem er nú
haldin í fjórða sinn í leikárslok
Trans Danse Europe
Þetta verkefni ernúað renna sitt
skeið: það hófst 2003 og skyldi
standa íþrjú ár. Það fóist i að
þróa og semja ný og spennandi
dansverk, styrkja dansumhverfi i
Evrópu og leiða saman evrópskt
danslistafólk. Verkin voru að lok-
um sýnd í sjö borgum Evrópu.
I maí mun Islenski dansflokkurinn
ísamvinnu við Listahátíð bjóða
upp á gestasýningar frá þremur
löndum. frá Belgíu koma Nicole
Mossoux and Patrick Bonté með ,
Helium, frá Póllandi koma
Magdalena Reiter og Leczek
Bzydl með Forma interogativa &
Magnolia- Danir senda hingað
Obstrucsong frá Granhoj Dans i
Árósum. Trans Danse Europe
2003-2006 nýtur stuðnings
menningaráætlunar Evrópusam-
bandsins, Culture 2000.
Danslist
Danssmiðja
Á síðasta leikári stofnaði Dans-
flokkurinn danssmiðju. Þar fengu Jó-
hann Freyr Björgvinsson og Karen
Maria Jónsdóttir að spreyta sig. Nú
verða það þær HaUa Ólafsdóttir og
Aðalheiður HaUdórsdóttir sem fá
næði og aðstoð tU að koma hugverk-
um sínum á koppinn.
íd lagðist í strákaleit í vetm sem
leið. Ungum strákum var boðið að
finna dansarann í sér. Það verkefni
heldur áfram í vetur í samstarfi við
gmnnskólana og verður strákum í
elstu bekkjum gnmnskóla boðið upp
á skemmtílegt kynningamámskeið í
dansi sem lýkur með keppni.
Flokkurinn hefur um nokkuð
langt skeið unnið skipulega að kynn-
ingu listdansins í grunnskólum í
þeirri vissu að þannig skapaðist
grunnur að nánari kynnum að þessu
listformi sem víða um lönd kallar tíl
sín hópa ungs fólks.
Opið hús hjá Sinfó
Þá byrjar baUið, nýtt starfsár
hefst og SinfóníulUjómsveitin okkar
býður landsmönnum öUum í heim-
sókn tU sfn í dag frá klukkan 13 tU
16.
Hljóðfæraleikararnir verða í öll-
um sölum Háskólabíós, sýna sig og
sín hljóðfæri, segja frá, spUa og
svara spumingum gesta. Klukkan
14.30 hefst skemmtun í stóra saln-
um, þau Birta og Bárður úr Stund-
inni okkar stjóma herlegheitunum
og skemmta krökkunum. Vfldngur
Heiðar Ólafsson, einn efnUegasti
pfanóleikari landsins, leikur píanó-
konsert nr. 2 eftir Sjostakovitsj og
hljómsveitin spreytir sig á verkum
eftir P.D.Q. Bach, Gershwin og
Copland.
AUir gestir geta sett nafn sitt í
pott og úr honum verða dregin nöfn
fjögurra heppinna einstaklinga sem
halda heim með áskriftarskírteini
fyrir alla fjölskylduna að Tónsprot-
anum, tónleikaröð fjölskyldunnar.
Veitingar em í boði hússins! AUir
em velkomnir á meðan húsrúm
leyfir og aðgangur er ókeypis.