Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1953, Síða 6

Freyr - 01.02.1953, Síða 6
38 F R E Y R erfiðleikar og óhöpp, sem sótt geta að bónd- anum, en heyþrota bóndi þarf hann aldrei að verða. Og þið ungu bændur! Þið þurfið að læra af annarra óhöppum og árekstrum! ★ Úr því að ég minnist á vetrar- og vor- harðindi, verð ég að geta um þau hryggi- legu fyrirbæri, sem ég — og vafalaust fleiri — urðu varir við, þegar heyþrotavandræð- in stóðu sem hæzt, og til allra var leitað, sem eitthvað áttu aflögu; brugðuzt flestir vel og drengilega við hjálparbeiðnum, en til voru menn, víða um sveitir, er neituöu hinum aðþrengdu heyþrota-heimilum um alla hjálp, og áttu þó miklar heybirgðir, sem engar líkur voru til að þeir sjálfir þyrftu að nota það vor. Það þarf meira en meðal kaldýðgi til slíks. Hjá þeim mönn- um býr — vægast sagt — hinn lágsigldi hugsunarháttur smámennskunnar. Þótt við, í hita augnabliksins og stund bræð- innar, segjum og gjörum ýmislegt, sem vítavert getur talist, þá er oftast hægt að finna slíku málsbót nokkra. En þegar menn, óreiðir, að hugsuðu yfirlögðu ráði, neita meðbróður um hjálp í ítrustu nauð, en næg' geta er til að láta í té — það útilokar sæmd, heiðarleik og drengskap, enda í hæzta máta ónorrænt háttalag. Slíkir menn standa berskj aldaðir og griðlausir gegn hörðum dómum. Munið það ungu menn að eiga ætíð út- rétta hönd til handa nauðleitarfólki. Hún er alltaf sígild vísa alþýðuskáldsins skag- firzka, Siguröar Guömundssonar, frá Heiði, þar sem hann segir: „Synjaðu snauðum sízt um brauð, sért’ ótrauður gjafa. Það eru gauð, sem neit’ í nauð, nokkurn auð þó hafa.“ Þegar ég var 8—9 ára drengstubbur, var ég mjög handgenginn gömlum uppgjafa óðalsbónda. Hann hafði verið sígefandi og stórgjöfull. Þar til voru sannanir nægar. Hafði hann stundum gefið tvær kýr mjólk- andi úr fjósi sínu í senn, þeim, er höllum fæti stóðu gegn óhöppunum. Ég réðzt eitt sinn að honum með þessa nærgöngulu spurn: Hví ertu alltaf að gefa hinum og öðrum? — Það var bjart ham- ingjublik í dökkum, góðlátlegum augum hans er hann leit til min og sagði: „Mér var þetta bæði nautn og skylda.“ Þetta skildi ég ekki og spurði aftur: „Færðu þá ekkert fyrir þetta, sem þú ert að láta fólk fá?“ Aftur leit hann til mín og brosti tann- lausum munni, hló stuttum, hálfklökkum hlátri og sagði: „Jú, busi minn — ég fékk íyrir það.“ „Nú, fékkstu þá peninga fyrir það?“ spurði ég áfjáður. Hann svaraði: „Ónei, en ég fékk mörg: Guðlaun og þau eru einhversstaöar geymd.“ Nú varð mér orðfall. í þessari rökfærzlu skildi ég heldur lítið þá, en síðan hefir mér, held ég, skilizt, að það getur verið nokkurs um vert að eiga hlýhug og blessunarorð annarra, einhversstaðar í námundi við sig. ★ Þá skal ég sveigja nokkrum orðum að því, sem ég að framan nefndi gamlar búmanns- og búkonu-dyggðir. Gamlar tel ég þær vegna þess, aö nútíma unga fólkið — og raunar stór hluti hins fullorðna líka — metur þær að heldur litlu, enda þótt þess- ar dyggðir hafi verið, séu og verði alla tíð, jafn nauðsynlegar hagsæld, lífsþrifum og mannsæmd. Á ég hér við hverskyns þrifnað, reglusemi, hófsemd, nýtni, fegr- unarhneigð og vinnusemi. -— Þessar mann- legu skyldudyggðir eru hver annarri ná- tengdar og miklu geta þær átt dýpri ræt- ur og víðtækari en margan grunar til að undirbyggja farsælt mannlíf. Hverskyns þrifnaður einstaklinga og þjóðarheildar er með réttu talinn eitt gleggsta merki sið- fágunar og menningarþroska. Hann er hverrs manns nauðsyn. Þó veit ég hann engum betur fara, né nauðsynlegri vera, en búhjónum sveitanna og veldur það hve starf bændahjónanna er fjölþætt, yfirgripsmikið og ábyrgðarfulit. í

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.