Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1953, Blaðsíða 7

Freyr - 01.02.1953, Blaðsíða 7
FREYR 39 raun og veru er það svo, að mikill hiuti landbúnaðarframleiðslunnar ckapar að stórum hluta heilsu og lífshreysti, — ekki einasta heimalýðs bændanna, heldur og öllum þeim, er bæ og borg byggja. Þrifnaður getur verið, og er, marghátt- aður. Ég fer ekki út í að skilgreina það hugtak, veit þið skiljið hvað ég meina. Vit- ur maður hefir sagt, að þrifnaður sé ná- skyldur guðrækni. Náskyld og nærri óað- skiljanleg þrifnaðinum er hirðumennskan og reglusemin. Þessi vökula manndyggð, með síopin augu fyrir því að ætla hverjum hlut sinn stað, hverju verki og hverju viki ákveðinn tíma. Ég býst við að þið hafið veitt því athygli, hversu mikil óþægð, erfiðleikar og óham- ingja stafar oft af hirðuleysinu, trassa- mennskunni. Vil ég í því sambandi benda ykkur á gamla spakmælið: „Byrgið brunninn áður en barnið er dott- ið ofaní.“ Ég býst líka við, að ykkur mörgum sé að meira eða minna leyti ljóst hver geysi mun- ur er oft á vinnu-afköstum fólks. Vitanlega kemur þar margt til greina, en mestu hygg ég þó að þar um valdi — eða geri mismun eftirkastanna — verkleg skipulagshæfni, rétt handtök og reglu- bundnir hættir við hvert verk. Þeim sem lærst hefir að meta kosti þrifa- mennsku og hirðuháttu, og temja sér slíkt í öllum verknaði, fá venjulega, í ríkum mæli, notið fegrunargleðinnar. Á hófsemina minnist ég, ekki vegna þess, að ég telji íslenzkt bændafólk standa þar mjög höllum fæti, heldur vegna hins, að góð vísa er sjaldan of oft kveðin. En það er vitað, að stór hluti þjóðarinnar er hald- inn fordæmanlegri óhófshneigð, sem um ófyrirsjáanlegan tíma hlýtur að skapa þrengingar og giftuleysi. Hófsemi skapar æfinlega farsæld og and- legan þroska. Hófleysið aftur á móti lífs- leiða og mannskemmd. „Skömm er óhófs- æfi.“ Nýtnin er náskyld hirðuseminni og sézt furðu mörgum yfir þau sannindi, að smæð- in byggir stærðina. Engum ætti að vera þau sannindi ljósari en bóndanum, er hann at- hugar líf og viðgang gróandans og dýralífs- ins, er hann daglega hefir umgengni við. Þess utan hefir gagnslaus eyðing og tor- tíming þeirra efna, sem verðmæti geta skapað, mikinn snert frumstæðrar villi- mennsku. Allar þessar nefndu dyggðir, ásamt ýmsum happasælum fylgidyggðum, undirbyggja að verulegu leyti eina stærstu hamingju mannlegs lífs, vinnugleðina. Ég þekki enga hollari nautn en þá, sem vinnugleðin skapar. Bóndi, sem ræktar, byggir og fegrar, — bóndi, sem eygir bætt- ari hag, — bætta lífsmöguleika fyrir nútíð og framtíð, vex fyrir átök sín og erfiði. Hann á vísa hamingju athafnagleðinnar og það einkennilega er, að því meira sem hann þarf á sig að leggja til að sigrazt á erfið- leikunum, ná settu marki, því ríkari verð- ur gleði hans að fengnum sigri. Dr. Guðmundur Finnbogason segir ein- hversstaðar: „Það að vita og sjá farsæla af- komu unnins dagsverks er að hafa góða samvizku.“ Vafalaust hafa allir heyrt talað um heppnina. Ef til vill hafa sumir hlotið ein- hver persónuleg kynni af henni — þessari „slembilukku“ — sem talið er að fylgi ein- um frekar en öðrum. Ég vil vara ykkur við að treysta um of tryggð hennar og fylgi við ykkur. Að vísu neita ég ekki, að í okkur — og í námunda við okkur — geti verið eitthvað, sem nefna mætti „heppni“, „lán“, eða „lukku“, en á hitt vil ég benda ykkur, að það sem margir telja heppni eða hendingu hjá þessum eða hinum, og skapar þeim meiri hagsæld og farsælli afkomu en fjöldanum, er ekki fyr- ir neina tilviljunarkennda heppni, heldur aðallega vegna hins, að þeim hefir, með ákveðnum sjálfsvilja, hnitmiðuðum, tíma- bundnum ákvörðunum, tekizt að eygja og grípa tækifærin öðrum fremur — þessara örfleygu möguleika, sem oftast þarf bæði skjótræði og áræði til að geta fest hendur á og notfært sér. Það getur stundum oltið á miklu að vera glöggur að sjá réttan leik á því borði. Happ fæst ekki með hiki. „Þú vissir ei að þig gisti í gær, hið gullna augnablik,“ segir skáldkonan frá Hömrum. Þið megið ekki — ekki einn einasti ykkar,

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.