Freyr - 01.02.1953, Qupperneq 9
FRE YR
41
Búskapurinn á Röjkum
Að hætti, er gerist í landi því, sem Matt-
hías kallaði
„Brosandi land,
fléttað af sólhýrum sundum,
saumað af blómstrandi lundum“,
eru hjónin nefnd herra og frú Jensen.
Hjá Dönum er það fjölskyldunafnið, sem
allt er bókfært eftir, og er svo um allan
heim, enda annað ókleift þar, sem mann-1
mergð er mikil og torvelt þar sem hópur-
inn er takmarkaður eða lítill, eins og is-
lenzka þjóðin er.
Innan fjölskyldunnar, og á meðal kunn-
ugra, heita þau náttúrlega sínum skírnar-
nöfnum og eru að sjálfsögðu í daglegu tali,
þeirra á meðal, nefnd Helga og Niels, eins
og þau voru skírð. Bærinn þeirra •— og bú-
jörðin um leið — heitir Röjkum, í sókn-
inni Spjald, á Vestur-Jótlandi.
Eg gerði lykkju á leið mína, síðastliðið
sumar, til þess að heimsækja ungu hjón-
in. Þau keyptu jörðina í fyrra haust og
höfðu aðeins búið þarna í 9 mánuði þegar
ég kom til þeirra. Hann er bóndasonur úr
sókninni, en hún er lengra að norðan, alin
upp við algeng sveitastörf og sveitalíf og
allt það, sem gerist 1 danskri sveit. Þau eru
því samanvalið bændafólk, svo að veganest-
ið er að því leyti ágætt, enda þýðir ekkert
annað en vera góður fagmaður á sviði bú-
skaparins, í Danmörku, og eiga svo fram-
sýni og atorku í ofanálag, helzt í miklum
fannst einhverjir okkar hafa sýnt léttúð
eða alvöruleysi í eða gagnvart morgunn-
bænastund í skólanum. Hann sagði: „Það
getur verið, drengir mínir, að ykkur finn-
ist nú, að þið getið án guðstrúar verið, en
ég segi ykkur, að þar — og hvergi nema
þar — verður ykkur traustsins að leita,
þegar skuggarnir sækja á lífshiminn ykk-
ar eða fyrir fæti þyngist."
mæli, ef vel á að ganga. Og ungu hjónin á
Röjkum óska þess náttúrlega að búskapur
þeirra gangi vel og hyggja að leggja allt
sitt fram til þess að svo geti orðið. Er því
ástæða að gera sér grein fyrir ■— kynnast
því ögn — hvernig þau búa og hvernig þau
hafa stofnað til búskaparins.
Er þá rétt að segja fyrst frá því, hvernig
þau hafa búið sig undir þau hlutverk, sem
nú eru og verða þeirra.
* * *
Efri hluli myndarinnar sýnir íbúðarhúsið á Röjkum,
en á bak við má greina hlöðuna.
Ncðar sézt gafl íbúðarhússins, þá fjósið og hlaðan
lengst til hcegri.