Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1953, Side 10

Freyr - 01.02.1953, Side 10
42 FRE YR Þess var getið, að Niels — við köllum hjónin auðvitað skírnarnöfnum að okkar sið — sé bóndasonur úr sókn þeirri, er hann nú býr í. Þar var hann upp alinn við algeng bústörf heima hjá föður sínum. Víst hefir hann farið að heiman til þess að vinna hjá öðrum bændum. Enginn þykir geta orð- ið augandi bóndi né hæfur til að stjórna búi þar í landi, nema hann hafi unnið hjá einum eða tveim bændum — fyrirmyndar bændum — auk þess að hafa unnið heima. Það er svo margt, sem er öðruvísi en heima og sjálfsagt að kynnast því hvernig aðrir haga athöfnum. Það er oft hægt að læra af því líka, sem er frumstæðara eða allt öðru vísi en það, sem maður hefir alizt upp við. Þetta gerði Niels, eins og aðrir ungir menn, sem framtaki og hugsjónum eru gæddir. Og svo fór hann í alþýðuskóla, sem heitir Rys- linge, á Fjóni. Það var veturinn 1946—47. í skóla þeim er íslenzkur íþrótta- og fimleika- kennari, Jón Þorsteinsson, frá Dalvík. Með hans aðstoð og milligöngu komu nokkrir ungir piltar til sveitastarfa hér á íslandi, ár- in 1946—50. Einn hinna fyrstu, sem Jón vist- aði hingað, var Niels. Hann var heilt ár hér á landi, að Brautarhóli í Svarfaðardal, og gat sér þar hið bezta orð fyrir ástund- un, dugnað, fyrirhyggju, hirðusemi og aðra mannkosti. Auðvitað gat Niels ekki lært landbúnað úti á íslandi, en hann játar, eins og ýmsir aðrir, sem að heiman fara og kynn- ast allt öðru fólki og allt öðrum skilyrðum en þeim, sem búið hafa við frá æsku, að ótrúlega margt megi af því læra. Og eitt er víst: Niels á hlýjar minningar frá dvöl sinni hér á landi, þó að landið okkar sé kald- ara og stundum varla eins brosandi og landið hans. En Niels var ekki við því búinn að hefja búskap eftir dvölina hér. Gerðist hann ráðs- maður eftir að héðan var komið, dvaldi síð- an eitt ár á sænskum búgarði. Fór í kynn- isför til Hollands og svo í bændaskóla. Og þar var hann svo heppinn að kynnast Helgu, sem var ráðskona við matreiðsluna, en hafði áöur verið í alþýðuskóla og hússtjórn- arskóla. Þau bundu trúss sín saman. Og svo keyptu þau Röjkum í fyrra haust og fóru að búa. if Eg hafði ekki tíma til að stanza nema fyrri hluta dags, en notaði hann svo vel, sem unnt var til þess að skoða byggingar, bústofn, akra og ekrur. Danir telja land sitt í tunnum, en nafnið segir eiginlega til um tunnur sáðkorns, sem þurfi til sáningar. Ef danskur bóndi segir að hann hafi 4 tunn- ur lands, rófnaakur, þýðir það sama og að umrædd spilda krefjist fjögurra tunna af útsæðiskorni, ef um kornrækt væri að ræða. Ein tunna lands er sama og 0,55 ha. Má af því ráða, að 2 tunnur lands eru 1,1 hekt- ari. Landstærðin á Röjkum er 60 tunnur eða með öðrum orðum 33 hektarar, en af því er 50 tunnur plægt land, hitt er hús og garður, melhóll og skurðir ásamt vegum og álíka skæklum og svo engjahorn. — Hér er sendið land, segir Niels þegar við löbbum út um akrana ,og hér, af þess- ari skák, sem er um 3 ha að stærð, varð uppskeran ekki nema 15 tunnur af korni í fyrra haust, segir hann og bendir yfir landsneið, sem liggur nokkuð hátt og virð- ist þurr. — En ég bar vel á í vor, bætir hann við, og nú hefi ég kartöflur í allri skákinni. Eg vona ég fái góða uppskeru af henni í haust. Ég fékk traktor að láni og setti nið- ur með vél. Ég var ekki nema dag að því. — En þú hefir nú unnið fram á kvöldið, skýt ég inn í. — Já, það var víst komin nótt þegar við vorum búin, en það lítur út fyrir meira en sem svarar 15 tunnum korns af spildunni í sumar, enda þarf ég þess með. Niels gat þess í bréfi nú í nóvember s.l. að hann hafi fengið 850 tunnur af kartöfl- um af spildunni í haust. — Þú hefir 50 tunnur lands ræktaða jörð, segi ég. Hvernig notar þú það nú? — Jú, sjáðu! Fyrst eru nú 6 tunnur lands með kartöflum. Svo eru rófur í 8 tunnum. Og svo rækta ég korn. Það eru 2 tunnur lands með rúg og aðrar tvær með byggi og 16 tunnur lands blandað korn.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.