Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 Fréttir DV Krónan klekk- ir á Miðfelli Elías Oddsson, fram- kvæmdastjóri rækjuverk- smiðjunnar Miðfells hf. á ísafirði, segir að tekjumissir iyrirtækisins vegna sterkrar stöðu krónunnar sé um 200 milljónir króna á ári. Elías segir í viðtali við bb.is að upphæðin nemi um það bil tvöföldum launakostnaði Miðfells. „Það hljóta allir að sjá að þessi gengisþróun get- ur ekki gengið öllu lengur,“ segir hann við bb.is. Miðfell gekk í gegnum nauðasamn- inga í sumar. Þar starfa um 40 manns. Eh'as segir að þró- un gengismála sé að gera rekstur útflutningsfyrirtækja nærri vonlausan. Þorfinnur á Fréttastöðina Þorfinnur Ómarsson hefur verið ráðinn til 365 ljósvakamiðla. Þar mun hann sjá um þátta- gerð á Frétta- stöðinni sem mun hefja út- sendingar innan nokkurra vikna. Stöðinni verður stjórnað af Ró- berti Marshall en meðal annarra nýrra starfsmanna verða Ágúst Bogason blaðamaður og Þórhildur Ólafsdóttir út- varpsmaður. Þorfinnur hef- ur mikla reynslu af starfi í fjölmiðlum og var um skeið forstöðumaður meistara- náms hagnýtrar fjölmiðlun- ar við Háskóla íslands. Verð í lágvöru- verslunum Ragnhildur Guörún Guð- mundsdóttir, formaöur mæörastyrksnefndar. „ Veröið er mjög misjafnt eftir vöruflokkum. Þaö er lágt verð á sumu en hærra á ööru. Það er mikilvægast að verðið lækki á nauðsynjavörum eins og matvöru og hreinlætisvöru. Ég held að það sé svigrúm til þess og það mundi koma fjöl- skyldunum ílandinu til góðs." Hann segir / Hún segir „Efþað er rétt sem haldið hef- ur verið fram, að verslanakeðj- ur haldi uppi verðinu í lág- vöruverslunum, þá eru þessar sömu keðjur um leið að gefa öðrum færi á að komast inn á markaðinn og bjóða lægra verð." Friöbjörn Orri Ketilsson frjálshyggjufrömuöur. Ofbeldismennirnir þrír í Garðabænum hafa allir verið úrskurðaðir í gæsluvarð- hald. Höfuðpaurinn Tíndur Jónsson verður í fangelsi þar til á föstudaginn. Tindur hefur áður verið dæmdur fyrir líkamsárásir og leitaði sér sálfræðihjálpar á síðasta ári þegar dómur yfir honum féll. Þórður Kárason, félagi Tlnds Partiið var haldið heima hjá honum í Bæjargilinu. Tindur er meö honum á myndinni. Bæjargil i Garðabæ Hér varpartlið haldiö. Indur leitaði sálfræöihjálpar vegna ottældi sfíknar Rauf skilorð í sveðjuárásinni í Garðabæ Segist saklaus og mótmælti gæsluvarðhaldi Var dæmdur í fyrra fyrir tvær líkamsárásir Höfuðpaurinn í sveðjuárásinni í Garðabæ, Tindur Jónsson, leitaði sér sálfræðihjálpar eftir að hann gerðist sekur um gróf ofbeldisbrot á síðasta ári og var dæmdur í héraðsdómi. Á mánudagskvöld var Tindur ásamt tveimm félögum sínum úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir árásina í Garðabæ aðfaranótt sunnudags. Tindur segist sak- laus og mótmælti gæsluvarðhaldsúrskurðinum. Samkvæmt gæsluvarðhaldsúr- skurðinum þarf Tindur að gista fangageymslur til 7. október. Félagar hans tveir, Þórður Kárason og Helgi Guðmundsson, verða í gæsluvarð- haldi til 5. október. Drengimir eru all- ir átján ára gamlir og hafa allir komið áður við sögu lögreglunnar og eru í klíku sem kallar sig Tuddarnir. Árásin í Garðabæ var hrottaleg. Tindur notaði sveðju sem vopn þeg- ar hann skar og barði jafnaldra þeirra fyrir utan heimili Þórðar í Bæjargili. Skallaði og barði dreng Höfuðpaurinn í klíkunni, Tindur Jónsson, var á síðasta ári dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir lík- amsárásir og fíkniefnabrot. Tindur var aðeins 16 ára þegar hann framdi brotin. Hann réðst á 17 ára dreng á Laugaveginum, skallaði hann í and- litið og sló með krepptum hnefa. Hann réðst einnig ásamt félaga sín- um á annan dreng fyrir utan versl- unarkjarnann Garðatorg í Garðabæ. Sparkaði í andlit hans þar sem drengurinn lá í sárum sínum. Leitaði sér hjálpar í dómnum kemur fram að Tind- ur játaði brot sín skýlaust. Hann væri ungur að árum og hefði stund- að nám af dugnaði eftir að hann framdi brotin. Auk þess hefði hann leitað sér sálfræðihjálpar vegna of- beldisbrotanna; eitthvað sem metið er til refsilækkunar í málum sem þessum. Dómurinn var skilorðsbundinn til tveggja ára og er því ljóst að Tind- Flestir sem DV ræddi við sögðu það aðeins tímaspursmál hvenær einhver félli í valinn af völdum hans. ur hefur rofið skilorðið með atlögu sinni síðustu helgi. Gengur með hnúajárn Þrátt fyrir sálfræðihjálpina hefur Tindur ekki fetað beinu brautina frá því að hann var fyrst dæmdur. Auk árásarinnar um síðustu helgi hefur hann ferðast um landið ásamt félög- um sínum í klfkunni og leitast við að auka hróður sinn í undirheimunum. Þannig er hann þekktur fyrir að ganga með hnúajárn á sér; sögur fara af árás hans með skrúfjárni á síðustu Menningarnótt og flestir Gat á hausnum Tindurmeiddist I einu afpartium Tuddanna. sem DV ræddi við sögðu það aðeins tímaspurs- mál hvenær einhver félli í valinn af völdum hans. Það munaði litlu í Garðabæ síðustu helgi. Fórnarlambið Einar Magnússon, sem skor- inn var með sveðju, er kominn af spítala. simon@dv.is Tindur Jónsson ofbeld- ismaður Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna sveðjuárásarinnar. Tindur segist saklaus Jóhannes Rúnar Jóhannesson hæstaréttarlögmaður, var skip- aður lögmaður Tinds Jónssonar í sveðjuárásarmálinu. Jóhannes segir Tind hafa mótmælt gæslu- varðhaldsúrskurðinum sem kveðinn var upp seint á sunnu- dagskvöld. „Hann mótmælti úr- sleurðinum og segist saklaus," segir Jóhannes Rúnar. Lögreglan í Hafnarfirði rannsakar enn málið en árásarvopnið er ófund- ið. „Það nýjasta er að drengimir eru komnir í gæsluvarðhald. Rannsókn málsins stendur yfir," var það eina sem Lögreglan í Hafiiarfirði sagði um málið í gær. DV kærir utanríkisráðuneytið til úrskurðanefndar um upplýsingamál Leynd um diplómatísk vegabréf Fyrir helgi óskaði DV eftir upp- lýsingum um það frá utanríkisráðu- neytinu hverjir hafa fengið dipló- matísk vegabréf og þjónustuvega- bréf í tíð Davíðs Oddssonar sem ut- anríkisráðherra. DV hefur ástæðu til að ætla að farið hafi verið frjálslega með útgáfu slíkra bréfa og hugsan- lega farið á svig við reglur um slík vegabréf. Málið var í höndum Helga Gísla- sonar prótókollmeistara ráðuneytis- ins. Hafði hann í fyrstu ekkert á móti því að senda DV lista yfir handhafa slíkra bréfa. Enda virðist hér um formsatriði að ræða. En svo virðist sem babb hafi komið í bátinn og í gær barst blað- inu fax frá Helga þar sem hann hafn- ar umræddri ósk um þessar upplýs- ingar. í bréfi Helga er meðal annars vísað í lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Ekki Utanrikisráðuneyt- ið Starfsmenn ráðu- neytisins lúra á upp- lýsingum I lengstu lög verður með góðu móti séð að listi yfir handhafa diplómatískra vegabréfa flokkist sem persónulegar upplýsingar. Því hefur DV gripið til þess ráðs að kæra höfnun utanrfkis- ráðuneytisins til úrskurðarnefnd- ar um upplýs- ingamál. Sú nefnd heyrir undir forsætis- ráðuneytið og er formaður hennar Páll Hreinsson. í nefndinni sitja jafnframt Frið- geir Björnsson og Sigurveig 4 Jónsdóttir. Davíð Oddsson Leynd ríkir um hverj- ir fengu diplómatlsk vegabréfí hans tið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.