Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 1 7 Latir Hafnfirðingar Mjög dræm þátttaka var í Evrópskri samgönguviku meðal íbúa í Hafnarfirði. Þetta kom fram á fundi Þjónustu- og þróunarráðs Hafnarfjarðar- bæjar í gær og því ljóst að Hafnfirðingar hafi ekki verið tilbúnir að leggja einkabíln- um um tíma. Guðjón Ingi Eggertsson verkefrússtjóri Staðardagskrár 21 mætti á fundinn og fór yfir bæði undirbúning og þátttöku í samgönguvikunni. Þrátt fyr- ir leti bæjarbúa tóku grunn- skólar bæjarins allir þátt í samgönguvikunni á ein- hvem hátt að sögn Guðjóns. Spá minni viðskiptahalla Fjármálaráðuneytið segir í nýrri þjóðhagsspá fyrir árin 2005 til 2007 að upp- sveifla efnahagslífsins verði í hámarki og að hagvöxtur haldist áfram mikill í ár og á næsta ári meðan stór- iðjuframkvæmdir em enn umfangsmiklar. Árið 2007 dragi úr hagvexti vegna samdráttar í framkvæmdum og innlendri eftirspum. Á næsta ári dragi úr einkaneyslu og hægi á hagvexti. „Með auknum álútflutningi og samdrætti í innflutningi mtm viðsnún- ingur í utanríkisviðskiptum einkenna hagvöxtinn árið 2007. í langtímaspánni er gert ráð fyrir að viðskipta- hallinn dragist hratt saman með minnkandi stóriðju- framkvæmdum." Skólabörn með matar- eitrun Sex böm vom flutt á heilsu- gæslustöðina á Egilsstöðum á föstudaginn en þau höfðu öil verið í heimilisfræðitíma í Egilsstaðaskóla rétt áður en þau veiktust. Bömin jöfn- uðu sig að mestu eftir um tvo tíma og mun ekki ekki verða meint af. Starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Austur- lands tóku sýni úr allri mat- vöm sem bömin höfðu neytt og sendu til Umhverf- isstofnunar til greiningar en niðurstöður liggja ekki enn fyrir. Heimilisfræðikennsla í skólanum mun þó halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Svövuþing í Kennó I tilefni þess að Svava Jakobsdóttir, rithöfundur og alþingismaður, hefði orðið 75 ára á morgun verður haldið Svövuþing í Kennaraháskóla íslands þann dag þar sem fjallað verður um sögur Svövu í kennslu- fræðilegu sam- hengi. Svava hafði mikil áhrif á jafn- réttisbaráttu á liðinni öld og mótaði umræðu í ís- lensku samfélagi með skrif- um sínum og störfum á Alþingi. Meðal þeirra sem taka þátt í dagskránni em Vigdís Finnbogadóttir, Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Dóttir viH svipta föður sinn fjárræði vegna ótrúlegrar eyðslusemi hans. Hún segir áfengissýki föður hennar, sem næstum hefur dregið hann til dauða, um að kenna. Faðirinn eyddi 105 milljónum á þremur árum. 1 Haestiréttur Q. ; ; V’ j I Visaði málinu íSPp lafturihérað. $ 1 í 1 fE?; 1 f MH HH pq-f . | I iqo- cTíKyíf I wK i^Éfc >- 1 . . l.. - Jl Hæstiréttur ómerkti á fimmtudag úrskurð héraðsdóms í merki- legri deilu feðgina um fjár- og sjálfræði föðurins. Faðirinn, sem þjáist af áfengissýki, hefur á þremur árum eytt rúmlega 105 millj- ónum af 120 sem hann fékk fyrir að selja fyrirtæki sitt árið 2002. Faðirinn skuldar enn söluskatt af þeirri upphæð sem hann hefur eytt. Sú skuld mun að öllum lfldndum falla á fyrrverandi eiginkonu hans. Sem dæmi um óhóflega eyðslu mannsins var bent á í héraðsdómi að hann hefði í febrúar á þessu ári eytt um sjö milljónum króna af bankareikningi sínum án þess að geta greint á nokkurn hátt frá því í hvað peningarnir fóru. Þessa eyðslu- semi játaði faðirinn í héraðsdómi en benti hins vegar á að um þremur milljónum af þeirri fjárhæð hefði verið stolið undan kodda í leiguher- bergi hans. Nær dauða en lífi Fyrir liggur að vísa eigi föðurnum úr þessu sama leiguherbergi vegna hrikalegrar umgengni, ofdrykkju og óþrifnaðar. Samkvæmt leigusala hans hefur ítrekað komið fyrir að maðurinn hafi gert þarfir sínar á göngum húsnæðisins og það án þess að þrífa saurinn upp eftir sig. Sökum þessa og gríðarlegrar of- drykkju seinnihluta ágústmánaðar var maðurinn loks færður nær dauða en lífi í afvötnun. Áfengissýki um að kenna Við það fékk dóttir mannsins loks nóg og fór fram á að faðir hennar yrði sviptur sjálfræði og fjárræði. Dóttirin féltk því framgengt í héraðs- dómi að faðirinn yrði sviptur ijár- ræði og sjálfræði í eitt ár vegna hinn- ar óhóflegu eyðslu sem hún heldur fram að sé sprottin af áfengissýki hans. Faðirinn gerði í raun engar at- hugasemdir við þá kröfu og barðist verjandi hans Brynjar Níelsson því ekki gegn henni í héraðsdómi. Skipti um skoðun Föðumum snérist hins vegar hug- ar eftir að hann útskrifaðist úr afvötn- unni og krafðist þess að niðurstöð- unni yrði áfrýjað. Hæstiréttur ómerkti því á fimmtudag úrskurð héraðsdóms á þeim forsendum að engin læknis- fræðileg vottorð hefðu verið lögð fram sem sýndu fram á áfengissýki. Hæstiréttur vísaði málinu aftur í hérað þar sem læknisfræðileg gögn um áfengissýki mannsins verða lögð fram og hann að öllum lfldndum aft- ur svipur sjálfræði og fjárræði. andri@dv.is Magnús sagður skorta reynslu Enginn Hafnar- fjarðarbrandari Magnús Ólafsson leikari ætlar að pólitík." sækjast eftir bæjarstjórastóli í próf- kjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Magnús hefur litla reynslu af stjórn- málum en segist hafa verið sjálf- stæðismaður alla tíð og búa að góðri reynslu sem bæjarstjóri Latabæjar. „Það kom mörgum á óvart að ég ætlaði að fara í fyrsta sætið en ég vil gera þetta með stæl. Ég er tilbú- inn að ganga í hvert hús og safna undirskriftum," segir Magnús sem flutti til Hafnar- ,' - fjarðar fyrir fjörutíu árum. „Þá kom ég bænum á kortið með Hafnarfjarðar- bröndurunum og nú finnst mér tími til kominn að setja Hafnarfjörð enn frekar á kortið í gegnum Gissur Guð- I mundsson Finnst \aö Magnús ætti I aðnásérí reynslu. Magnús Ólafs Upphafsmaður Hafnarfjarðar- brandaranna. Gissur Guð- mundsson, bæjarfulltrúi sjáífstæðis- manna í Hafn arfirði, segir að allir hafi jafnan rétt til framboðs og með framboði Magnúsar megi sjá lýðræðið í hnotskurn. „Það hafa all- ir sömu möguleika, en mér finnst nú samt að menn eigi að ná sér í reynslu áður en þeir fara svo langt," segir Gissur án þess að gefa neitt út á hvort [hann styðji Magnús eður ei. „Sjálfur er ég búinn að vera í þessu í tólf ár og alltaf að læra eitthvað nýtt," segir Gissur. Árný og Kristinn bíða sálfræðimats Komin á geðlyf vegna álags Árný Eva Davíðsdóttir og Kristinn Finnbogi Kristjánsson, sem misstu forræðið yfir tveimur börnum sín- um á Akureyri fyrr í sumar, bíða nú eftir sálfræðimati til að hægt að verði að leiða forræðisdeilu þeirra og Barnavemdarnefndar Akureyrar til lykta. Þau hafa þegar farið til sál- fræðings og sagði Kristinn Finnbogi að hann byggist við að matið yrði tfl- kynnt 15. október. Kristinn sagði að hann og Árný Eva væru bæði komin á geðlyf sem væri auðvitað slæmt. „Það er verið að pína okkur og draga á asnaeyrun- um," sagði Kristinn. Hann sagði að sonur þeirra hefði haldið upp á tveggja ára af- mæli sitt I fyrradag og þau hefðu aðeins fengið að hitta hann í tvo tíma. Við fengum ekki einu sinni að ráða afmæl- isgjöfinni," sagði Kristinn. Árný Eva og Krist- inn Finnbogi Komin ágeðlyfvegnaálags.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.