Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Börn að leik Ekki eru öll börn svo hep,
m að fá að alast upp hjá kynforeldrum
sinum þóað þessi séu í þeim hópi. Myn
in tengist ekki efni fréttarinnar.
[ Steinunn í Nylon
°g Sigurður Kaiser
Skulda aldraðri konu
tveggja mánaða
húsaleigu.
Tæknifrjóvganir og ættleiðingar erlendis frá hafa leitt til þess að Barnaverndar-
stofu gengur verr en áður að finna börnum langtímafóstur. Ekki er ljóst hvernig
brugðist verður við.
Minnihluti í
eina sæng
Framsóknarflokkurinn
og Samfylkingin í Garðabæ
hafa samþykkt að bjóða
fram sameiginlegan lista í
bæjarstjómarkosningunum
næsta vor. Á félagsfundum
beggja flokkanna var ákveð-
ið að efna til sameiginlegs
opins prófkjörs um efstu
sætin eigi síðar en 31. janú-
ar. Það verður einnig opið
fyrir fólk utan flokka. Próf-
kjörið verður bindandi í
þrjú efstu sætin. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur nú hreinan
meirihluta í bænum með
fjóra bæjarfulltrúa af sjö.
Skítkaldur
september
Nýliðinn september-
mánuður var sá kaldasti
síðan 1982. Meðalhitinn í
Reykjavík mældist aðeins
6,3 gráður sem er rúmri
gráðu kaldara en í meðal-
ári. Meðalhitinn á Akureyri
var mun lægri, aðeins 4,7
gráður. Það er 1,6 gráðum
kaldara en í meðalári. Það
sætir einnig tíðindum að
snjó festi á Akureyri 24. og
25. september en það er
einungis í sjötta skiptið síð-
an 1940 sem snjó festir þar
í septembermánuði. Þar að
auki var úrkoman á Akur-
eyri rúmlega tvöfalt meiri í
september en í meðalári.
Árni verðlaun-
arfyrirsam-
einíngu
Árni Magnússon félags-
málaráðherra tilkynnti í
gær á málþingi við Háskól-
ann á Akureyri að allt að 2,4
milljörðum króna yrði varið
til að styðja við þau sveitar-
félög sem kjósa að samein-
ast. Félagsmálaráðuneytið
hefur haldið mikilli sam-
einingarstefnu á lofti og vill
með þessu hvetja sveitarfé-
lög til að sameinast. Horft
verður til verkefna sveitar-
félaganna, þess þjónustu-
framboðs sem þau bjóða og
hvað þurfi að efla í fram-
haldinu.
H Bragi Guðbrands-
B son Forstjóri Barna-
1 verndarstofu stendur
I frammi fyrir nýjum
§ vanda vegna breyttra
i samfélagshátta.
Breyttir samfélagshættir, tæknifrjóvganir og ættleiðingar hafa
leitt til þess að Barnaverndarstofa stendur frammi fyrir alvarleg-
um skorti á fósturforeldrum.
„Hér erum við að tala um lang-
tímafóstur; varanlegt heimili fyrir
böm til fullra átján ára. Hins vegar
höfum við getað svarað eftirspum
varðandi tímabundið fóstur," segir
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Bama-
vemdarstofu. „Ástæðan fyrir því að
við verðum að koma bömum í fóstur
er yfirleitt alltaf sú sama; að kynfor-
eldrar geta ekki annast uppeldið sjálf-
ir og þá oftast vegna veikinda þó að
stundum séu foreldar sviptir bömum
sínum,“ segir Bragi og ítrekar að
sviptingar séu mun fátíðari en aðrar
ástæður þegar koma þarf bömum í
fóstur.
Margfalt meðlag
Hefð er fyrir því að fósturforeldrar
fái greitt meðlag með fósturbömum
og þá yfirleitt tvöfalt meðlag: „Þó er
allur gangur á þessu. Sumir vilja ekki
„Sumir vilja ekki neitt
ámeðan aðrírfá
kannski sex- eða sjö-
falt meðlag en þá er
það vegna fatlaðra
barna sem þurfa
mikla umönnun
neitt á meðan aðrir fá kannski sex-
eða sjöfalt meðlag en þá er það vegna
fatlaðra barna sem þurfa mikla um-
önnun," segir Bragi sem er nýkominn
ffá Sviþjóð þar sem hann tók þátt í
opnun Bamahúss að íslenskri fyrir-
mynd sem Svíadrottning hefur beitt
sérfyrir.
Breyttir tímar
Bragi Guðbrandsson nefnir
tæknifrjóvganir og auðveldara að-
gengi að ættleiðingu erlendis frá
sem helstu skýringar á þeim skorti á
langtímafóstri sem Bamaverndar-
stofa stendur nú frammi fyrir. Fyrir
tíu til fimmtán ámm var langtíma-
fóstur oft eini möguleiki þeirra sem
ekki gátu eignast börn til að fá slíkt
og ala upp. En nú er öldin önnur.
Bragi segir ekki ljóst hvernig bmgð-
ist verði við en þau börn sem þurfi
að koma í langtímafóstur em nú í
skammtímafóstri þar til úr rætist
hvernig eða hvenær sem það verður.
Leigusali Steinunnar í Nylon og sambýlismanns hennar vill fá greidda leigu
Nylon-stúlka borgaði ekki leigu
„Ég veit ekkert um þetta. Ætli þetta
sé ekki misskilningur," segir Steinunn
Þóra CamiUa Sigurðardóttir Nylon-
stúlka. Öldmð kona, leigusali Stein-
unnar og Sigurðar Kaiser sambýlis-
manns hennar, hefur stefnt parinu
fyrir dóm vegna vangoldinnar leigu.
Magnús Helgi Ámason, lögmaður
leigusalans, konu á sjötugsaldri, segir
að málið snúist um tveggja mánaða
leigu sem parið hafi ekki borgað. „Því
er málið þingfest fyrir dómi. Umbjóð-
Hvað liggur á?
andi minn á íbúð sem þau búa í en
hafa ekki borgað leiguna. Það hefur
líka verið einhver vandræðagangur á
þeim. Ferðalög og þess háttar og því
var farin þessi leið," segir Magnús
Helgi sem mætti ásamt umbjóðanda
sínum í Héraðsdóm Reykjavíkur á
föstudaginn.
Nylon-parið var hvergi sjáanlegt.
Sigurður Kaiser er kærasti Stein-
unnar. Hann er einnig þekktur at-
hafnamaður, rekur Loftkastaiann en
sá rekstur hefur glímt við fjárhagsörð-
„Það ermikið framundan en það liggursvo sem ekkert á,“ segir Ásgeir Sigurvinsson landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu karla en liðið mun á morgun halda til Varsjár og leika við Pólverja á
föstudagskvöld og Svía á miðvikudag.„Við erum að fara seinna en vanalega. Viö erum vanir
að fara fyrr á leiki. Erum að reyna að stytta þessa ferð. Við erum því I andstöðu við að liggja á,
við erum mjög rólegir. Þetta verða tveir erfiðir leikir, eins og fyrir alla leiki vona menn að þeir
standi sig vei."
ugleika. Steinunn Þóra skaust upp á
stjömuhimininn þegar hún gekk í
hina vinsælu stúlknahljómsveit
Nylon. Þar gegnir hún burðarhlut-
verid. Þykir bera af í söng sínum og
hefur heillað bæði unga sem aldna
með sviðsframkomu sinni og fallegu
brosi.
Sigurður Kaiser sagðist í samtali við
DV í gærkvöld vera búinn að greiða
umrædda skuld með rafrænum hætti
en vildi þó koma því á framfæri að
honum þætti það skrýtið að vera
dreginn fyrir dóm vegna tveggja
mánaða leiguskuldar. „Menn þurfa
ekki að haga sér eins og í villta vestrinu
og fara fyrir dóm þegar hægt er að
leysa málin á einfaldari hátt."
Magnús Helgi Ámason, lögmaður
leigusalans, segist vona að farsæll
endir fáist á þetta mál. „Þetta
snýst um ein-
hvem 150 þúsund
kall. Hann þarf þó
að greiða eins og
annað."
simon@dv.is
WK