Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Side 15
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 15
„Elín hefur fregnað það eftir óformlegum leiðum að málinu gegn Minus Group
verði vísað frá dómi því að rannsóknin standist ekki nema að litlu leyti þær kröfur
sem gera verður til þess að hægt sé að dómtaka málið."
„Það er þá hennar klúður og mér óviðkomandi."
„Já, að vissu marki. Ríkislögreglustjóri getur fyrir sitt leyti vísað ábyrgðinni á yfir-
mann efnahagsbrotadeildar. En í þínu tilviki er erfitt að benda á einhvern annan
blóraböggul."
„Ég kem þessu máli ekkert við."
„Við erum búnir að ræða það mál,“ sagði Gestur Oddleifsson. „Oft og mörgum
sinnum ráðlagði ég þér að láta ógert að hjóla í Magnús Mínus með einhverju of-
forsi. Maður á að sæta færi. En þú hafðir þitt fram."
„Ég hef hvorki talað við ríkislögreglustjóra né
skrifað henni til að fara fram á þessa rannsókn,
svo að það er tómt mál að éetla að bendla mig
við þetta," sagði Jökull.
„Það er nú svo," sagði Gestur. „Fjölmiðlar
og almenningsálitið halda því fram að þessi
rannsókn sé undan þínum rifjum runnin og
hafi verið framkvæmd til þess að þóknast
þér. Fjölmiðlar og almenningur eru sá dóm-
stóll sem stendur hæstarétti ofar og ekki þarf
neinar sannanir. Þú fékkst fjölmiðlana á móti
þér með þessu vanhugsaða ijölmiðlafrumvarpi.
Það sáu allir að það var hefndaraðgerð en ekki
skynsamleg lagasetning til að takmarka eignarhald
á fjölmiölum.Þetta erum við búnir að ræða. Og ég
var líka búinn að vara þig við því að setja af
stað þessa herferð gegn Magnúsi. Hún
var ótímabær og hefur í för með sér Davíð Oddsson Þráinn virð■
ótímabærar afleiðingar. [...] istforspárþviforsætisráðherr-
ann í bókinni flýr i Seðlabank-
ann þegar óveðrið skellur á.
•o
I
Q
Þú fékkst fjölmiðlana á móti þér
með þessu vanhugsaða fjölmiðla-
frumvarpi. Það sáu allir að það
var hefndaraðgerð en ekki skyn-
samleg lagasetning til að tak-
marka eignarhald á fjölmiðlum."
Durgurinn í
Bændaflokknum
Gestur leiddi þessa spurningu hjá sér. Hann var vanur að þykjast ekki taka eftir reiðiköstum
vinar síns.
„Gott og vel," sagði JökuU. „Ég er hvort sem er orðinn þreyttur á að eiga að bera ábyrgð á
öllum hlutum. Ég er búinn að gera mitt. Ég segi af mér viku fyrir næsta landsfund."
„Ég mundi ekki bíða svo lengi," sagði Gestur Oddleifsson. „Óveðrið er skoliið á."
„Hvað mundir þú láta þetta bíða lengi?"
„Til morguns. Eg mundi í þínum sporum kalla saman miðstjórnina og þingflokkinn í
hádeginu og boða svo til blaðamannafundar klukkan tvö."
Jökull hugsaði sig um. Með hjálp Gests var hann vanur að vera fljótur að taka ákvarðanir.
„En hvað með Seðlabankann?"
„Björn Ingvar seðlabankastjóri og formaður bankaráðs verður sjötugur á næsta ári. Hann
er til í að hætta um næstu mánaðamót. Ég var að tala við hann."
„En hver á að taka við forsætisráðuneytinu?"
„Við látum Bændaflokkinn taka við því, og nýi forsætisráðherrann byrjar á því að skipa þig í
Seðlabankann. Það er betra en að okkar flokksmaður þurfi að gera það."
„Ertu viss um að durgurinn geri það?" spurði Jökull.
„Ef sá draumur hans að verða forsætisráðherra rætist?" sagði Gestur.
Sýslumaður vísar ásökunum kartöflubónda á bug
Lögreglan sýndi ekki
of mikla hörku
„Ég sé ekki mikla ástæðu til að
tjá mig um þetta mál," segir Kjart-
an Þorkelsson, sýslumaður á
Hvolsvelli, um samskipti lögregl-
unnar á svæðinu við kartöflubónd-
ann Karl Rúnar Ólafsson.
DV greindi frá því á miðviku-
daginn í síðustu viku að fjórir lög-
reglubflar voru sendir að bæ Karls,
Lyngási, til að fylgja eftir máli sem
tengdist hraðakstri hjá vinnu-
manni Karls. Lögreglan taldi Karl
vera ósamvinnuþýðan og enduðu
viðskipti þeirra á því að lögreglu-
menn réðust á Karl, keyrðu hann
niður í moldina svo að honum lá
við öngviti að hans eigin sögn. I
viðtali við DV lýsti Karl atvikinu
sem fólskulegri árás. Kjartan sýslu-
maður taldi lögregluna hins vegar
ekki hafa sýnt óþarfa hörku.
„Ég hef ekki hugmynd um það,"
segir Kjartan spurður um hvort
Karl sé búinn að kæra árásina eins
og hann sagðist ætla að gera.
„Þetta er allt í undirbúningi,"
var svar Karls þegar DV hafði sam-
band við hann í gær og spurði
hann sömu spurningar.
í viðtali við DV í síðustu viku
sagðist Karl vera óvinnufær eftir
atvikið, hann væri með brákaðan
putta, öxlin á honum væri úr sam-
bandi auk þess sem hann væri blár
og marinn á úlnliðunum eftir
handjárnin.
I
gær,
tæpri
viku eftir atvikið seg-
ist Karl enn vera
óvinnufær. „Ég er
eitthvað að reyna
að stjórna hérna
en ég get ekkert
unnið sjálfur,"
sagði hann og
bætti við:
„Þetta verður
stórmál."
í frétt af sölu húseignarinnar
Túngata 34 hér í blaðinu á laugar-
daginn gætti misskilnings. Sagt
var að hér væri um þekkt hóru-
hús að ræða frá gamalli tíð en svo
er alls ekki. Víðfrægt hóruhús við
Túngötu er á öðrum stað við göt-
una og leiðréttist þetta hér með.
Beðist er velvirðingar á þessu.