Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2005, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR4. OKTÓBEH 2005
DV Fréttir
Kettlinga vantar heimili
Þessir fallegu kettlingar, tveir strákar og ein
dama, eru í eigu Ijósmyndara okkar hér á DV,
Heiðu Helgadóttur. Þeir eru fimm mánaða og enn
heima hjá mömmu. „Þeir eru
yndislegir og ég vildi gjarnan
hafa þá en get bara alls ekki
haft fjóra fullorðna ketti,“ segir
hún og tekur fram að aðeins
gott fóik sem gerir sér grein
fyrir hvað það er að taka
að sér gæludýr, komi til
greina. Ef einhvern
ábyrgan langar í fallega
kisu og er tilbúinn að
veita henni gott heimili, þá
má hringja í Heiðu í síma 697 8663.
MOFf
Næstkomandi laugardag, 8. október,
stendur til að hundaeigendur gangi
saman um miðbæ Hafnarfjarðar. Með
því ætiar hundafólk að sýna samstöðu
en breytingar á reglugerð um hundahald
í bænum er í endurskoðun. í nýjum
drögum er gert ráð fyrir að ekki megi
ganga með hunda um miðbæinn yfir
sumartímann en því lýsa hundaeigendur
sig andsnúna. Lagt verður af stað klukk-
an 14 á laugardag frá Safnaðarheimilinu
við Strandgötu. í lok göngu verður bæj-
arstjóra afhent áskorun um að hunda-
eigendur verði með í að semja reglur
sem snúa að þeim sjálfum og að tillit
verði tekið til sjónarmiða þeirra.
Bergljót Davlðsdóttir skrifar
um dýrin sln og annarra á
þriðjudögum IDV.
Hundabúr - Hundabæli
Full búð af nýjum vörum.
30% afsláttur af öllu.
Tokyo gæludýravörur
Hjallahrauni 4 Opíö: mán. til fös. 10-18
Hafnarfiröi Lau. 10-16
s. 565-8444 Sun. 12-16
Husky-rakkinn Heimskauta Nætur Rökkvi kom sá og „sigraði“ á stórkostlegri hundasýningu Hundarækt-
arfélagsins í Víðidal um helgina. Árangurinn kom eigendum hans í opna skjöldu en bæði hann og þau
voru á sinni fyrstu en ekki síðustu hundasýningu. Rökkvi vann sinn tegundarhóp, komst í tíu hunda úr-
slit og fékk að auki íslenskt og alþjóðlegt meistarastig. Nokkuð sem ekki er öllum hundum gefið.
Einn nf tíu bestu á sinni fyrstu hundasýningu
„Árangur Rökkva á sýningunni
kom okkur stórkostlega á óvart og
setti okkur hálfgildings út af laginu
og spennti okkur upp úr öllu valdi,"
segir Sævar Hallvarðsson eigandi
Nætur Rökkva sem er rétt tveggja
ára og tók þátt í sinni fyrstu sýningu
um helgina.
Sævar og kona hans Ema Sif
veltu því aldrei fýrir sér að sýna
hann enda keyptu þau Rökkva fýrst
og fremst til að veita þeim ánægju
og gleði. Erna segir að mamma
hennar, sem sé mikil hundakelling
og eigi hunda, hafi alltaf verið að ýta
á þau að sýna hann en þeim fundist
það ástæðulaust. „Við vissum alltaf
að Rökkvi væri mjög flottur og það
var nóg fyrir okkur," bætir Sævar við
og Erna segir að þegar sú gamla hafi
gert sér lítið fyrir og skráð hann á
sýninguna um helgina hafi þau fall-
ist á að vera með.
Ræktandi Rökkva
Anna Franciska hjá Heimskauta-
ræktun hafi síðan tekið að sér að æfa
hann og sýna enda vön á því sviði. Á
laugardag mætti síðan öll fjölskyldan
á sýninguna og fylgdist með því
hvernig Rökkvi og Anna sópuðu að
sér verðlaununum. „Það var ótrúiega
gaman að fylgjast með kallinum okk-
ar vinna hvem flokkinn á fætur öðr-
um og enda síðan með því að vinna
tegundahóp fimm. Það var víst ekki
gefið og hefur ekki gerst í fimm ár að
mér skilst að Husky-hundur hafi sigr-
að tegundahópinn. íslenski hundur-
inn hefur borið þar höfuð og herðar
yfir aðra hunda og reynst þeim erfið-
ur. Það var því mikil gleði þegar ljóst
var að hann kæmist í úrslit sem einn
af tíu bestu hundum sýningar. Ekki
lítiU árangur það,“ segja þau Ema og
Sævar og klappa og mgla í hausnum
á Rökkva sem nú hefur smitað þau
ilfa af sýningarveikinni.
Æfa vel fyrir næstu sýningu
Rökkvi náði ekki að verða í hópi
fjögurra bestu og þau játa að þau
hafi verið dáiítið spæld. „Okkur
fannst hann langflottastur en norska
frúin sem dæmdi úrslitin var okkur
ekki sammáfa. En það var kannski til
of mikils ætlast að hann kæmi á sína
fyrstu sýningu og færi alla leið enda
er hann svo ungur og á margar
sýningar framundan," segir Erna og
„Það var ótrúlega
gaman að fylgjast
með kallinum okkar
vinna hvern flokkinn
á fætur öðrum og
enda síðan með því
að vinna tegundahóp
fímm."
það ískrar í henni. Hún segir að þau
Sævar ætli ekki að láta sig vanta á
næstu sýningu og nú liggi bara fyrir
að æfa Rökkva vel þannig að hann
sýni sig eins flott og mögulegt er.
Þau hafa verið mjög ánægð með
Husky-inn og em sammála um að
tegundin sé einkar skemmtileg.
„Hann þarf að fá mikla hreyfingu en
Husky-inn er fyrst og fremst vinnu-
hundur. Við höfum verið dugleg við
það og fömm með hann allt upp í 20
kílómetra á dag og veitir ekki af.
Rökkvi er enda mjög stæltur og glað-
ur hundur," segja þau, alveg í skýj-
unum yfir árangri hans.
I Glaesilegur hundur hlaðlnn við-
urkenningum Rökkvi fór á sína
fyrstu hundasýningu um helgina og
hér má sjá afraksturinn.
Sýningin HRFI til mikils sóma
Glæsileg hundasýning
Haustsýning Hundaræktarfélags
íslands fór fram um helgina með
miklum glæsibrag. Að þessu sinni
var hún haldin í Reiðhöilinni í Víði-
dal sem er mun stærri en höU Gusts
í Kópavoginum en þar hefur hún
jafnan verið haldin. Umgjörð þess-
arar sýningar var því öll önnur en
sýnt var samtímis í þremur hringj-
um. Þá vom í anddyrinu sölubásar
frá hinum ýmsu fýrirtækjum og var
hægt að gera góð kaup enda tUboðs-
verð í tilefni dagsins. í anddyrinu
vom deUdimar einnig með bása þar
sem tegundir vom kynntar og gafst
gestum tækifæri á að klappa og
stijúka hundunum og spyija út í eig-
inleUca þeirra og fá greinargóð svör.
Almennt vom gestir mjög
ánægðir með þessa tilhögun og
höfðu á orði hve gaman væri á
þessari sýningu. Undir það er heUs-
hugar tekið ef frá em taldir nokkrir
hnökrar sem vel má laga fyrir mars-
sýninguna. í fyrsta lagi var enginn
kynnir nema í lokin þegar úrslit
vom kynnt. Það kom í veg fýrir að
fóUc fengi nægar upplýsingar um
hvað væri að gerast inni í hringn-
um. Það kemur kannski ekki mikið
að sök fyrir þá sem þaulvanir em
sýningum af þessu tagi en þeir gest-
ir sem ekki eru vanir, veit ég fyrir
víst, vissu ekkert hvað var að gerast
og skildu hvorki upp né niður í hver
vann og hver ekki.
Þá em áhorfendur í nokkurri
fjarlægð og það er vonlaust að sjá
númer á sýnendum sem kemur í
veg fyrir að maður geti fylgst eins
vel með og maður vUdi. Þetta verð-
ur að laga fýrir næstu sýningu.
í þriðja lagi er það með ólíkind-
um að ritarar skuli ekki taka tölvu-
tæknina í sina þjónustu. Þannig
yrðu aUir dómar fljótritaðri, auð-
veldari til aflestrar auk þess sem
varpa mætti upp á skjávarpa upp-
lýsingum fyrir áhorfendur eins og
með einkunnargjöf og nafrii hunds
og eiganda.
Og í fjórða lagi mætti hinn ágæti
kynnir sýningarinnar temja sér að
nefna númer, nafn hunds og eig-
anda um leið og hann kynnir þá tU
leUcs. Það myndi veita margfalt
meiri ánægju og gefa áhorfendum
kost á að fylgjast með hundunum.
Þá mættu fylgja með fleiri upplýs-
ingar um hundana. Þá fyrst gætu
allir, bæði vanir og óvanir, notið
þess að fylgjast með.
| Afgan-hundur í fjórða
sæti Þessi glæsilegi hund-
urleri eigu VaigerðarJúi-
lusdóttur sem sýnirhann
hérí úrsiitum.
Chinest Crested, eða kínverskur
faxhundur eins og hann er upp á
íslenskuna, var í öðru sæti Sigríður
Sólveigardóttir á hana þessa en hún
vakti óskipta athygii áhorfenda fyrir þa
að vera ekki meðhárá kroppnum en
aöeins á fótum og á höfði.
Röskva, írskur úlfhundur, f úrslitum
Hann er engin smásmíði þessi en hann
er í eigu Sigurlaugar Hauksdóttur sem
þarna sýnir gripinn.
Nætur Rökkvi á fullri ferð með önnu
j Francisku Anna sýndi hann afar vel og
árangur hans var fábær eins og lesa má
hér á slðunni en það dugði ekki til að
komast i eitt affjórum fyrstu sætunum.
Vippet-tíkin Elding en eigandi
hennar er Gunnur Sif Sigurgeirs-
dóttir Hún laut i lægra haldi fyrir
Afgan-hundinum í tegundarhópnum
en hann var hundur sýningar i vor.