Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Síða 12
12 LAUCARDAGUR 8. OKTÓBER 2005
Fréttir OV
Kosið um
sameiningu
í dag fer fram kosning
víðs vegar um landið um
sameiningu fjölmargra
sveitarfélaga. í
hverju sveitarfé-
lagi fyrir sig
ræður einfaldur
meirihluti þeirra
sem taka þátt í
kosningunni
hvort viðkom-
andi sveitarfélag
sameinast við
önnur eða annað sveitarfé-
lag. Samþykki allra sveitar-
félaga þarf síðan í hverri
kosningu fyrir sig til að
sameining verði að veru-
leika. Sveitarstjórnir hafa
hvatt íbúa sína til að mæta
á kjörstað og greiða at-
kvæði sitt.
Hóta verk-
falli
Sjúkraliðar sem starfa
hjá Samtökum fyrirtækja
í heilbrigðisþjónustu
funduðu í gær vegna óá-
nægju þeirra með hversu
lengi hefur dregist að
ganga frá samningum
um kjör þeirra og önnur
starfsréttindi við Sjúkra-
liðafélag íslands. Fund-
urinn krafðist þess að
gengið yrði frá nýjum
kjarasamningi og að sá
dráttur sem orðið hefur -
á gerð nýs kjarasamn-
ings verði bættur starfs-
mönnum með ein-
greiðslu. Verði ekki
gengið að þessu ætla
sjúkraliðar að undirbúa
boðun verkfails.
Arngrímur
sýknaður
Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur sýknað Arngrím
Jóhannsson af 94 milljón
króna kröfu Norðmannsins
Anders K. Saether um van-
efndir á samningi. Saether
vildi fá dómstóla til að stað-
festa kaup Arngríms á
helmings hlut í fyrirtækinu
Scandinavian Historic
Flight, sem á og rekur sögu-
legar flugvélar eins og
þessa P-51 Mustang vél að
ofan. Vélarnar hafa verið
notaðar í kvikmyndir og við
flugsýningar.
Magnús Ólafsson. sem gefið hefur kost á sér í fyrsta sæti framboðslista Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði var í gær dæmdur fyrir fjársvik sem hann framdi þegar
hann var framkvæmdastjóri prentsmiðju. Magnús viðurkennir mistök sín en ætlar
ekki að láta þau stoppa sig. Hann vill verða bæjarsjóri Hafnarfjarðar.
„Ég er bara feginn að þessu máli sé lokið og vona að andstæð-
ingar mínir fari ekki að nota þetta gegn mér,“ segir Magnús
Ólafsson leikari sem var í Héraðsddmi Reykjaness í gær dæmd-
ur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fýrir íjársvik.
Magnús Ólafsson er einn þeirra
sem gefíð hefur kost á sér í fyrsta sæti
framboðslista Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði í næstu sveitarstjórnar-
kosningum og vill verða bæjarstjóri.
Magnús var lengi hvað þekktastur
fyrir túflcun sína á Bjössa Bollu og er
einn af ástsælli leikurum þjóðarinn-
ar. „Ég er nú líka búinn að vera bæj-
arstjóri í Latabæ svo lengi, þannig að
ég er ekkert blautur bak við eyrun í
bæjarpólitík,'' sagði hann við DV
þegar hann tilkynnti um framboð
sitt.
Viðurkennir mistök
Magnús framdi brot sín þegar
hann var framkvæmdastjóri prent-
smiðjunar Prisma - Prentco en fyrir-
tækið átti í miklum rekstrarerfiðleik-
um í september 2001 og fór á endan-
um í hausinn. Magnús er dæmdur
fyrir að hafa selt tæki sem ýmist voru
veðsett eða í eigu annarra. Tækin
sem Magnús seldi voru metin á
tugmilljónir króna.
„Þetta voru mistök að minni
hálfu, ég viðurkenni það," seg-
ir Magnús sem játaði öll brot-
in í héraðsdómi og var fyrir
vikið dæmdur í sex mánaða
skilorðsbundið fangelsi.
Lætur ekki
stoppa sig
Magnús Ólafs-
son segir þessar
fréttir þó engu
breyta um baráttu sína fyrir
fyrsta sætinu á lista sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði þrátt fyrir að
hann eigi von á að andstæðingar
sínir noti þær til að koma höggi á sig.
„Nei, ég læt þetta ekki stoppa mig. Eg
hef fundið fyrir miklum meðbyr og
nú er ég fyrst og fremst að hugsa
hvaða stefnumál ég eigi að bjóða
uppá," segir hann.
Bjössi bolla
Ws&n iMagnúserást- I
sæll leikari sem I
ætlar sér i pólitík. Fj
ap—
„Þetta voru mistök af
minni hálfu, ég viöur-
kenniþað."
Margvísleg stefnumál
Magnús hefur áður bent á að
honum finnist margir Hafnfirðingar
vera búnir að glata gleðinni.
„Ég vil koma bænum aftur á kort-
ið eins og ég gerði með Hafnarfjarð-
arbröndurunum hérna áður fyrr. Þá
fékk bærinn sko athygli. Ég er til
dæmis mjög hlynntur sameiningu
við Vatnsleysustrandarhrepp og sé
strax fyrir mér frábæra möguleika til
að gera svæðið að heilsubæ," segir
hann. Honum finnst að stjórnkerfi
bæjarins sé orðið of fjarlægt íbúun-
um og vill leggja til að koma upp
íbúaráðum til að fá fleira fólk inn í
skipulag framtíðarmála í Hafnarfirði:
„Því á endanum eru það við íbú-
amir sem borgum brúsann."
andri@dv.is
Magnús Ólafs- I
son JátaÖi brot
sín í héraðsdómi.
Auglýsingasímar DV
eru 550 5833
550 5811 8217514
Netfang okkar er
aualvsinaar@dv.is
Göngubrýr fyrir hundrað milljónir
Byggja dýrar brýr til framtíðar
Framkvæmdum við Hringbraut
fer senn að ljúka. Þá verða meðal
annars teknar í notkun tvær nýjar
göngubrýr sem ætlað er að tengja
Vatnsmýrina og Háskólann við mið-
borgina. Brýrnar tvær kosta um
hundrað milljónir króna.
Ólafur Bjarnason, aðstoðarsviðs-
stjóri framkvæmdasviðs Reykjavík-
urborgar, segir að þrátt fyrir að lítil
umferð gangandi vegfarenda sé um
svæðið í dag sé fyrirséð mikil upp-
bygging beggja vegna Hringbrautar
og þá muni sú umferð aukast.
„í skipulagi til framtíðar er lögð
áhersla á umferðaröryggi og góðar
tengingar bæði akandi, gangandi og
hjólandi vegfarenda. Ekki síst milli
Landspítalans og Háskólans."
Aðspurður um fjölda gangandi
vegfarenda á gatnamótum Hring-
brautar og Njarðargötu segir Ólafur:
„Fjöldi gangandi vegfarenda í
dag er enginn mælikvarði á slíka
umferð á komandi árum en bæði
gatnamannvirki og leiðir gangandi
vegfarenda er verið að byggja til
framtíðar." svavar@dv.is
Félagsheimili
seld eða leigð
Bæjarstjóm Fjarðabyggðar
ætlar að selja eða leigja félags-
heimilin Egilsbúð og Félagslund.
Einnig á að leigja eða selja þann
hluta félagsheimilisins Valhallar
sem áður hýsti bæjarskrifstofur
og myndasafn. Bæjarstjórnin
ætlar síðan að ræða nánar þau til-
boð sem bæjarstjóranum tekst að
afla og ákveða hvort tilboðum
verði tekið eður ei.