Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUfí 8. OKTÓBER 2005
Helgarblað DV
SAMANBURÐUR
Ingibjörg Hilmarsdóttur rekur verslunina Einu sinni var í
Fákafeni ásamt æskuvinkonu sinni Helgu Kristjánsdóttur.
Þær stöllur stækkuðu við sig í vikunni og opnuðu húsgagnaversl-
un þar sem þær leggja ríka áherslu á bömin og óskir þeirra.
Öll skemmtileg
ævintýri byrja á:
&imi/&inni/
„Það má segja að vinnan sé leikur
einn alla daga,“ svarar Ingibjörg og
hlær innilega aðspurð í hverju starf
hennar felist. „Við sérhæfum okkur í
vönduðum og öðruvísi leikföngum,"
segir hún áhugasöm og glaðlynd og
bætir við: „Margt að því sem er til
sölu hjá okkur muna foreldrar eftir
frá sinni barnæsku.“
Heilmikið ævintýri
„Allt sem við kaupum inn er sér-
valið og úthugsað. Við vorum að
stækka verslunina og bæta við
barnahúsgögnum.en þetta eru hús-
gögn sem hafa ekki sést hér á landi
áður,“ segir Ingibgjörg stolt en hikar
eilítið og bætir síðan við: „Algjör æv-
intýraheimur."
Þarfir barna í 1. sæti
„Reksturinn gengur út á að hlusta
gaumgæfilega á þarfir bamanna og
óskir þeirra," segir Ingibjörg og sýn-
ir okkur Disney-barnahúsgögn, litla
hægindastóla og falleg
prinsessunáttborð. „Við leggjum
mikla áherslu
á að börn
séu vel-
f Spáð í Ingibjörgu
Meyja - fædd 14. sept. 1966
Ingibjörg hneigist til að kasta sér aföllum mætti út I
verkefni sln miðað viö stjörnu hennar og það má
jafnvel kalla hana þráhyggjufulla og áráttugjarna
(I jákvæðum skilningi) en þannig fólk virðist
einmitt ná góðum árangri þegar nýsköpun og
rekstur er annars vegar. Hún er hörkudugleg við
að ná þvl sem hún einsetur sér og það er öruggt
að til lengri tima litið sigrar hún.
Ingibjörg Kröftug
kona sem veit hvað
islensk börn vilja.
komin til okkar og að þeim finnist
alltaf gaman hjá okkur," útskýrir
hún og það er áberandi hvað hún er
afslöppuð í kringum unga viðskipta-
vini sína sem skoða, snerta og pmfa.
„Einu sinni var á að vera eftirsóknar-
verður staður fyrir börnin og mikil-
vægt að starfsfólkið okkar skilji þarf-
ir og óskir þeirra."
Hugsa nokkra leiki
fram í tímann
Farsæll rekstur? ,Ætli það sé ekki
að byrja á að vera með góða hug-
mynd og hugsa nokkra leiki fram í
tímann áður en lagt er af stað í ævin-
týrið.Við unnum að okkar hugmynd
um Einu sinni var í heilt ár áður en
við stofnsettum leikfangaverslun-
ina. Þessi stækkun er hluti af áætl-
uninni sem við gerðum í upphafi,"
segir hún ánægð og brosir fallega. Af
hverju nafnið Einu sinni var? „Það er
einfalt svar," segir hún hlæjandi og
er eflaust vön að svara spuming-
unni. „öll skemmtileg ævintýri byrja
á Einu sinni var.“
elly@dv.is
Bryndís hefur eflaust heillað Jón Baldvin fyrst
er augu þeirra mættust. Þegar stjörnur þeirra
sameinast verða þau fær um að rækta hvort
annað um aldur og ævi á einstaklega róman-
tískan og jákvæðan máta.
Heilluðust þegar angu
þeipra mættust!
Unaður og rómantík
einkennir náið tilfinninga-
samband þeirra svo sann-
arlega ef marka má stjörn-
ur þeirra og saman mynda
þau mjög sterka heild.
Jón Baldvin Hannibalsson
21.2.1939
Fiskur (19. feb - 20. mars)
Bryndís Schram
9.7.1938
Krabbi (22. júní - 22. júlí)
- móttækilegur
- dularfullur
- rómantískur
- fer fínt í hlutina
- andlega sterkur
- hugsi
- huglæg
- þolinmóð
- fastheldin
- tilfinningaheit
- draumlynd
- aðlaðandi
Þórdís Þorleifsdóttir, förðunarfræðing-
ur og yfirkennari í förðunarskóla Rifka.
„Bömin mín,“ svarar Þórdís
einlæg. „Ég huga í greininni að
því sem er spennandi í tísku og
förðun í vetur,“ útskýrir hún fyr-
ir forvitnum blaðamanni og um-
ræðan heldur áfram um verð-
mæti tilverunnar: „Það skiptir
líka miklu máli að vera heill
heilsu," segir Þórdís og heldur
áfram: „Svo legg ég ríka áherslu
á að huga að góðu jafnvægi
innra með mér og í mínu nán-
asta umhverfi og að sjá það góða
í öllu og öllum."
Þórunn Högnadóttir, þáttastjórnandi
Innlits/útlits á Skjá einum.
„Það em bömin mín og fjöl-
skyldan," svarar Þórunn án um-
hugsunar og heldur áffam: „Heima
er best og áð vera með fjölskyld-
unni minni. Svo gerir systir mín
mikið grín að mér og segir að ég
hafi ekki flutt að heiman," segir
hún hlæjandi og bætir við: „Heima
hjá mömmu líður mér líka mjög
vel. Svo em mikil forréttindi að
eiga góða vini." „Eins og staðan er í
dag hef ég ekki mikinn tíma til að
sinna öðm enda hef ég nóg að gera
að vinna við gerð þáttarins."