Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Blaðsíða 31
W Helgarblaö
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2005 3 7
Sigríður Snævarr
Kjartan er sagður
hafa heitlað hana
meö húmornum sem
hanner þekktur fyrir.
Kfartan Gunnarsson er
fæddur í Reykjavik í
október 1951, sonur
Guðrúnar Jónsdóttur
skrifstofumanns og
Gunnars Pálssonar
hæstaréttarlögmanns. Foreldrar hans
bjuggu ekki saman, en Guðrún móðir
Kjartans starfaði um tíma á skrifstofu
föður hans. Samband þeirra varð ekki
langlíft og ól Guðrún son sinn upp ein.
Á heimilinu bjó einnig móðuramma
Kjartans og átti hann ljúfa og átakalitla
æsku í ranni þessara tveggja kvenna.
Samband Kjartans við föður sinn og
hans fjölskyldu var gott og umgengst
hann fólkið sitt í þann legginn mikið.
Skemmtilegur krakki
Hörður Einarsson lögfræðingur og
Kjartan em bræðrasynir og með þeim
hafa verið mikil og góð samskipti allar
götur frá því Kjartan var drengur.
Hörður man vel eftir frænda sínum frá
því hann var lítiil drengur. „Kjartan var
skýr og skemmtilegur krakki, rólyndur,
alltaf í góðu skapi en dálítið dulur.
Samband okkar hefur alltaf verið gott
og mér finnst mjög vænt um hann
enda ekki hægt annað. í kringum
hann er alltaf þægiiegt andrúmsloft og
mikill hlátur," segir Hörður og bendir
á að Kjartan sé afskaplega frændræk-
inn og mikill vinur vina sinna.
Undir þetta tekur annar frændi
hans, Tryggvi B. Friðriksson hjá GaUerí
Fold. „Kjartan varð mjög fljótt fullorð-
inslegur í útliti og allri framkomu.
Hann var rólyndur og þægilegur og
ekki einn þeirra sem vom upp um alla
veggi,“ segir Tryggvi og telur það mjög
óLOdegt að Kjartan hafi mikið verið í
prakkaraskap og hasar með drengjun-
um í hverfinu. „Flestir strákar vom í
fótbolta þá eins og nú, en ég man ekki
eftir að Kjartan kæmi þar nærri. Við
umgengumst talsvert í gegnum feður
okkar þegar við vorum böm og ég man
eftir ferðalögum sem við fórum með
pabba sem vom mjög skemmtileg.
Mér hefur alitaf þótt vænt um Kjart-
an," segir Tryggvi.
Fullorðinslegur í skyrtu með
bindi
Kjartan gekk í Miðbæjarskóla og
færði sig síðan yfir götuna í Gagn-
fræðaskólann við Vonarstræti og það-
an yfir í MR. Meðal skólafélaga hans
vom Bogi Ágústsson, framkvæmda-
stjóri hjá Sjónvarpinu, Sigtryggur
Jónsson sálfræðingur, Markús MölJer
hagfræðingur og Ólafur Helgi Kjart-
ansson sýslumaður.
Fyrstu árin í menntaskóla bar ekki
mikið á Kjartani en í fimmta og sjötta
bekk fór hann að láta til s£n taka.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
kynntist Kjartani í MR og tókust fljót-
lega með þeim góð kynni sem síðar
urðu að vináttu. „Kjartan skar sig tals-
vert úr hópnum en hann var aUtaf fuU-
orðinslegri en við Jiin. Hann var aUtaf
vel klæddur í skyrtu með slaufu. Gott
ef hann var ekki strax í menntaskóla
farinn að ganga með slaufu í stað
bindis eins og æ síðan," segir Hannes
Hólmsteinn og ber vini sínum afskap-
lega vel sögtrna.
Þegar Kjartan hóf nám í mennta-
skóla hafði ‘68-kynslóðin sett mark sitt
á samfélagið en í MR áttu viðhorf og
skoðanir hennar mUdnn
hljómgrunn.
Menn
skiptust í
tvennt á
árunum
í kring-
um
1970.
Menn
aðhyUt-
ust annað
hvort þá
tísku sem fylgdi þeim straumum og
klæddu sig samkvæmt því eða vom
hefðbundnir í klæðaburði og komu í
skólann klæddir jakkafótum með
bindi.
Gekk í Heimdall 16 ára
Kjartan var í MR á þessum upp-
reisnartímum og haggaðist eklá.
Hannes Hólmsteinn segir að það hefði
fremur mátt halda að Davíð Oddsson
sem var á undan þeim í skóla hafi ver-
ið á þeim vængnum með sitt síða,
úfriahár.
Frá upphafi leyndist ekki neinum
hvar Kjartan stóð í póUtík enda gekk
hann í HeimdaU sextán ára gamaU.
Hann var hægrisinnaður og hafði mik-
inn áhuga á stjómmálum enda alinn
upp við póUtíska rétthugsun þar sem
föðurfólk hans var mUdð sjálfstæðis-
fóUc. Blárri en aUt sem blátt var, hefur
verið sagt um þá feðga föður hans og
afa en afi Kjartans var PáU Bóasson,
fiskverkandi á Eskifirði, sem flutti síðar
til ReykjavUcur og var féhirðir í fjár-
málaráðuneytinu. Sagan hermir að
mennskuna stefndi hann snemma og
var áætlun hans að leggja fyrir sig lög-
mannstörf. Hann var kappsamur og
duglegur og var lengi fulltrúi Vöku í
stúdentaráði. í háskólapóUtUdnni atti
hann kappi við þau Össur Skarphéð-
insson og Ingibjörgu Sófrúnu og bar
Vaka þar skarðan JUut frá borði öU þau
tæpu sex ár sem Kjartan var í skólan-
um.
Eftir útskrift úr Háskóla íslands hélt
Kjartan til Noregs í skóla en vamar- og
utanrUdsmál höfðu aUtaf verið honum
ofarlega í huga. Hann langaði að
mennta sig betur á því sviði og efla
þekkingu sína á öryggismálum þjóða.
Norska vamarmálaráðuneytið rak
skólann sem var í raun akademískt
nám en ekki verklegt eins og ætla
mætti. SkóUnn var hugsaður fýrst og
fremst sem þjálfun fyrir norska emb-
ættismenn og háttsetta herforingja.
Kjartan mun hafa hugsað þennan
skóla sem góðan undirbúning fyrir
komandi stjómmálaþátttöku en hann
hafði meðal annars setið í öryggis-
málanefhd fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
I bankaráði Landsbankans Kjartan hefurlengi setið I bankaráði Landsbankans. Hérerhann
með bankastjórunum og Björgólfí Guðmundssyni, formanni barnkaráðs Landsbankans.
hans
PáU hafi haft á því orð að réttara væri
að stofna nýjan skóla í plássinu fremur
en að hann sendi böm sfn í bamaskól-
ann en þar var skólastjóri þekktur
vinstrimaður. Taldi hann þá irmræt-
ingu sem böm hans hugsanlega yrðu
fyrir aUs ekki hoUa. TU þess mun þó
ekki hafa komið
Hannes Hólmsteinn segir að Kjart-
an hafi verið trúr sínum skoðunum, og
ekki efast. „Hann var mjög stefnufast-
ur og feikilega klár ræðumaður, ætíð
fylginn sér," rifjar Hannes upp og bæt-
ir við að þá þegar hafi engum dulist
þeir persónutöfrar sem Kjartan býr
yfir.
Hannes Hólmsteinn segir þá ekki
hafa dvínað nema síður væri. Undir
það taka aðrir vinir Kjartans sem DV
ræddi við en einstakur húmor hans og
ljúft skap sé þar ríkur þáttur.
Heillaði Sigríði með húmornum
í hjónaband
Hannes segist halda að Kjartan hafi
ekki sinnt náminu af neinum krafti; fé-
lagsmálin hafi tekið drjúgan toU af
tíma hans. „En hann var greindur og
þurfti ekld að hafa mikið fyrir því að
læra," segir Hannes Hólmsteinn.
í MR var á þessum tíma einnig Sig-
ríður Snævarr, dóttir Ármanns Snæv-
arr sem varð nokkm síðar háskólarekt-
or. Hún var lífleg og kát og tók einnig
þátt í félagsmálum í MR. Árgangur
þeirra Kjartans í MR hafði fengið það í
gegn að eiga fuUtrúa í skólastjóm og
Sigríður var kjörinn sá fuUtrúi. Hún tók
kjörinu af ábyrgð og eftir hádegi einn
dag í viku var hún með viðtalstíma í
skólanum. Einn skólafélaga þeirra
minnist þess að þegar U'ða tók á vetur-
inn hafi það orðið æ algengara að eng-
inn kæmi í viðtölin nema Kjartan sem
sat þar tímann á enda og skemmti fuU-
trúanum með sögum. Heyrðust
JilátrasköU þeirra Sigríðar fram á
ganga skólans. Fleiri vinir Kjartans
herma upp á hann húmorinn en það
er ekkert einsdæmi að fóUc skemmti
sér vel nærri Kjartani.
Þau Sigríður urðu par þennan vet-
ur en heimUdarmaður okkar segir að
hafi Kjartan ekki heUlað hana með
kynþokkanum, hafi það verið húmor
s sem hafi heiUað Sigríði svo að úr
varð hjónaband.
Ætlaði sér alltaf í pólitík
Eftir stúdentspróf innritaði
Kjartan sig í lögfræði en á lög-
hefur hann þá mögnuðustu kúnnigáfu
sem hægt er að hugsa sér og þau em
ófá skiptin sem hann hefur komið út á
mér tárunum svo þau flóa," segir hún.
Agnes segist ekki hafa staðið Kjart-
an að óheUindum og fuUyrðir eins og
fleiri vina hans að Kjartan sé gegnheiU
og vandaður. „Vinir hafa sérstaka
merkingu í huga hans," bætir hún við.
Elskar börn en á engin sjálfur
Agnes bendir ennfremur á að ekki
síst segi það mikið um manngæsku
Kjartans hve bamgóður hann sé. Hún
kann sögu af því en fyrir margt löngu
dvaldi hún sumartíma í Utlu þorpi í
Þýskalandi. „Sigríður Snævarr var þá
sendiráðsritari í BerUh en ég var í Bein-
bach, Utíu þorpi aUfjarri. Einn daginn
Jiringdi Kjartan þaðan og boðaði
komu sína. Sagðist eiga efrm dag laus-
an og langaði að eyða honum með
okkur. Bömin mín sem aldrei höfðu
Jiitt hann en oft heyrt mig tala um
Kjartan ætíaði sér ugglaust að taka
beinan þátt í stjómmálum og láta að
sér kveða og eftir heimkomuna hóf
hann að undirbúa sig fyrir lögmanns-
störfin. En þá kom Geir HaUgrímsson
að máU við hann og bað hann að taka
að sér verkefni fyrir flokkinn. Þár með
vom örlög hans ráðin og í október
1980 tók hann síðan við framlcvæmda-
stjóm.
Næmur og Ijúfur, gegnumheill
Ásdís HaUa Bragadóttir, fyrrver-
andi bæjarstjóri í Garðabæ, varrn náið
með Kjartani þegar hún var ráðin til
flokksins í sumarstarf aðeins tvítug að
aldri. Á miUi þeirra myndaðist strax
vinátta sem síðan heftrr ekki borið
skugga á. „Ég var ung og vissi tæpast
hver hann var en mér þóttí hann
Jireint frábær maður. Kjartan er gegn-
umheiU, næmur á fólk og ljúfur í allri
umgengni. Fyrir utan hvað hann er
skemmtilegúr en hann er einn þeirra
manna sem gott er að vera nærri og
umgangast. AUtaf skemmtílegur og er
Þau Sigríður urðu parþennan vetur
en heimildarmaður okkar segir að
hafi Kjartan ekki heillað hana með
kynþokkanum, hafiþað verið húmor
hans sem hafi heillað Sigríði svo að
úr varð hjónaband.
húmoristi af guðs náð,“ segir Ásdís
HaUa og bætir við að engan þekki hún
sem hefur eins mikið jafnaðargeð eins
og Kjartan Gunnarsson. „Það var sama
hvað kom upp á, aldrei sá ég hann
skipta skapi en ekki ætía ég honum að
vera skaplaus, sannarlega ekki en
hann kunni þá Ust manna best að stiUa
skap sitt og hafa fuUkomið vald á því.
Enda er Kjartan afskaplega háttvís og
kurteis maður. Það er aUtaf gaman að
vera nærri honum og forréttindi að
umgangast hann og vinna með hon-
um,“ segir hún.
Agnes Bragadóttir, blaðamaður á
Morgunblaðinu, hefur þekkt Kjartan
lengi. „Við höfum þekkst síðan ég var á
Tímanum á árdögum minnar blaða-
mennsku og lít á hann sem vin minn,"
segir hún og lýsir Kjartani sem flókn-
um persónuleika. „Hann er einn
þeirra manna sem hvað mest spenn-
andi er að velta fyrir sér. Þar fyrir utan
Ungur maður með slaufu Slaufan hefur
verið eitt heista einkenni Kjartans frá þvi i
menntaskóia.
hann áttu ógleymanlegan dag. Þau
vom fimm og átta ára og Kjartan hafði
þau áhrif á þau að þeim fannst þau
vera eitthvað miklu meira en lítil böm.
Hann sýndi þeim virðingu, talaði við
þau og lilustaði á þann hátt sem þau
vom ekki vön. Mér sýndi hann þennan
dag, svo ekki verður um viUst, hve mik-
ið dálæti hann hefur á bömum," rifjar
Agnes upp.
Hjónaband þeirra Sigrfðar hefur
verið farsælt og þrátt fyrir að Sigríður
hafi lengi verið sendiherra og búið
erlendis segja heimildarmenn DV að
þeim hafi tekist að viðhalda sam-
bandi srnu án þess að í það kæmu al-
varlegir brestir. Þau em áhrifamikil
hjón en eiga engin böm. Kjartan hef-
ur sjálfur bent á að starf hans út-
heimti ekki skUyrðislausa viðvem við
skrifborðið í Valhöll. Vinátta hans við
konur hefur stundum verið misskilin
en oft hefur sést tíl Kjartans þar sem
hann borðar og jafnvel ferðast með
sínum kvenkyns
vinum. Stað-
reyndin er Jiins
vegar sú að Kjart-
an hefur aUt frá
menntaskólaár-
unum ekki gert
greinamun á því
hvers kyns vinir
hans em. Sjálfur
hefur hann
stundum bent á
að hann sé alinn upp af tveimur kon-
um og kvæntur konu sem sé afar
jafnréttissinnuð og því sé það ekki
undarlegt. „í eðU sfnu er Kjartan
mjög traustur og það samræmist aUs
ekki lífsviðhorfum og karakter hans
að hann brjóti trúnað við eiginkonu
sína,“ segir heimildármaður okkar.
Þótti Davíð of róttækur
Innan Sjálfstæðisflokksins er það
óumdeilt að Kjartan Gunnarsson hafi
mikil áhrif og mikil völd. Talað er um
að hann haldi þar á öUum þráðum og
vinátta hans við formann flokksins
Davíð Oddsson hefur ekki síst áhrif
þar á. Hann hefur legið undir ámæli
um baktjaldamakk þar sem hann
kippi í rétta spotta, flokknum og
áhrifamönnum hans til þægðar.
Vmir hans benda Jiins vegar á að
starf framkvæmdastjóra flokksins sé í
eðli sínu starf sem útheimti að stjóm-
Börnin mín sem aldrei
höfðu hitt hann en oft
heyrt mig tala um
hann áttu ógleyman-
legan dag. Þau voru
fimm og átta ára göm-
ul og Kjartan hafði
þau áhrifá þau að
þeim fannstþau vera
eitthvað miklu meira
enlítilbörn.
andi haldi sig tíl Jilés. Framkvæmda-
stjóri geti aldrei verið í forgrunni og
eigi aUs ekki að verá það. Hans verk sé
að styrkja innviði flokksins og halda
utan um aUa þræði. Það sé ekki öðm-
vísi í Sjálfstæðisflokknum en öðrum
flokkum. Kjartan nýtur virðingar inn-
an flokksins enda hefur hann verið
lengi í starfi með fleiri en einum for-
manni. Óumdeflt er Jiins vegar að
samstarf þeirra Davíðs hefur verið
með eindæmum gott og vinátta þeirra
stendur styrkum stoðum.
Hannes Hólmsteinn segir að þrátt
fyrir sterkar póUtískar skoðanir hafi
Kjartan aldrei verið vígamaður eins og
þeir hinir. „Kjartan er í eðU sínu ekki
herskár heldur rólyndur og íhuguU.
Hann er þetta bjarg sem ekki bifast og
aUtaf hægt að reiða sig á,“ útskýrir
Hannes.
Davíð Oddsson er nokkuð eldri en
Kjartan. Hannes Hólmsteinn segir að
þegar Davíð var í kjöri sem inspector
scholae í MR hafi þeir Kjartan ekki
þekkst nema að Utíu leyti og Kjartan
ekki stutt hann. „Kjartani þótti Davíð
helst tíl róttækur og taldi ömggt að
hann væri vinstrimaður en mótfram-
bjóðandi hans var íTialdssamari og féU
betur að skoðunum Kjartans," rifjar
hann upp og vísar þar í eðUslæga
Uialdssemi Kjartans. Hannes Hólm-
steinn bendir á að skjótt eftir kjörið
hafi Kjartan áttað sig á að mat hans á
Davíð hafi ekld verið rétt og hafi þeim
síðan orðið vel tíl vina. Á vináttu þeirra
hefur ekki borið skugga síðan.
Auðugur eftir föðurarf og ekki
nískur
Hannes Hólmsteinn viU þó ekki
taka undir að Kjartan sé eins íhalds-
samur og menn halda. „Að sumu leyti
er hann það, jú. En hann er eigi að síð-
ur mjög nýjungagjam á öðrum sviðum
og er meðal annars fljótur að tileinka
sér alla tækni," segir hann.
Kjartan er vel efnaður maður og á
talsverðar eignir. Viðmælendur okkar
aftaka með öUu að Kjartan sé nískur;
það sé fjarri lagi. Þvert á mótí sé hann
örlátur og rausnarlegur en hann sé að-
haldsamur og fari vel með. Hann erfði
talvert eftir föður sinn sem var sterk-
efnaður.
Hann hefur aðallega fjárfest í
fasteignum og á meðal annars jarðir
úti á landsbyggðinni og land í Norð-
lingaholti og víðar. Hann hefur stað-
ið í stappi um verð á því landi við
Reykjavíkurborg og er ekki sáttur við
það sem borgin viU greiða honum
fyrir eign sína þar. Land hans fer
undir lóðir sem borgin úthlutar en
allt útlit er fyrir að það verði tekið
eignarnámi. Fyrirtæki hans Skipholt
heldur utan um rekstur eigna hans
sem hann leigir og þar er einn starfs-
maður í vinnu. Því hefur verið hald-
ið fram að fyrirtæki hans beri nafn
sitt af öllum eignunum sem Kjartan
á við Skipholtið en það séu meira
eða minna öll hús við götuna. Lítið
er til í þeirri staðhæfingu en hann á
þar tvær byggingar sem hann leigir
út. Skipholt var lítil heildverslun
sem faðir hans rak á sínum tíma og
þaðan er nafnið komið.
Vestur á Rauðasandi á Kjartan jörð
sem hann nýtír að JUuta og dvelur þar
þegar hann hefur tök á. Haft hefur ver-
ið eftir honum að hann njótí þess
mjög að vera úti í náttúrunni og land-
búnaðarstörf eigi vel við hann. Hann
er bindindismaður á áfengi og tóbak
og hefur verið það aUa tíð. Fjölskylda
hans og vinir em honum einkar kærir
og frísfundir sínar notar hann tíl sam-
vista við þá sem honum þykir vænt
um.
bergljot@dv.is