Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2005, Qupperneq 36
r 36 LAUGARDAQUR 8. OKTÓBER 2005 Helgarblaö DV Teint Idole-meik frá Lancome Þetta er það albesta sem ég hef komist í, þekur og sparslar óvenju vel. Tveir augnskuggar frá Mac Annar er hvítur, hinn brúngylit- ur. Falleg og klassísk samsetning, en ekki mjög áberandi. Gloss. Aiger nauðsynjavara. Ég á svona tíu stykki á víð og dreif í skúffum, töskum og vösum. Þetta er nýlegt, brúngyllt Terracotta gloss sem reynist ágæt-^ lega. Augnblýantur og maskari Dökkbrúnn augnblýantur og maskari. Var að uppgötva þennan XXL maskara, maður fær svona kóngulóarlappir í kringum augun af honum. Spegill Vinkona mín gaf mér þennan. Á honum er orðabókarskýring á orð- inu „goddess". Þetta er sjálfhverfur brandari sem kemur manni gott skap. Þóra Ingólfsdóttir, ritstjóri og kynningarfulltrúi hjá JPV-útgáfu, opnar snyrti- budduna að þessu sinni. Þóru finnst gaman að pæla í snyrtivörum og segist stundum gleyma sér í snyrtivörubúðum eins og krakki í dótabúð. „Ég var mikið fyrir aö teikna og mála sem barn og held að maskarar, augnskuggar og gloss hafi á unglingsárunum tekið við af akrfl, tússi og glimmeri. Vfsindalegar rannsóknir mfnar sýna að ef ég mála mig um klukkan sjöhundruð á morgnana endist þaðtil klukkan ellefuhundruðfjörutíuogfimm. Þegar mikið liggur við er snyrtibuddan rifin upp og sprunguviðgerðir hefjast. A þessum árs- tfma Ifður tfminn hinsvegar svo hratt að ég gleymi mér iðulega og krossbregður ef mér verður á að ganga fram hjá spegli seinni part dags. Snyrtibuddan veitir mér undarlega öryggistilfinningu, ég er alveg ómöguleg ef hún er ekki með f för þó að ég noti hana kannski ekki allan daginn," seglr Þóra. Athafnakonan Inga María Sverrisdóttir rekur Holtablómið 101 listgallerí á Langholtsvegi. Hún hafði lengi unnið við setn- ingu, hönnun og umbrot en langaði að breyta til og dreif sig því í listnám til Englands. Nú selur hún eigin listmuni í bland við blóm og aðra gjafavöru. Inga María Sverrisdóttir Selur eigin listmuni I bland við blóm og kerti i Holtablóminu 101 listgallerii. _______ „Ég var alltaf ákveðin í að ég vildi læra eitthvað, ég átti bara mjög erfitt með að finna út hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór,“ segir Inga María sem hafði um tíma unnið með stúlku sem sagði henni frá Rudolf Steiner-skóla í Englandi. Frásögnin af skólanum og um- hverfinu heillaði enda hafði Eng- land alltaf verið Ingu Maríu ofar- lega í huga. „Ég varð þó að láta þennan draum bíða þar til snemma árs 1997. Þá benti Úlfar Ragnarson læknir mér á að lesa bókina um Sesselíu á Sólheimum og eftir lest- urinn ákvað ég að skella mér til Englands. Sesselía hafði alltaf sagt að sér legðist eitthvað til og mér fannst tilvalið að hafa þau orð hennar að leiðarljósi. í september 1997 hóf ég nám í Emerson College og útskrifaðist þaðan sem mynd- höggvari árið 2000. Ég bætti svo við mig einu ári til að læra meira um leirbrennslu.“ Inga María kom heim sumarið 2002 og ári síðar keypti hún Holta- blómið. „Ég fór á námskeið hjá Uffe Balslev í blómaskreytingum og opn- aði búðina í október 2003. Fyrst ætí- aði ég að vera með mína eigin list- muni í bland við blóm og aðra gjafa- vöru. Ég fór hinsvegar aðeins út af sporinu og pantaði allt of mikið inn. í byrjun þessa árs bætti ég nafninu 101 listgallerí aftan við Holtablómið og núna legg ég meiri áherslu á þá hluti sem ég bý til sjálf, eins og skúlptúra, málverk, leir- og gler- muni. Ég er samt áfram með kerti og servíettur og bý til mikið af gler- bökkum undir kertin sem eru vinsæl gjafavara. Svo er ég náttúrlega með afskorin blóm og legg meiri áherslu á að eiga fersk blóm en að vera með of mikið og lenda í því að blómin verði of gömul." Inga María er með vinnuaðstöðu á efri hæð verslunarinnar þar sem hún hefur brennsluofn og aðstöðu til að mála og jafnvel höggva út í steina ef svo ber undir. „Þetta er náttúrlega mikil vinna og oft langur vinnudagur en ég var að breyta opn- unartímanum og opna nú ekki fyrr en klukkan 14 mánudaga, þriðju- daga og miðvikudaga. Hina dagana opna ég klukkan ellefu og hef opið til átta alla daga nema sunnudaga frá klukkan 13 til 18. Ég ætía að reyna þetta um tíma bæði til að ég hafi smá tíma fyrir sjálfa mig og heimilið og svo að ég geti þá unnið að fram- leiðslunni án þess að vera að af- greiða líka.“ edda@dv.is Hættu að bera þig saman við stjörnurnar ...þær hafa líRa sinn djöful að draga Ef eitthvað er ávísun á þunglyndi kvenna þá er það samanburðurinn við kynysturnar. Allra verst er að bera sig saman við stjörnurnar og mesta sjálfsblekkingin er þegar konur halda að líf þeirra væri miklu auðveldara og skemmtilegra ef þær litu út eins og Elle Macpherson eða Jennifer Aniston. Þetta er út í hött því stjörnurnar hafa sinn djöful að draga og eru þar að auki oft hundóánægðar með útíitið. Julia Roberts þolir til dæmis ekki á sér handleggina og Heather Locklear finnst hún með mjóar og hallæris- legar lappir. En af hverju þá að vera að pína sig í svona samanburð? Sérfræðingar segja það sem kon- ur gátu alveg sagt sér sjálfar, að allt stafi þetta af lélegri sjálfsímynd. Þeir segja að hjá sumum konum sé niðurrifið stanslaust i gangi meðan aðrar konur detti í gírinn þegar at- vinnuviðtalið eða deitið klikkar. Þá kenni þær útíitínu um allt saman. Til að komast frá þessu bulli í eitt skiptí fýrir öll ráðleggja sérfræðing- arnir þér að skrifa lista yfir allt það sem þér líkar vel við útíit þitt. Þá áttu að skrifa annan lista yfir allt sem þér líkar ekki og svo er kominn tími til að taka heila klabbið í sáttt, líka sveru kálfana og litlu brjóstin. Ráðið er að tala við hvern líkams- hluta fyrir sig og segja honum að hann sé elskaður eins og hann er. Þá er að fara í fataskápinn og henda því sem hefur verið keypt í Belgja- gerðinni til að fela og hylja. Fara svo út á meðal fólks og bera sig vel. Þeg- ar hrósinu fer að rigna á að þakka pent og draga ekki úr eða afsaka sig. Að lokum er kominn tími til að end- urgjalda hrósið og hrósa vinkonun- um fyrir það sem er fallegt í fari þeirra. Og sjá: Eins og hendi sé veif- að er sjálfsímyndin orðin miklu betri. Drew Barrymore Guðgerði | mig þybbna afeinhverri ástæðu og mér dettur ekki ihugaðláta það eyðileggja lífmitt. Meðan ég er hraust oggetgert það sem mig lanqar til kvarta éa ekki I Kate Winslet Éger bara ég og ég er I stolt afþvi. Ég verð aldreiþvengmjó, I ekki sist af þvi mér finnst flottara að I vera það ekki og svo finnst mér mjótt | fólk ekkert sérstaklega hamingjusamt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.