Símablaðið - 01.01.1950, Blaðsíða 24
20
SlMABLAÐlÐ
Halldór Skaptason
sjötugur.
Hinn 20. okt. s.l. átti Halldór Skaptason,
aðalbókari Landssímans, sjötugsafmæli.
Óþarft er að kynna hann fyrir lesendum
Símablaðsins, þar eð hann er einn elsti starfs-
maður Landssímans, bæði að aldurs- og
starfstíma, hefur unnið mikiÖ og gott starf
innan félagssamtaka símamanna og er nú
heiðursfélagi F. í. S.
Halldór gekk í þjónustu Landssímans þeg-
ar, er síminn var opnaður, 1906, — og var
hann í hópi hinna fyrstu, er leituðu náms
erlendis í símafræðum. Síðan hefur hann
starfað óslitið hjá simastofnuninni til þessa
dags.
Margskonar störf hefur hann unnið, ver-
ið linumaður, símritari, ritsimastjóri og að-
albókari. Víðsvegar um land hefur hann
unnið, og þó aðallega á Seyðisfirði, Akur-
eyri og í Reykjavík.
Ég, sem þessar línur rita, hef átt því láni
að fagna, að eiga náið samstarf við Halldór
síðustu sex árin, en þvi tek ég þannig til orða,
að mér þykir fengur í að hafa kynnst hon-
um, fyrir margra hluta sakir. Hann er af
þeirri tegund manna, er telja verður nokkuð
sérstæða, og lifa áfram í hug þeirra, er þá
þekktu, þó að ár líði og leiðir skilji.
Vart er hægt að hugsa sér meira prúð-
menni og dagfarsbetri mann en Halldór.
Ekki ber að skilja það svo, að hann sé geð-
lítill friðsemdarmaður, — nei — oft hvessir
hið innra, og þá er hann einbeittur og fast-
ur fyrir, — en alltaf hreinn og beinn, —
drenglundin í öndvegi.
Hann er af gamla skólanum, vinnur störf
sín hávaðalaust, og er hvorki gæddur þeirri
flærðar silkimýkt annars vegar né þeirri
frekju hins vegar, er virðist vera nauðsyn-
legur eiginleiki til þess að komast til svo-
kallaðra metorða í þessu landi.
Starfsmaður er Halldór mikill, samvizku-
samur og svo skyldurækinn, að til fyrir-
myndar mætti vera.
Þó aldurinn sé nú orðinn nokkuð hár, er
hann ennþá ungur í anda, og lítinn bilbug
á honum að finna. Og þó hann sé nú kom-
inn að starfsaldurstakmarki opinberra starfs-
manna, verður það ekki á honum séð, né í
starfi hans.
Ég vil enda þessi orð mín, — og veit að
ég mæli þar fyrir munn margra, — með
því að þakka honum mikið og gott starf í
þágu Landssímans, og þar með þjóðarinnar
—■ ánægjulegt samstarf, — og óska honum
allra heilla á komandi árum.
Jör. Oddsson.
* *
/1 rn/ Ærnason
íintnt ínt/ttt'.
Þann 19. marz næstk. verður Árni Árna-
son, símritari í Vestmannaeyjum, fimmtug-
ur.
Hann er fæddur að Búastöðum i Eyjum
19. marz 1901, sonur hjónanna Árna Árna-
sonar frá Vilborgarstöðum er síðar bjó á
Grund og konu hans Jóhönnu Lárusdóttur
á Búastöðum hreppstjóra þar Jónssonar.
Addi á stöðinni, eins og hann venjulega
er kallaður eystra þar, byrjaði að vinna á
símastöðinni í Vestmannaeyjum 1919, og
hefur unnið þar að heita má sleitulaust síð-