Símablaðið - 01.01.1950, Blaðsíða 33
S1M A B L AÐ I Ð
29
allt árið um kring. Þar starfa 26 loftskeyta-
menn, 10 fjarritunarstúlkur og viÖgerðar-
maÖur. UnniÖ er á fimmskiptum vöktum og
er verkaskipting þannig: VarÖstjórinn fyrir
hverri vakt annast skýrslugerð og aÖstoðar
við afgreiðsluna, ef með þarf. Þrír loft-
skeytamenn annast afgreiðslu við flugvélar
og fer hún fram á morse eða tali. Þeir hafa
alls um 20 móttökutæki til umráða og halda
hlustvörð á 13 öldulengdum. Við hlið sér
hafa þeir 2 fjarritunarvélar og beint síma-
samband við flugumferðarstjórnina á
Reykjavíkurflugvelli. Þrír loftskeytamenn
annast morseafgreiðslu við fjarskiptaþjón-
ustur annarra landa. Einn við Prestvick,
Skotlandi, annar við Shannon á írlandi og
Stavanger, Noregi og sá þriðji við Gandern.
Nýfundnalandi og Blue-West á Grænlandi.
Tvær fjarritunarstúlkur starfa á hverri vakt
og hafa þær 7 fjarritunarvélar til umráða
og þannig beint samband við: Flugturninn
og veðurstofuna í Reykjavík, flugþjónust-
una og veðurathugunarstöðina á Keflavík-
urflugvelli og ritsímann og bæði flugfélög-
in í Reykjavík.
FJARSKIPTIN AÐ GUFUNESI.
Tilgangur fjarskiptaþjónustunnar að
Gufunesi er sá að halda uppi nauðsynlegum
fjarskiptum til öryggis og hagræðis fyrir
flugsamgöngur á milli landa. Stöðin er einn
hlekkur í radíóflugþjónustu-kerfi, sem inn-
an sinna vébanda hefur samband um heim
allan.
Þegar flugvélar eru á leið til Islands eða
frá því, þá eru þeim látnar i té upplýsingar
um veður og er þeim það mjög þýðingar-
mikið, til þess að geta hagnýtt sér meðbyr
á ferðum sínum. Skipzt er á beiðnum og upp-
lýsingum um allt það, er varðar öryggi flugs-
ins, svo sem lendingarskilyrði á innlendum
og erlendum flugvöllum, ásigkomulag stað-
arákvörðunartækja o. s. frv. Fyrir milli-
göngu stöðvarinnar er flughæð og stefna
flugvélarinnar ákveðin og flug hverrar flug-
vélar í himingeimnum hagað svo sem bezt
má verða.
Þegar radíóskilyrði eru erfið, þá skeður
það ósjaldan, að flugvélarnar geta ekki haft
samband við radíóflugþjónustu þess gæslu-
svæðis er þær fljúga yfir. Veitir Gufunes-
stöðin þeim þá oft aðstoð sína með því að
Úr afgreiðslusalnum.
bera á milli fyrir þær skeyti og orðsending-
ar til hinna ýmsu staða jarðarinnar.
Fyrir milligöngu Gufunesstöðvarinnar fer
fram allvíðtæk veðurskeytaþjónusta á föstu
samböndunum, en þar er auk þess skipzt á
fjölmörgum skeytum er varða flug og ör-
yggi flugfaranna.
Stundum ber svo við að aðrar Evrópu-
stöðvar geta ekki haldið uppi sambandi við
radióflugþjónustur Ameríku og gegnir Gufu'
nesstöðin þá oft mikilvægu hlutverki í því
að vera eini tengiliðurinn milli gamla heims-
ins og hins nýja.
Til gamans má geta þess að hraði í
móttöku og sendingu skeyta í Gufunesi,
getur stundum verið allt að 200 stafir
á mínútu, og mun það vera langmest-
ur hraði í loftskeytaþjónustu hér á landi.
Það er mikið fagnaðarefni, að íslending-
ar annast sjálfir veigamesta þátt öryggis-
þjónustunnar í þágu flugsamgangnanna á
norðanverðu Atlantshafi. Það er styrkur
loftskeytastöðvarinnar Tfw, að Gufunesi,
hve hún hefur góðu starfsliði á að skipa og
hve aðbúnaður þess er vel úr garði gerður.
Hugtakið Tfw er þekkt viða um heim og
hefur það aukið hróður og virðingu þjóðar-
innar og vil ég skilja svo við þessa ófull-
komnu grein mína, að láta þá ósk í ljós,
að svo megi verða á ókomnum tímum.
Halldór Ó. Ólafsson.