Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1950, Blaðsíða 35

Símablaðið - 01.01.1950, Blaðsíða 35
SlMABLAÐlÐ 31 Sjötugsafmæli átti Halldór Skaptason 20. okt. Nýr við'skiptafrœðingur. Bent Óskarsson var ráðinn til Landssím- ans 1. okt. Nýr verkfræðingur. Sverrir Norland var ráðinn 31. okt. Nýr símafræðingur. Árni Hafstað var skipaður 1. júlí s.l. Bjarni Gíslason var skipaður stöðvarstjóri í Gufunesi 1. nóv. s.l., í stað Ingólfs sál. Matthíassonar. Magnús Magnússon hefur verið skipaður verkstjóri Radióverkstæðisins (1949). Halldór Skaptason aðalbókari lét af störf- um hinn 31. des., sökum aldurs. Settur hef- ur verið í þá stöðú Jörundur Oddsson, við- skiptafræðingur. Símamálaráðherra í stað Jóns Pálmason- ar, varð Björn Ólafsson, 14. marz. Sjálfvirka stöðin á Akureyri var opnuð með hátíðlegri viðhöfn laugard. 3. júni. — Símanotendur á Akureyri eru nú 1000. Tómas Haarde hefur séð um uppsetn- ingu stöðvarinnar, og dvaldi hann því all- an s.I. vetur fyrir norðan. Próf. Ólafur Björnsson var endurkositm formaður B. S. R. B. á þingi Bandalagsins, sem haldið var dagana 27.—29. okt. Póst- og símamálastjóri brá sér til aust- urlanda fyrst í nóv. og fór hann alla leið austur til Siam. Var hann boðinn í ferð þessa ásamt póstmálastjórum hinna Nórð- urlandanna — af flugfélagasamsteypunni S. A. S. Lætur hann hið bezta af för þessari. Fjölskák tefldi Jón Ágústsson við 5 síma- menn í félagsheimilinu Aðalstræti 11, í des. síðastl. Var félagsheimilið vígt með þeirri athöfn. Ríkharði Sumarliðasyni hefur verið falin umsjón Loranstöðvarinnar í Vík í Mýrdal, sem Landssiminn er að yfirtaka. Var öllum starfsmönnum Loranstöðvar- innar sagt upp, en hafa flestir verið ráðnir aftur, og skipaðir frá 1. jan. 1951. 1 sumar var lagður jarðsími frá Akur- eyri og út á Moldhaugaháls. Lokið var við að gera símahúsið í Hrúta- firði fokhelt, og byrjað á innanhússsmíði. Vikulegur starfstími á opinberum skrif- stofum var af ríkisstjórninni ákveðinn 38 klts frá 1. júní. Mætti sú breyting mikilli mótspyrnu sökum þeirrar aðferðar, sem höfð var við að ákveða og fyrirskipa hana. Dánardægur: 17. apríl Gróa Dalhoff. 1. júní Þórður Jóhannsson. 18. júní Ingólfur Matthíasson. 20. ágúst Guðmunda ólafsdóttir. Hér birtir Símablaðið mynd af Guð- mundi Lárussyni, sem eftir ótrúlega stuttan feril sem íþróttamaður, er nú orðinn við- frægur, uttanlands og innan, sem einn mesti spretthlaupari á Norðurlöndum. Guðmundur er Eyrbekkingur að ætt, — en hefur verið í þjónustu Landssímans um nokkurra ára skeið.

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.