Símablaðið - 01.01.1950, Qupperneq 31
SlMABLAÐlÐ
27
Stjórn
F. Í.S
á 35 ára
afmæli fél.
Valdemar Einarsson varaformaður, Brynjólfur Eiríksson,
gjaldkeri, Júlíus Pálsson ritari, Andrés G. Þormar, Helga
Finnbogadóttir, Steingrínmr Pálsson formaður, Ágústa
Jónsdóttir fjármálaritari.
meÖ sýnilegt að sá draumur átti langt i land.
En á þessu 35. ári F. í. S. hefur tvennt
skeÖ í húsnæðismálum þess. Félagið hefur
fengiÖ leyfi til aÖ standsetja lítinn sal í
litlu húsi, sem stendur á baklóÖ símahúss-
ins við Aðalstræti 11, og koma þar upp
vísi að litlu félagsheimili. Mjór er mikils
vísir má ef til vill segja. Og ekki er ólíklegt,
að þessi litla byrjun örfi félagið til stærri
átaka, þegar þessi litli kofi verður jafnaður
við jörðu, sem verða mun innan tíðar. En
samtímis hefur svo það skeð, að skrifstofu-
pláss félagsins hefur verið af því tekið í
símahúsinu, þar sem miðstöð félagsstarfs-
ins hefur jafnan verið, og þarf að vera,
— og er nú holað niður í kompu í Birgða-
húsinu við Sölvhólsgötu, meðan gamalt
járndrasl fyllir þau salarkynni, sem félagið
einu sinni vænti að fá til fundarhalda.
En þýðingarmikill þáttur í félagsstarfi
þessa 35 ára stéttarfélags er lantaður.
Húsnæði fyrir stjórnarskrifstofu hefur
félagið aldrei óskað eftir að fá í birgða-
húsinu. Húsnæði fyrir hana kemúr ekki að
tilætluðum notum, um ófyrirsjáanlega
framtíð, nema í Landssímahúsinu, þar
til félagið hefur eignast sitt eigið hús, —
og skapað þar miðstöð félagslífsins. Og að
því ber að vinna nú án tafar. Félagið þarf
ekki að lifa á bónbjörgum.
Það á orðið gilda sjóði, sem ekki verða
betur geymdir, félaginu til gagns, en að verja
þeim til að koma upp félagsheimili í eigin
húsi. Sjóðirnir geta haldið áfram sínu ætl-
unarverki eftir sem áður — og þyrfti ekki
að láta féð af hendi nema sem lán, til bygg-
ingarsjóðs, sem nú þegar er ærið stór orð-
inn. Þá ber og að líta á það, að gildi sjóða
virðist á þeirri leið, að ekkki sé seinna
vænna að gera þá naglfasta.
„Mey“-kerling.
Yndi og hlýju eykur mér
ein ég stálið klappa —
að fyrrihluti orðsins er
innan gæsalappa.
U.J.