Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2005, Page 21
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 21
Örn og Jakob
inn á EM í
sundi
öm Arnarson úr
Sundfélagi Hafnar-
fjaröar synti 100 m
baksund á tímanum
55,25 á Stórmóti SH sfðast-
liðin laugardag og þar með
var hann annar sundmað-
urinn til að ná lágmörkum
á Evrópumótið í stuttri laug
sem fer fram í desember
næstkomandi á Ítaiíu. Jak-
ob Jóhann Sveinsson úr
Ægi var fyrsti sundmaður-
inn til að ná lágmarkinu
þegar hann synti 100 m
bringusund á tímanum
1:01.77 áVÍS-mótiÆgis.
Þær sænsku
unnu í Portúgal
Sænska kvennalandslið-
ið í knattspyrnu mætti í
gær því portúgalska í und-
ankeppni HM
2007 en liðin em
með íslandi í riðli.
Þær sænsku
unnu, 4-1, með
mörkum Önnu
Sjöström, Malin
Moström og
Hönnu Ljungberg
sem skoraði tví-
vegis. Svíþjóð tók þar með
forystu í riðlinum og er
með sjö stig eftir þrjá leiki
en fsland og Tékkland em
með fjögur stig. Tékkland
hefur þó einugis leikið tvo
leiki.
Víkingar draga
kæru sína til
baka
Knatt-
spymudeild-
ir Vals og Vík
ings sendu í l
frá sér yflrlýsingu þess
efnis að Víkingar hafa dreg-
ið kæm sína til KSÍ til baka.
Þann 21. október síðastlið-
inn kærðu Víkingar Val fyrir
að hafa talað við samnings-
bundna leikmenn sína, þá
Grétar Sigfinn Sigurðsson
og Viktor Bjarka Amarsson.
Þeir vom báðir í láni hjá
öðmm félögum síðastliðið
tímabil, Grétar hjá Val og
Viktor Bjarki hjá Fylki.
Þórður tilkynn-
ir ákvörðun
sína í dag
Knattspymumaðurinn
Þórður Guðjónsson mun
seinni partinn í dag gera
grein fyrir ákvörðun sinni
um hvort hann muni leika
með ÍA eða FH í Lands-
bankadeildinni á næsta ári.
Þórður staðfesti í samtali
við DV Sport í vikunni að
aðeins þessi tvö félög
kæmu til greina hjá hon-
um. Þórður kom til lands-
ins í gær í einkagjörðum en
mun nýta tækifærið og
ganga frá sínum málum
áður en hann heldur aftur
út til Englands.
í gær birtist í Fréttablaðinu frétt um að Valsmenn væru að borga þeim Vali Fannari
Gíslasyni og Pálma Rafni Pálmasyni, nýjum liðsmönnum sínum, allt að fimm millj-
ónir króna í árslaun hvorum. Valur Fannar segir þessar tölur íj arstæðukenndar og
að laun hans séu ekkert óvenjulegri en hjá öðrum félögum í Landsbankadeildinni.
„Valur mun borga tveimur nýjustu liðsfélögum sínum samtals
9,2 milljónir í árslaun," segir í forsíðutilvísun í Fréttablaðinu í
gær þar sem vísað er í frétt sem ber fyrirsögnina „Valur Fannar
fær fimm milljónir á ári“. Forráðamenn félagsins og Valur Fann-
ar sjálfur segja þessar tölur rangar.
„Ég get sagt að þetta er ekki svo
mikið," sagði Valur Fannar aðspurð-
ur um hvort hann sé með 420 þús-
und krónur í mánaðarlaun eins og
kemur fram í Fréttablaðinu í gær.
„En það er hægt að meta allt.
Kannski ef við verðum Evrópu-
meistarar og íslandsmeistarar með
alla hugsanlega bónusa inn í laun-
unum væri þessi tala rétt. En það er
eitthvað allt annað en venjuleg
grunnlaun."
Valur Fannar segir að sín samn-
ingsmál séu ekkert frábrugðin öðr-
um samningum sem aðrir leikmenn
hafa. „Þetta eru ekki einstakar tölur
og það er ekki hægt að krossfesta
mig á þennan máta. Þetta er látið
líta út eins og þetta sé eitthvað nýtt
af nálinni en svona er bara launa-
kerflð í dag. Það er bónustengt eins
og hjá svo mörgum öðrum stéttum.
Það er alveg klárt að grunnJaunin
eru ekld upp á þessa upphæð og það
er svolítið fjarstæðukennt að halda
þessu fram.“
Tíu milljónir fyrir KA-menn?
Auk þess er því haldið fram að
KA-mennimir Pálmi Rafn Pálmason
og Jóhann Þórhallsson munu fá í
sinn hlut frá Valsmönnum rúmar tíu
milljónir króna. Pálmi Rafn 4,2 millj-
ónir, eða 350 þúsund krónur á mán-
uði, og „heildarsamningur [Jó-
hanns] sem hleypur á yfir sex millj-
ónum króna."
Jón Gretar Jónsson stjórnarmeð-
limur í knattspymudeild Vals vildi
lítið segja um fréttina annað en að
hún væri röng. „Við stöndum ekki í
svona slag og það er ljóst að það
verður aldrei gefið upp hvað stendur
í þessum samningum. Þetta er ekki
rétt en það þýðir samt ekki alltaf að
henda einhverju á mann og ætlast til
að maður svari því," sagði Jón Gret-
ar en bætti þó við. „Þetta á sér enga
stoð í raunveruleikanum."
Börkur Edvardsson formaður
knattspyrnudeildar Vals vildi engum
spurningum svara um þetta mál.
„Ég hef ekki einu sinni lesið þessa
frétt," sagði hann.
Hafnaði Jóhann sex milljón-
um?
Samkvæmt sömu frétt mun KA-
maðurinn Jóhann Þórhallsson hafa
hafnað tilboði frá Breiðabliki sem
fæli í sér árslaun upp á sex milijónir
króna. Þriðjungur þeirra upphæðar
átti reyndar að vera launagreiðslur
þess vinnuveitanda Jóhanns sem
Blikar hefðu komið honum í vinnu
hjá.
Steini Þorvaldsson, formaður
knattspyrnudeildar Breiðabliks, vís-
aði þessu á bug og sagði þessar tölur
rangar. „Þetta eru ekki þær tölur
sem við vorum með þegar við rædd-
um við Jóhann og er þetta talsvert
langt frá því. Þessar tölur eru út úr
kortinu." eirikurst@dv.is
Valur Fannar Gíslason og Pálmi Rafn Pálmason skrifuðu undir hjá Val í gær
Líst vel á mig í nafna mínum
Valur skrifar undir hjá Val
Þaö mætti halda þvífram að
Valur ætti best heimn í i/w/
„í nafna mínum? Jú, mér líst vel
á mig í nafna mínum," sagði Valur
Fannar Gíslason aðspurður um sitt
nýja félag, Val. Hann ásamt Pálma
Rafni Pálmasyni voru kynntir sem
nýir leikmenn liðsins á blaða-
mannafundi knattspyrnudeildar
Vals í gær. Þá framlengdu Sigur-
björn Hreiðarsson fyrirliði liðsins
og Kristinn Geir Guðmundsson
markvörður samninga sína við fé-
lagið.
Valur Fannar lék síðast með
Fylki og þar áður með Fram og því
eru Reykjavíkurfélögin sem hann
hefur leikið með orðin þrjú. „Ég veit
ekki hvort það sé neitt sérstakt. Axin
mín ijögur í Árbænum voru frábær
og kveð ég félagið í mikilli sátt. Þar
kynntist ég yndislegu fólki og ég
vona að ég geri það aftur á nýjum
stað. Það er alltaf gaman að prófa
eitthvað nýtt."
Valur varð bikarmeistari á sínu
fyrsta ári með Fylki og segist hann
að sjálfsögðu að bæta við titlum í
safnið með nýju félagi. Pálmi Rafn
tekur í sama streng en hann kemur
frá KA þar sem hann átti mjög gott
tímabil í sumar. „Hingað kom ég til
að gera mitt besta og það er von-
andi að það leiði til þess að liðinu
vegni vel.“
Pálmi hefur verið orðaður við
nokkur lið erlendis og segir hann að
það sé draumur sinn eins og margra
annarra að komast að í atvinnu-
mennskunni. „Ég fæ gott tækifæri
hjá Val til að koma mér á ffamfæri
og ætla að reyna að nýta tækifærið
vel til að bæta mig sem knattspyrnu-
maður." eirikurst@dv.is