Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Blaðsíða 18
78 LAUGARDACUR 5. NÓVEMBER 2005 Sport 0V Guðni Rúnar áfram hjá Fylki Guðni Rúnar Helgason, knatt- spyrnumaður hjá Fylki, hyggst spila með liðinu á næsta sumri í Landsbanka- deildinni, enda á hann eitt ár eftir af samn- ingi sínum. Þetta staðfesti hann í samtali við DV Sport. Guðni hætti að spila með Fylki undir lok síðasta sum- ars og var ákveðið að hann yrði i fríi þar til Þorlákur Árnason, þáverandi þjálfari félagsins, hætti störfiim. Guðni segir að nú sé ekkert því til fyrirstöðu að spila áfram með félaginu en Leif- ur Garðarsson hefur tekið við þjálfun liðsins. Samkeppni fyrir Gylfa Gylfi Einarsson hefur fengið erfiða samkeppni um stöðu í liði Leeds þar sem írski miðvallar- leikmaðurinn Liam Mifler hefur verið lánaður til félagsins frá Manchester United til janú- armánðar. Gylfi er þessa stundina að taka út þriggja leikja bann vegna rauðs spjafds sem hann fékk í leik gegn Blackburn í deildabik- arkeppninni á þriðjudag í síðustu viku. Gylfi hefur mátt berjast fyrir sæti sínu í liðinu og koma Miller mun síst leggja þeirri baráttu lið. EKKIMISSA A F ÞESSU Laugardagur 12.55 Meistaramót Icelandair og lan Rush í beinni á Sýn. sðn 13.50 AC Milan-Udi- nese á Sýn. 14.00 Víkingur-Haukar í DHL-deild kvenna. Einnig mætast Stjarnan og Grótta (14.15, beint á Rúv) og KA/Þór og 11K (15.00). 14.55 Newcastle-Birmingham auk fjölda annarra leikja í beinum útsendingum á Enska Boltanum. 16.15 Stjarnan-Fylkir í D1 IL-deild karla, leikur- inn er sýndur á Rúv. S7=/T? 17.55 Real Madrid- Zaragoza á Sýn. Sunnudagur 15.00 FH-ÍBVíDHL- deild kvenna. a 15.50 Manchester United-Chelseá á Enska Boltanum. 16.00 IBV-Afturelding í DHL-deild karla. n l 16.00 Grindavík-KR í 1 Rowerade bikarkeppni kvenna. n k 18.15 Grindavík-Kefia- Ivík í Powerade bikar- keppni karla. Kl. 19.15 hefjast lcikir Fjölnis og Skallagríms, IR og Njarðvíkur og Snæfells og Klf í sömu keppni. r > t J Þ ^19.15 Breiðablik-llauk- lar í Iceland Express deild kvenna. íþróttafréttavefur BBC sagði frá því í gær að enska 1. deildar- liðið Southampton hafi sent út- sendara sinn á leik Lens og Halmstad í UEFA-bikarkeppn- inni í fyrradag, til þess að fylgjast með Gunnari Heiðari Þorvalds- syni sem leikur með síðamefnda félaginu. Þeir sænsku töpuðu reyndar stórt, 5-0, í leiknum. Southampton er eitt fjöl- margra félaga sem hafa verið orðuð við Gunnar Heiðar á síð- ustu dögum og vikum en engu er líkara en að Gunnar Heiðar sé allra heitasti framherji Evrópu þessa dagana, slíkur er áhuginn. Auk Southampton hafa Ev- erton, Birmingham, Watford og Reading sýnt Gunnari Heiðari áhuga. Hið sama má segja um þrjú bestu liðin í Skotlandi, Celt- ic, Rangers og Hearts. Þá hafa frönsk lið fylgst með stráksa sem og þýsku úrvalsdeildarliðin Hamburger SV, Hannover 96 og Werder Bermen auk fleiri félaga í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu. Hann mun einnig vera efstur á óskalista forráðamanna Djurgárden sem unnu tvöfalt í Sviþjóð í ár en það em víst fá lið í Skandinavíu sem væm ekki til í að vera með Gunnar Heiðar inn- anborðs. Búinn með Skandinavíu En þrátt fyrir þennan mikla áhuga hefur Halmstad slegið skjaldborg um Gunnar Heiðar, að minnsta kosti þar til þátt- töku liðsins í UEFA-keppninni er á enda komin. Félagið hefur fengið ófáar fyrirspurnir um hann og beiðnir um að fá hann til reynslu hjá viðkomandi fé- lagi en þeim hefur öllum verið hafnað. En sjálfur er Gunnar Heiðar einstaklegájarðbundinn dreng- ur og lætur þetta ekki á sig fá. „Jú, maður er búinn að heyra af áhuga víða frá. En það þýðir ekkert að pæla í því, maður reynir bara að spila sinn leik og ef einhver annar sér eitthvað í því þá hringja þeir í mann,“ sagði Gunnar Heiðar við DV Sport í gær. En skyldi hann bú- ast við því að leika með Halm- stad á næsta tímabili? „Ef ég segi alveg eins og er þá held ég ekki. Ég á eitt ár eftir af samn- ingi mínum og býst því við að verða seldur í janúar, vilji félag- ið fá einhvern aur fyrir mig.“ Gunnar Heiðar segist þó vilja spila annars staðar en í Skandinavíu. „Nei, nú er maður búinn með Skandinavíu," sagði hann í léttum dúr. „Nú heldur maður bara áfram til annarra landa." Ekki ólíkur Hemma Ólafur Garðarsson er um- boðsmaður Gunnars Heiðars og segir að þrátt fyrir þennan milda áhuga láti hann það ekki á sig fá. „Þetta er mjög einbeitt- ur strákur sem er harðákveðinn í að bæta sig. Hann er búinn að leggja hart að sér og er til að mynda búinn að þyngjast um fimm kíló. Hann er með mikið sjálfsálit án þess að vera sjálf- umglaður, hann veit hvað hann getur og veit líka hvar hann get- ur bætt sig,“ sagði Ólafur og bætti því við að hann teldi að hann ætti eftir að ná langt. Annar Eyjapeyi sem hefur náð langt í knattspyrnuheimin- um er Hermann Hreiðarsson, varnarmaðurinn sterki hjá Charlton. En þó svo að þeir séu ólíkir knattspyrnumenn eru þeir ekki ólíkir persónuleikar. „Það er margt likt með þeim - það virðist vera eitthvað sér- stakt út í Eyjum sem mótar þessa drengi. Þeir eru báðir harðákveðnir í að ná langt og hafa óbilandi trú á sjálfum sér.“ eirikurst@dv.is Gunnar Heiðar Þorvaldsson Er hér i leik með Halmstad gegn franska liðinu Lens I UEFA-bikar- keppninni, sem fór fram i fyrradag. Hér er hann i baráttu gegn Seydou I | Keita, varnarmanni Lens. Gunnar þótti standa sig vel f leiknum. Hollenski framherjinn ekki ánægöur með gang mála hjá Manchester United Það versta sem van Nistelrooy hefur séð „Þetta hlýtur að vera erfiðasti tíminn sem ég hef upplifað hjá fé- laginu. Þegar ég kom fýrir 4 og hálfu ári þá var eins og við værum ósigrandi. Ég man eftir leikjum þegar ég var að fá fjögur til fimm góð tækifæri, fékk stöðuga þjón- ustu og það var sókn við sókn. En nú er allt breytt, svo mikið breytt en ég get ekkert gert í því," segir Ruud van Nistelrooy um lið sitt Manchester United sem hefur tapað tveimur leikjum í röð og er sem stendur í 7. sæti ensku úrvals- deildarinnar og á leið út úr Meist- aradeildinni ef litið er á stöðu þess í riðlinum. Van Nistelrooy hefur skorað 10 mörk á tímabilinu en hefur ekki komist á blað í síðustu flórum leikjum í deild og Meist- aradeild en United vann engan þeirra. „Við erum ekki að spila vel. Við eigum í erfiðleikum með að halda boltanum og erum ekki að ná góð- um sóknum. Við erum í raun ekki að spila á sóknarhelmingi vallars- ins, það eru engar fyrirgjafir að koma og við erum ekki að vinna annan boltann. Við náum ekki að setja pressu á andstæðingana og sjálfstraustið hjá liðinu er í mol- um,“ bætti Ruud van Nistelrooy við en hann skoraði 8 mörk í fyrstu 8 leikjum United í ensku úrvals- deildinni. Stjórinn Sir Alex Fergusson er þegar búnn að afskrifa enska meistaratitilinn þar sem liðið er þrettán stigum á eftir toppliði Chelsea en van Nistelrooy er ekk- ert alltof bjartsýnn á betri tíma það sem eftir er af tímabilinu. „Við viljum cillir komast aftur á ferðina en spurningin er bara hvernig við eigum að fara að því. Við verðum að taka allt inn í myndina, liðið, einstaklingana. Við vitum hver og einn hvað þarf að gerast en þegar okkar lið er borið saman við Chel- sea þá þarf ekki að segja fleiri orð,“ segir Ruud van Nistelrooy sem segist ekki vera á leiðinni frá liðinu þrátt fyrir að málin líti ekki vel út því hann ætli að standa með Manchester United í gegnum bæði súrt og sætt. Ekki dómurunum að kenna Ruud van Nisteirooy er ekki ángður með gang mála hjá iiði sinu Manchester United. DV-mynd Gettyimages
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.