Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005
Helgarblað DV
'-»r
V
Eitt frægast morðið í
Hollywood gerðist á eftirstríðsár-
unum í Los Angeles. Elizabeth
Short, aðlaðandi ung kona fannst
myrt á hrottalegan hátt. Eftir að
morðið komst í fjölmiðla fékk
Elizabeth viðumefnið Svarta dalí-
an af því að hún klæddist alltaf
svörtum fötum. Morðingi Eliza-
bethar fannst aldrei og þetta
óupplýsta mál fékk á sig goðsagn-
arkenndan blæ. Bækur og bíó-
myndir hafa verið gerðar um
morðið sem er enn þann dag í
dag algjör ráðgáta.
Slátraði
fjölskyldu
, sinni
Óhugnalegt morðmál. Árið
1971 keypti 46 ára maður, John
List, flugmiða aðra leið - flaug til
nýrrar borgar og hóf nýtt líf.
Nokkrum dögum síðar fann lög-
reglan alla fjölskyldumeðlimi
hans látna á heimili Johns þar
sem drungaleg orgel músík var
undirtónn harmleiksins. Hann
hafði slátrað eiginkonu sinni,
þremur bömum og aldraðri móð-
ur áður enn hann flúði. Það var
ekki fyrr en nokkrum áratugum
síðar sem John List náðist - efúr
að þáttur um sönn sakamál fjall-
aði um mál hans.
Fuglafræð-
ingurí
fangelsi
Einnfræg-
asti fanginn í
Alcatraz-fang-
elsinu var Ro-
bert Stroud.
Árið 1908 skaut
Robert mann
til bana sem
hafðibarið
kærustuna
hans. Robert
var dæmdur til langrar vistar í
Alcatraz-fangelsinu, sem gert var
frægt í kvikmyndum á síöustu
öld. í fangelsinu varð Robert sér-
fræöingur í fuglum, hvemig þeir
lifðu, fjölguðu sér og þeim sjúk-
dómum sem fylgja ftiglum.
Stroud var afar umdeildur en
hann barðist þar til hann dó fyrir
frelsi til að geta haldið áfram vís-
indarannsóknum sínum á fugl-
nm
Goðsagnar-
kennt morð
Árið 2001 var 12 ára franskri stúlku nauðgað í úthverfi nálægt Marseille. Ári síðar
sagði hún loks foreldrum sínum frá ódæðisverkinu. Faðir stúlkunnar, 35 ára sjó-
maður, tók lögin í sínar eigin hendur, leitaði uppi manninn sem nauðgaði dóttur
hans og skaut til bana með haglabyssu. Málið vakti gríðarlega athygli í Frakklandi
þar sem hinn almenni borgari tók hlið föðursins.
Drap manninn sem
nauðaaði dóttur hans
Sjómaðurinn Thierry Ferrer lifði ósköp venjulegu lífi í lítilli íbúð
í Toulon skammt frá Marseille. Hann átti 44 ára gamla eigin-
konu, Madeleine, og þrjú heilbrigð börn - það yngsta stúlka að
nafni Virginie. Haustið 2001 breyttist þó líf fjölskyldunnar til
muna. Virginie, sem ávallt var kát og glöð, varð skyndilega af-
undin og sýndi öll merki alvarlegs þunglyndis. Einkunnir henn-
ar í skóla lækkuðu, hún hætti að hirða um sig og lokaði á vini
sína og fjölskyldu sem vissu ekki hvað hafði gerst. Að 12 ára dótt-
ur þeirra hafði verið nauðgað.
í febrúar 2002 versnaði ástandið.
Virginie ákvaö að flytja frá foreldr-
um sínum og í heimili fyrir ungt
fólk. Hún sannfærði starfsfólkheim-
ilisins að hún ætíaði að snúa aftur
heim áður en hún yrði 13 ára gömul
í lok mánaðarins. Þegar Virginie
sneri aftur faðmaði hún móður sína
sem skynjaði um leið að eitthvað al-
varlegt væri að.
„Gekk ekki allt vel?" spurði móð-
irin. „Eru hinir krakkamir að stríða
þér?"
„Nei, mamma," svaraði Virginie
og byrjaði að gráta. Skyndilega
missti Virginie grfmuna og í gegnum
ekkasogin sagði hún móður sinni
alla sannleikann.
„Mér var nauðgað," sagði hún.
Litla leyndarmálið
Faðir Virginie hafði fram að
þessu setið þögull í hægindastól í
stofunni. Hann stóð nú upp og
sagði dóttur sinni að hann myndi
vernda hana. Virginie útskýrði því
næst fyrir föður sínum hvað hafði
gerst. Hún hefði farið út að leika sér
með vinum sínum á miðvikudags-
kvöldi. Hitt mann sem sagðist vera
vinur bróðir hennar og boðið henni
í heimsókn. Hún hefði farið heim til
hans, haldið að bróðir hennar væri
þar. Þegar hún hefði komið í íbúð-
ina hefði maðurinn rifið af henni
fötin, nauðgað henni og sagst ætía
að drepa hana segði hún einhverj-
um frá „leyndarmálinu þeirra."
Skotinn með haglabyssu
Thierry Ferrer reis á fætur og
náði í haglabyssu í lokaðan skáp í
stofunni. Hann fór með dóttur sína í
„Þegar lögin geta ekki
lengur verndað þá
saklausi, börn og kon-
ur, getum við þá
dæmt mann fyrir að
taka lögin í eigin
hendur?"
Sakamál
bíl og keyrði um hverfið þar sem
maðurinn átti heima. Á einu kaffi-
húsinu benti dóttur hans á mann-
inn og Thierry stöðvaði bílinn. Gekk
inn á kaffihúsið og horfðist í augu
við nauðgarann sem sat og daðraði
við ljóshærða konu. í fyrstu var að-
eins skilningsleysi í augum manns-
ins en þegar hann sá dóttur Thierry
í dyragættinni breyttist skilnings-
leysið í skelfingu.
Thierry skaut manninn í bakið
þegar hann reyndi að flýja út um
bakdymar.
Stuðningur almennings
Réttarhöldin yfir Thierry vöktu
gríðarlega athygli á Frakklandi. Eftir
morðið hringdi Thierry sjálfur í lög-
regluna og gaf sig fram. Hann viður-
kenndi hvað hann hafði gert og
fljótíega komust franskir blaða-
menn að sannleikanum á bak við
morðið. Þá byrjaði að rigna stuðn-
ingsbréfum til ijölskyldu Thierry.
Frakkar voru bitrir út í hvernig rétt-
arkerfið höndlaði nauðgara og
fannst tímabært að einhver tæki
lögin í eigin
hendur. Sjálfur
hafði Thierry átt
góðan vin sem
var misnotaður í
æsku en barna-
níðingurinn var
sýknaður sökum
fyrningar.
Tók lögin í
eigin hendur ga&s/
I dag situr
Thierry enn í fangelsi en Madaleine
eiginkona hans heimsækir hann á
hverjum degi. Dóttir Thierry reyndi
eftír atburðinn að ná aftur sjálfs-
virðingu sinni með hjálp ráðgjafa og
sagði síðar í viðtölum að stuðningur
almennings í Frakklandi hefði
hjálpað henni gríðarlega. Kannski er
besta dæmið um almenningsálitið
orð vinar fjölskyldunnar fyrrum lög-
reglumanns í frönskum fjölmiðlum.
„Þegar-lögin geta ekki lengur vernd-
að þá saklausi, börn og konur, get-
um við þá dæmt mann fyrir að taka
lögin í eigin hendur?"
Fyrir utan domshusið
Múgur og margmenni
mætti tilstuðnings Thi-
erry við réttarhöldin.
vettvangur
skotárásarinnar
Hérsat nauðgarinn
sem Thierry skaut.
Fjölskylda Thierry Fer-
rer Með stuðningsbréffrá
frönskum almenningi.
Fjórtán ára stúlka var myrt með köldu blóði en morðið komst ekki upp fyrr en 20 árum síðar
Látin móðir kom upp um morð sonar síns
I einu ótrúlegasta dæmi um
mistök við rannsókn náði réttíætið
loks fram að ganga 29 árum eftir að
hrottalegt morð var framið. Árið
1975 í Massachusett var 14 ára
skólastelpa, Robin Gilbert, myrt
með köldu blóði. Hún fannst illa
farin, fötin rifin, hálfgrafin í runna.
Þrátt fyrir að allt benti tii morðs úr-
skurðaði réttarmeinafræðingur að
dánarmein Robin væri hjartaáfall. í
29 ár lá sannleikurinn grafinn með
Robin þangað til dagbókarskrif lát-
innar móður morðingjans kom
málinu af stað á ný.
Það var í júlí árið 1975 sem
Robin hvarf eftir að hafa fengið sér
göngutúr síðla kvölds skammt frá
heimili sínu. Morguninn eftir gerðu
foreldrar Robin lögreglunni viðvart
og leit hófst að fjórtán ára
stúlkunni. Skammt frá heimili
hennar rakst gangandi vegfarandi á
líkið. Robin var fundin.
Á þessum tíma þekktust DNA
rannsóknir ekki. Réttarmeinafræð-
ingur skoðaði líkið og komst að
ótrúlegri niðurstöðu. Robin hefði
fengið hjartaáfall, dottið og fötin
rifnað þegar hún rúllaði eftir jörð-
inni.
Lögreglumaður sem rannsakaði
málið sagði síðar: „Úrskurður rétt-
armeinafræðingsins var lokaniður-
staða. Við gátum ekki rannsókað
málið sem morð þegar enginn
hafði verið myrtur."
Tíminn leið og smátt og smátt
féll morðið á Robin Gilbert í
gleymsku. Árið 1996 fékk lögreglan
svo nafnlausa ábendingu um dag-
bók Marjorie Jones, móðir David
Allans Jones sem átti eftir að vera
dæmdur fyrir morðið á Robin Gil-
bert.
í dagbókinni sagði móðirin frá
því hvað sonur hennar hafði gert.
Lögreglan var fljót að handtaka
David sem átti að baki langan saka-
feril fyrir allt frá smáþjófnaði til
nauðgana og ofbeldisbrota. í kjöl-
farið var lík Robin Gilbert
grafið upp og rannsakað
á ný. í þetta sinn úr-
skurðuðu réttarmeina-
fræðingar að hún hefði
verið kæfð.
Hjartaáfall breyttist í
morð.
David Allan Jones var
árið 2002 dæmdur í
átján ára fangelsi.
Fjölskylda Robin Gil-
bert sagði eftir dóm-
inn að eftir öll þessi
ár væri þau fegin að
sannleikurinn væri
loksins kominn í ljós.
i______________^
David Allan Jones
handtekinn Setturlvarð-
hald fyrir morð sem hann
framdi 20 árum áður.
í réttarsalnum
David var dæmdur
í átján ára fangelsi.
*