Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Qupperneq 27
I>V Helgarblað
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005 27
Eg hef alltaf vitað að ég myndi
mennta mig meira en verið
mjög leitandi hvar ætti að
bera niður þar sem margt vekur
áhuga minn. Ég hugsaði um allt
milli himins og jarðar, frá ljós-
myndun, arkitekta- eða hönnunar-
námi til lögfræði og var ljóst að
þetta þurfti að vera að einhveiju
leyti skapandi," segir Katrín einlæg
spurð hvort hún hafi alltaf ætíað sér
að sinna starfl sjónvarpsþulunnar
og kennslu. „Ég er sumsé sest aftur
á skólabekk og það var skrýtin til-
finning fyrst en skemmtilega nýtt
allt,“ viðurkennir Katrín og heldur
áffam full áhuga: „Hugurinn leitaði
alltaf aftur og aftur í íjölmiðlanám
og nú er ég byrjuð I MA-námi í
blaða- og fréttamennsku í Háskóla
íslands sem er gríðarlega skemmtí-
legt. Það má því segja að ég sé að
feta í fótspor bæði mömmu, sem er
kennari en ég útskrifaðist úr Kenn-
araháskólanum 1999, og pabba
sem vann nánast allt sitt líf á fjöl-
miðlum, bæði á dagblöðum og ljós-
vakamiðlunum. Hann menntaði sig
þó í lögfræði en starfaði aldrei við
það, enda mikilvægt að fjölmiðla-
fólk komi úr ólíkum áttum og með
fjölbreytta menntun að baki,“ segir
Katrín Brynja sem upplifði þá erf-
iðu sorg að missa föður sinn sem
hafði barist við krabbamein.
Erfiður föðurmissir
„Það að fylgjast með foreldri
sínu greinast með krabbamein,
takast á við mjög erfiðan sjúkdóm
og meðferðir og að lokum deyja er
eflaust eitthvað sem mun merkja
mig fyrir lífstíð. Ég er býsna langt
frá því að vera sama Katrín Brynja
og áður en þetta ferli hófst en um
leið verð ég að líta á mig sem
reynslunni ríkari. Ekki bara mín
vegna, heldur líka Mána Freys. Við-
horf pabba til þessa viðfangsefnis
er samt hinn stóri lærdómur og
hann á aðdáun mína alla. Mér
fannst á stundum mjög undarlegt
hvernig hann gat tekist á við þetta
mótlæti beinn í baki, alveg fram á
síðasta dag,“ segir Katrín óhrædd
við að ræða tilfinningar sínar og
heldur áfram: „Þó aldrei með nein-
um töffaraskap, hann átti sínar erf-
iðu stundir eins og við öll. Við not-
uðum tímann eins vel og okkur var
unnt og hver stund sem við áttum
saman var ljúfsár því við vissum að
þetta yrði að öllum líkindum ekki
endurtekið. Mín tílfínning segir
mér hins vegar að pabbi sé alltaf hjá
mér.“
Góð mamma
Móðurhlutverkið er ríkt í
Katrínu, það skín úr augum hennar
og góðri og afslappaðri návist. „Það
er þvílík upplifun á hverjum einasta
degi að eiga barn og alltaf heldur
maður að þetta geti ekki orðið
skemmtilegra. Vinir mínir sem eru
komnir lengra en ég í þessum mál-
um segja mér hins vegar að hvert
skeið hafi sinn ótrúlega sjarma og
þetta sé alltaf gaman. Ég legg mikla
áherslu á að njóta Mána Freys og
hvers dags sem ég fæ með honum.
Ég segi honum á hverjum einasta
degi að ég elski hann og það er
„Það að fylgjast með
foreldri sínu greinast
með krabbamein,
takast á við mjög erf-
iðan sjúkdóm og
meðferðir og að lok-
um deyja er eflaust
eitthvað sem mun
merkja mig fyrir lífs-
tíð.
kannski farið að fara inn um annað
og út um hitt en ég vona að mér
takist að láta hann finna að hann á
hug minn allan. Ég hef mjög gaman
af því að hlusta á snillinginn hann
Hugo Þórisson, og reyni eftir bestu
getu að tileinka mér hans speki.
Foreldrahlutverkið er sennilega
það flóknasta en um leið það
skemmtilegasta sem maður fær að
takast á við í þessu lífi,“ segir hún.
Ætlar að efla andann
„Ég hef áhuga á að efla andann
og sjálfið og á gríðarlegt magn af
bókum sem allar eiga að veita þetta
eina sanna svar. Ég hef líka mikinn
áhuga á innanhússhönnun og get
legið endalaust yfir svoleiðis tíma-
ritum. Mig langar að læra golf og sé
mig auðveldlega fyrir mér á golf-
vellinum, að sjálfsögðu að leika
snilldarvel. Veit samt ekki hvað þol-
inmæði mín fleytir mér langt í
þessu tæknilega sporti en þetta er
allavega eitthvað sem mig langar að
gefa tækifæri hvenær sem það verð-
ur. Einhvern veginn er það svo að
eftir að Máni Freyr fæddist hafa
þessar svokölluðu frístundir svo
gott sem þurrkast út. Hans þarfir
koma fyrstar og hann er lítið settur
í pössun þessi elska. Ætli eigingirni
foreldranna spili þar ekki stórt hlut-
verk?" segir hún hlæjandi. „En við
gerum reglulega tilraun til þess að
fara niður að Tjörninni og gefa önd-
unum eða öllu heldur mávunum
brauð og styrkjum ísbúðina á Haga-
mel oftar en góðu hófi gegnir. Þess
á milli dundum við okkur heima, ég
að læra og Máni Freyr í hlutverki
íþróttaálfsins sem á hug hans allan
þessa dagana. Merkilegt hvað þetta
konsept hefur góð áhrif. Hann er
óseðjandi af paprikum og gúrkum
sem hafa hlotið hið virðulega nafn
íþróttanammi og steypir sér í koll-
hnísa í tíma og ótíma! Á hliðarlín-
unni stöndum við foreldrarnir og
klöppum."
Þulustarfið
„Við fáum vinnuskipulag í lok
hvers mánaðar og skipuleggjum
okkur út frá því. Ef eitthvað kemur
upp á hjá einhverju okkar erum við
boðin og búin til að aðstoða og
skipta vöktum ef þess þarf. Það er
svona þegjandi samkomulag okkar
á milli að hjálpast að og láta þetta
ganga upp fýrir alla. Ég mæti klukk-
an fimm í smink og það er alltaf
gaman. Förðunardömurnar eru
skemmtilegar og oft hafa átt sér
stað afar innihaldsríkar samræður á
meðan „andlitið" er sett á mann og
ýmis mál krufin til mergjar. Það er
svolítið skemmtilegt samband sem
myndast á milli förðunardömu og
þess sem er farðaður. Rétt fyrir sex
er ég tilbúin í fyrstu kynningu og þá
er maður kominn £ ákveðnar stell-
ingar. Textinn, sem við búum til
sjálf, er lagfærður og kvöldið
nokkurn veginn kortlagt. Það er
einstaklega gott að vinna í Sjón-
varpinu og þetta er engin klisja, það
er bara þannig. Þarna ríkir góður
andi og fólk er tilbúið til að gefa af
tíma sínum. Allir vinir í skóginum
þrátt fyrir stress og annríki," segir
hún brosandi.
Spáð í Katrínu
Sjónum er
beint að Katrínu
Brynju Her-
mannsdóttur
sjónvarpsþulu og
framtíð hennar.
Hún er einlæg
móðir og for-
dómalaus gagn-
vart tarotlögninni
sem Helgarblaðið
leggur fýrir hana.
Nærvera Katrínar
er áberandi góð
og afslöppuð.
9bikarar
Umhyggja, heið-
arleiki og jákvætt við-
horf til lífsins lýsir
Katrínu best þar sem
ást, vinátta, góður
félagsskapur og
notalegt umhverfi
eilir þig á allan
hátt. Hátíðahöld
eru framundan. Vei;
höldin tengjast skyldfólki Katrínar á
einhvem hátt og vinir og félagar
koma fyrr en síðar saman og fagna
með henni í góðu yfirlæti. Gleðin er
hljómurinn sem bergmálar í kring-
um hana á sama tíma og mannleg
samskiptí veita henni mikla gleði og
færa sjálfið á hærra stig.
9mynt
Velferð þín er
fyrirfram ákveðin
af æðri öfium.
Hér er þér lýst
sem manneskju
sem kýs að vera
ein endram og
eins og nýtur
þess að eiga
stundir með sjálfinu.
Þú hefur lagt á þig ómælda erfiðis-
vinnu til að ná þeim árangri sem þú
býrð við í dag. Nú er komið að þér að
njóta tilverunnar. Þú átt það til að
efast um að framhaldið verði jafn
gott og spár segja en þar ert þú að
eyða tíma þínum í óþarfar áhyggjur.
Fjárhagslegt öryggi einkennir fram-
tíð þína.
Brynju
Styrkur
Ljónið táknar
tilfinningar sem
þú býrð yfir.
Styrkur þinn er
mikill og öflug-
ur í mjög víð-
um skilningi.
Ef tilfinningar þínar
einkennast af vanlíðan munu þær
ýta undir enn verri tilfinningar með
tímanum. Sér í lagi ef um afbrýði-
semi eða reiði er að ræða. Slíkar til-
finningar eyðileggja einungis fyrir
þér.
Þú skalt umfram allt
finna jafnvægi innra
með þér og nota kraft
þinn á réttan hátt því
hann mun nýtast þér
vel næstu misseri ef þú
ferð rétt að.
Jákvæðar tilfinning-
ar blómstra með þér og
styrkleika þínum ef þú
leyfir. Þú kemst í gegn-
um hvað sem er með
því að nýta orku þína
rétt. Sjálfstjórn og
móralskur styrkur býr
innra með þér. í faðmi
fjölskyldunnar yfir há-
tíðamar.