Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005
Helgarblað DV
Mikil umræða hefur verið um aðbúnað gamals fólks á
hjúkrunarheimilum eins og Sólvangi og Eir. Fæstir deila
um að þar mætti gera betur. Á elliheimilum er hins vegar
góður andi. Eldri borgararnir hafa nóg að gera og fæstir
kvarta undan aðbúnaðinum. DV heimsótti Hrafnistu og
komst að því að þar er hreinlega undan fáu að kvarta.
Allir dagar eru góðir dagar hjá gamla fólk-
inu á Hrafnistu í Reykjavík. Það kvartar ekki,
heldur unir sér vel í ellinni. Eftir hádegismat
tæmast gangarnir og herbergin standa auð.
Enda nóg að gera í saumaklúbbum, handverki
eða spilum. DV leit inn á efstu hæðina á
Hrafnistu - hæðina sem gamla fólkið kallar
himnaríki.
„Það getur verið að það sé gott að vera ann-
arsstaðar en það er allavega ekki betra en hér,“
segir Ingunn Jóhannesdóttir, hress gömul
kona sem situr og prjónar í tómstundaher-
berginu á Hrafnistu. Vala Hjartardóttir, leið-
beinandi, lítur brosandi yfir hópinn. Allir hafa
nóg að gera og einbeitnin skfn úr augum
gamla fólksins.
„Það er yndislegt að vera héma og fólkið er
frábært," segir Vala og tekur utan um Herbert
Guðbrandsson sem prjónar ótrúlega fallega
sokka eftir pöntun.
Myndlistarkona á gamalsaldri
í litlu herbergi fyrir aftan aðalsalinn situr
gömul kona og málar með pastellitum á hvít-
an striga. Hún er með fallega ljósmynd fyrir
framan sig. Ekki til að mála eftir, segir hún,
heldur til að veita sér innblástur. „Ég fór nú í
myndlistartíma þegar ég var ung kona. Maður
hafði samt lítinn tíma. Þurfti að ala upp börn-
in og skamma karlinn," segir Jóna Jónsdóttir
og bætir brosandi við: „Það er gott að geta
gripið í þetta. Maður vinnur þetta bara upp."
Stjörnuspá sem ekki stenst
Við kveðjum Jónu og sjáum lokaða hurð
sem stendur á saumaklúbbur. Fyrir innan sitja
fjórar hressar konur í hring með starfsmanni
Hrafnistu sem les upp úr stjörnuspá Vikunnar.
Það er glatt á hjalla og um leið og við komum
inn grípa konurnar saumadótið og hlæja.
„Þetta herbergi er kallað Hosiló," segir
Hildur Petra Friðriksdóttir og heldur svo áfram
að lesa upp stjömuspána. Spyr svo konurnar
hvort þær roðni líkt og forðum daga. Þær
gömlu halda nú ekki; segjast ekki vita hvað
gæti fengið þær til að roðna
Gleði hjá gömlum
Frammi í stóra herberginu em listmunir að
fæðast. Kristjana Leifsdóttir situr og málar fal-
legar myndir á brúnan dúk. Hún horfir stolt á
handverkið þegar við tökum mynd og segir að
trúlega verði þetta jólagjöfin í ár. Vala Hjartar-
dóttir bætir við að margir af þeim munum sem
gamla fólkið býr til sé síðan selt á basar.
Þær neikvæðu fréttir síðustu daga af að-
búnaði gamla fólksins í landinu skjótast upp í
hugann þegar maður sér gleðina í himnarík-
inu á Hrafnistu.
simon@dv.is
Fanney Andrésdóttir fædd
1911 Er til hægri á myndinni.
Sagðist þrátt fyrir háan aldur
ekki upplifa sig eldri en sjötuga.
Ólst upp í sveit fyrir vestan en
flutti á mölina árið 1930.„Það
væri nú gaman að fara aftur
vestur," sagði hún.„En manni
liður bara svo vethérna."
Spilaklúbburinn á Hrafnistu Oddgeir, Guðrún, Gísli og Þórdis spila brids á hverju
kvöldi og skemmta sér vel.
Saumaklúbbur i hosiló Jóna, Guðrún, Rúna og Rósa er hressar gamlar konur sem Kristjana Leifsdóttir Málar fal-
mæta i saumaktúbb eftir hádegismat. Þar er farið yfir stjörnuspá Vikunnar og rætt legar myndir á brúnan dúk. Segir
um mál sem ekki eru fyrir viðkvæmar sálir! þennan dúk vera jólagjöfina i ár.
Sigríður Friðriksdóttir 97 ára Við
hlið hennar stendur Guðrún vinkona
hennar. Þær eru báðar frá Eyjum en
komu til borgarinnar eftir gos. Þrátt
fyrir háan aldur segist Sigriður vera
hress; henni liði afar vel á Hrafnistu i
góðra vina hópi.
Hvergi betra að vera IngunnJó-
hannesdóttir vefur finnsktpinna-
teppi semer bæði góð æfing fyrir
hendurnar og svo er teppið fallegt
og gott að hafa fyrir framan rúmið.
Góð stemning „Við leyfum nú
konunum að vinna," sagði Gi's/i'
sem horfir á myndinni til hliðar.
Gisli Marteinn færðist i tal og
var gamla fólkið sammála um
að Vilhjálmur væri þeirra mað-
ur.„Ef Gi's/i' vinnur kemst Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki að,"
sögðu konurnar og bættu við að
hann væri ofsjálfumglaður.
Vala Hjartardóttir leiðbein-
andi Segir yndislegt að vinna á
Hrafnistu.