Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Page 42
42 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005
Helgarblað DV
Þær eru konur sem ber á í þjóðfélaginu, konur sem eru öðrum konum innblástur á margan hátt. Þær
eru flottar, heillandi, myndarlegar og áberandi. Enda einstaklega glæsilegar allar á hátt. Hvar sem þær
koma tekur fólk eftir þeim, horfir á þær með aðdáun. Þetta _ eru dívur íslands.
r*
Er fyrirmynd margra kvenna á ís-
landi, bæði fyrir fegurð og atorku.
Hún rekur fleiri tískuvöruverslanir
en aðrar konur hér á landi. Hún hef-
ur næmt auga fyrir tísku og stíl.
Margar konur líta á hana sem flotta
og fágaða konu sem þær vildu líkjast.
„Hún er geislandi af orku, gefur
konum innblástur."
„Svava er alltaf ótrúlega smart,
hver vill ekki komast í fataskápinn
hennar? Hún er svona galakona, fer-
túg en lítur út fyrir að vera í mesta
lagi þrítug."
„Lítur út fyrir að vera traustur
vinur og lætur ekki vaðayfir sig. Hún
er svona auður í krafti kvenna, ber af
í glæsileika."
Hún er ein þeirra sem álitsgjafam-
ir væm til í að eyða kvöldstund með.
Konan sem stal hjarta Jóns
Óttars. Margrét er sú kona sem
alveg er hægt að líta upp til
bæði vegna útlits og orku. Hún
er sveipuð dulúð sem margar
konur dreymir um að hafa.
„Algjör frumkvöðull, með
mikla útgeislun, hefur komið
sér vel fyrir í lífinu."
„Kona sem hefur allt og virð-
ist hafa reynt mikið til að kom-
ast á þann stað sem hún er á í
lífinu."
„Virkilega þokkafull og dul-
arfullur persónuleiki, samt
alveg ótrúlega hlý.“
„Hún á eftir að ná miklu
lengra, lætur draumana ræt-
ast.“
Eva María er sú sjónvarpskona
sem hefur þann sjarma sem fær
mann til að vilja horfa á hana enda-
laust, hún hefur sígilda og flotta feg-
urð sem er eilítið sveitaleg en samt
svo flott. Sveitastíllinn hennar sem
gerir hana svo einstaklega eðlilega á
skjánum er hennar sterki sjarmi sem
sjónvarpskona.
„Virkilega hlý og einlæg á skján-
um. Kona sem er ekta mamma og
virðist gefa allt í það.“
„Heilbrigð sál í heilbrigðum lík-
ama, nær að samræma ferilinn og
móðurhlutverkið. “
„Hún virkar virkilega trúverðug
og sveitalega sæt.“
„Stelpa sem kemur á óvart, er
miklu meira en þú bjóst við.“
Kvenskörungur með meiru,
ekki nóg með að hún sé mennta-
málaráðherra og afburða vel gef-
in heldur er hún einnig fögur og
flott og alveg pottþétt fyrirmynd
margra kvenna í þjóðfélaginu,
bæði í fegurð og atorku.
„Hún er ekki að sýna allt sem
hún hefur, hún er mikill karakter
og virðist vera með alla hluti á
hreinu."
„Virkilega klár kona sem hefur
komið sér vel fyrir í lífinu, hún
sýnir konum ffamm á það að
pólitík er ekkert merkilegra en
hvert annað starf.“
„Hún er mjög glæsileg í alla
staði og virkileg góð fyrirmynd
með sterka nærveru."
dís er með þátt á sunnudagsmorgn-
um á Bylgjunni, sem dyggum hlust-
endum finnst gott að vakna við. Val-
dís er góð fyrirmynd kvenna því hún
fer algjörlega eigin leiðir og sýnir að
hún er sterkur karakter. Hún er ein-
staklega glæsileg kona með sígíldan
og flottan þokka.
' „Gerir kröfur til sjálfrar sín og
annarra, virkilega notaleg mann-
eskja með mikla útgeislun."
„Hún er ein af þeim sem fólk
annaðhvort elskar eða hatar og ekk-
ert þar á milli."
„Er mikill og stór persónuleiki en
virðist samt vera lokuð og aðeins til
baka. Annars glæsileg kona með
mikla útgeislun og fáguð í alla staði."
EDDA HEIÐRÚN BACKMAN
Leikkona með mikinn sjarma
og hefur gert mikið fyrir konur
sem líta upp til þessa sterka og
mikla karakters. Edda Heiðrún
hefur leikið í mörgum leikritum
og bíómyndum. Hún berst
hetjulega við erfiðan sjúkdóm
sem hún lætur þó ekki buga sig.
Hún er sú kona sem allir bera
virðingu fyrir, kónur sem karlar.
„Hún er æðruleysið uppmál-
að, hún hefur fundið eitthvað í
gegnum veikindi sín sem fáir
öðlast."
„Það er ekki annað hægt en
að heillast af henni á allan hátt,
hún er mikil leikkona sem og
persónuleiki."
„Hún er virkilega jákvæð og
það er eitthvað sem margir ættu
að taka sér til fyrirmyndar."
„Hugguleg kona með mikla
hæfileika og stórt hjarta."
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR
Er sú sjónvarpskona sem ber af
hvað varðar sjarma á skjánum. Hún
er ótrúlega ákveðin í spurningum
sínum til viðmælenda. Hún hefur
verið á skjánum síðustu ár og vaxið
mjög sem sjónvarpskona. Jóhanna
er alltaf elegant og heillandi, kona
sem margar konur vilja líkjast.
„Skellibjalla með frábæran húm-
or fyrir sjálfri sér og öðrum."
„Hún er mikill skörungur og
kjarnakona, það er virkilega gaman
að fylgjast með henni á skjánum því
hún kemur sér beint að efninu."
„Hún hefur eitthvað mikið við sig
sem fáir hafa, hún er heillandi og
alltaf srnart."
„Einnig hefur hún vissa ákveðni
sem gerir hana þokkafulla og sexí."
DV
Er sú kona sem hefur alveg
einstaklega sérstakan og mik-
inn sjarma sem skilar sér bæði í
gegnum söng og framkomu.
Hún er kona sem hefur tekið á
sínum málum og sýnir fram á
að það ert þú og enginn annar
sem stjómar lífi þínu.
„Gleðigjafí í alla staði, fynd-
in, hlý og heillandi. Ein mesta
* 6g stærsta óperusöngkona sem
við eigurn."
„Hún er virkilega jákvæð
persóna sem virðist hafa mikið
að gefa.“
„Hún er eitt stórt hjarta og
eitt stórt bros. Flott kona sem er
góð fyrirmynd."
Léikkonan Ilmur hefur verið mjög
áberandi uppá síðkastið í þáttunum
Stelpunum á Stöð 2. Þar fer hún í
ýmis hlutverk sem sýna fjöl-
breytileika hennar sem leikkonu.
Hlutverkin sem hún bregður sér í eru
misfögur en einhvern veginn er hún
alltaf flott og verðug fyrirmynd ungra
kvenna. Þrátt fyrir stuttan starfsferil
hefur hún náð að afreka margt.
„Virkilega skemmtileg og áhuga-
verður persónuleiki, er örugglega
alltaf með trúðslæti og brandara."
„Frábær leikkona sem getur farið
í öll hlutverk, á eftir að láta miklu
meira að sér kveða í framtíðinni."
„Mjög heillandi með mikla og
öðruvísi útgeislun. Einn besti nýlið-
inn í leikiistinni. Svona hnáta."
Forsetinn okkar fyrrverandi
sem allir dýrka og dá. Alltaf flott
og elegant, kona sem margar
konur vilja líkjast á hennar aldri.
Aldurinn virðist ekki vinna á
henni ffekar en nokkuð annað.
Hún hefur einstaklega þægilegt
viðmót sem skilar sér heim í stofu
til fólks í gegnum sjónvarpið.
„Hún er bara drottningin,
mikil fyrirmynd fyrir ailar konur
á öllum aldri."
„Hún er svo sterkur persónu-
leiki að þú finnur fyrir nærveru
hennar í gegnum sjónvarpið."
„Mikill ljúflingur sem snertir
alla á einhvern hátt. Falleg kona
og mjög hógvær sem er
hennar sterka hlið."