Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Síða 53
I
DV Helgarblað
u
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005 53
Nylon gerir Góða hluti
Stelpurnar í Nylon komu eins og
stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf
í fyrra. Þær voru með eigin sjónvarps-
þátt, gáfu út bók, prentuðu boli og
sendu frá sér geisladiskinn 100%
Nylon. Allt rokseldist. Nú í ár hafa
stelpumar ekki verið eins iðnar við
kolann hvað varðar framleiðslu á
varningi en hins vegar hafa þær vand-
að vel til verks á plötunni Góðir hlutir
sem kemur út fyrir jólin.
Söngelsk leikkona
Brynhildur Guðjónsdóttir gaf út
lögin úr sýningunni Edith Piaff í fyrra.
í ár kemur hún með splunkunýja
plötu sem kom út í vikunni. Bryn-
hiidur hefur sýnt það og sannað að
hún er úrvalssöngkona og er talað
um að það komi bersýnilega í
ljós á þessari plötu. Hún
nýtur líka dyggrar aðstoð-
ar á plötunni en Krummi
í Mínus syngur til að
mynda með henni lag-
ið „Baby it’s cold out-
Stjarna síðustu jóla snýr
aftur
Ragnheiður Gröndai seldi vel
yfir 10 þúsund eintök af plötu
sinni Vetrarljóð sem kom út í
fýrra. Þar söng hún öll lögin á ís-
lensku en nú hefur hún skipt yfir
í enska tungu á plötunni After
the rain. Ragnheiður samdi öll
lögin á plötunni sjálf en hlaut
hjálp góðra manna við út-
setningar á lögunum. Ragnheið-
ur á án efa eftir að moka sinni
nýjustu afurð út.
Á mörg þúsund aðdáendur
Aðalheiður Ólafsdóttir gerði garð-
inn fyrst frægan í Idol - Stjörnuleit í
fýrravetur er hún lenti í öðm sæti í
keppninni. Hún sendir frá sér plötu
sem hún hefur unnið í samvinnu við
Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Lögin i
á plötunni em bæði tökulög og M
ffumsamin. Tugþúsundir manna m
kusu Heiðu í Idolinu og eiga ef- fl
laust ijölmargir þeirra eftir að I
kaupa plötuna.
Stendur í stórræðum
Ylfa Lind Gylfadóttir sló í
gegn í Idol - Stjörnuleit í
fýrravetur. Hún stendur nú
sjálf í útgáfu á plötunni Petite
Cadeau og hefur því í nógu að
snúast. Platan kemur út í dag
og hefur því fólk tækifæri til
að skjótast út í búð og krækja
sér í eintak. Ylfa á ömgglega
eftir að njóta velgengni á
plötumarkaðnum þessi jól.
, /tt- - v. 'p ; u
mr / % , l tMJT', • : /
Hlustandi sem hringdi á FM 957 taldi sig hafa fréttir að færa
Hópurinn Hlustandi á FM
957 segir tvo keppend-
ur hafa komið
heim með
klamydlu.
Kafteinn Flygenring Segistekk■
ert vita um þessar kjaftasögur.
„Ég ætla ekkert að svara fyrir
þetta, þetta gæti alveg eins verið
kjaftasaga. Við gættúm þó ítmstu
varúðar og vomm með veijur í
hverri káetu," segir Valdimar Örn
Flygenring skipstjóri á Ástarfleyinu sem
er á dagskrá Sirkuss á fimmtudagskvöldum.
Hlustandi hringdi inn í þáttinn Zúúber á FM 957 í
gærmorgun og hélt því fram að tveir keppenda úr
þættinum hefðu komið í land smitaðir af ldamydíu.
„Þetta var hlustandi sem hringdi. Þetta var vinkona
einhvers stráks sem var í Ástarfleyinu og hún sagði
að hann og önnur stelpa hefðu komið heim með
kynsjúkdóm," segir Svali í Zúúber en leiddar hafa
verið að því líkur að um klamydíu sé að ræða.
Kafteinn Flygenring segist ekki geta svarað því
með vissu hvort einhver hafi fengið klamydíu eða
ekki. Hann hreinlega viti það ekki. Hann segir að
framleiðendur þáttarins hafi gert ráð fyrir því að
„einhver sammni” gæti átt sér stað. „Þetta var f
raun
eins
og
gróður-
hús ástar-
innar. Flottar
aðstæður og exó-
tískar,” segir Valdimar.
Hann segir að erfitt hafi verið að komast algerlega
hjá því að einhver klamydíusmitaður væri um
borð. „Þéssir krakkar bám það ekkert endilega með
sér að vera fjölþreifin. Ekki gátum við farið að setja
liðið í eitthvert test áður en við fómm af stað. Hins
vegar er það nú þannig að hver sem er getur svo s-
emfengið þetta.“
Hvort sem einhver hefur smitast af klamydíu
eður ei segir Valdimar að siglingin hafi verið frábær
í alla staði. Krakkarnir hafi hagað sér vel og farið
hóflega með áfengið sem var um borð í snekkjunni.
soli@dv.is
^STJÖRNUFRÉTTIR^ LÍFSSTÍIlí* ALVÖRU FÖLK