Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005
Siðast en ekki sístW
Sprækir spunameistarar
Á föstudag var loft lævi blandið
enda prófkjörsslagur í algleymingi.
Tveir frambjóðendur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins gátu þó öðrum
fremur glott í kampinn: Þeir Kjartan
Magnússon borgarfulltrúi og Bene-
dikt Geirsson starfsmaður ÍSÍ.
Sannast sagna hefur ekki farið
mikið fyrir þeim í prófkjörsslagnum
- nema síður sé. Vinur þeirra, for-
maður KR Guðjón Guðmundsson,
rrpKj hafði reyndar af veikum
LuJj mætti reynt að vekja á
þeim athygli með því að rita stuðn-
ingsyfirlýsingu þeim til handa á KR-
vefinn. En það skipti litlu enda fer
vart sála inn á KR-vefinn en eftir
slakt gengi iiðsins er félagsstarfið við
frostmark.
Þá er gott að eiga góðan spuna-
meistara. Sem kann að
leita ekki langt yfir
skammt. Og slá tvær flug-
ur í einu höggi. Koma sín-
um manni á framfæri og
gernýta ólesna grein
Guðjóns. Því var sem sagt
Tekið að það kynni að
orka tvímælis að KR væri
opinberlega að gera upp
á milli frambjóðenda.
Fjölmiðlar bitu á agnið og
allt í einu, á þessum mik-
ilvæga degi, voru nöfn
þeirra Kjartans og Guðjóns efst á
baugi í einni helstu frétt föstudags-
ins.
Kjartan og Benedikt Stálu
snilldarlega og óvæntsenunni á
mikilvægum degi i prófkjörsslag.
Hvað veist þú um
Kaupmannahöfn
1. Hver gerði Litlu
hafmeyjuna?
2. Hver gaf borginni
óperuhús á dögunum?
3. Hvað heitir gatan sem
skýrð er efti íslandi?
4. Hvað heitir kaffihúsið
sem fjölnismenn drukku á?
5. Hvað heitir höll Margrét-
ar drottningar í borginni?
Svör neðst á síðunni
Hvað seqir
mamma?
m
„Hun er
náttúru-
lega al-
veg frá-
bærog
hefur
alltaf
verið,"
segir
Katrín
G uðrún
Sigurð-
ardóttir, móðir Sigurlaugar Gísla-
dóttur, betur þekktrar sem Mr. Silla.
„Mér finnst hún bara geta allt enda
hefur hún það mottó að það sé
hægt að gera það sem maður vill.
Hún hefur alltafverið rosalega góð
og sjálfstæð með mikla þörftil að
rökræða hlutina enda þýðir ekkert
að segja nei við hana nema gefa á
því skýringar. Hún er mjög skynsöm
og ég er stolt afhenni."
Sigurlaug Gisladóttir er rísandi
stjarna i íslensku jaðarpoppi
undir nafninu Mr. Silla. Þess fyrir
utan stundar hún nám í Listahá-
skólanum.
Gunnarssyni, bæjarstjóri á Álftanesi, og
bæjarstjórninni að gefa sjötugum starfs-
mönnum bæjarins framlengingu á
starfsævinni.
l.Edvard Eriksen. 2. Maersk Moller. 3. Islandsbrygge.
^4. Hvids Vinstue. 5. Amalienborg.
SJtelkaðun rithöfjindur mætif
fornarljjmbum smip Hallgnmur
opnar a Sauðarkroki
„Nei, ég held ekki að þeir verði ánægðir
með bókina. Ég er einmitt skíthræddur um að
þeir verði mjög óánægðir með hana. Að sjálf-
sögðu," segir Hallgrímur Helgason rithöfund-
ur.
Jólabækurnar streyma úr prentsmiðjunum
og skáldin stilla sér upp. Oft að því er virðist
á aftökupalla. Rokland Hall
gríms kemur formlega út á
þriðjudaginn á Sauðár-
króki. Efnt verður til at-
hafnar í Fjölbrautaskóla
Norðurlands klukkan fjögur
þar sem sveitarstjóra Skaga-
fjarðar verður afhent eintak.
Og það kvöld kemur svo Hall-
grfmur fram á Kaffi Krók.
DV heyrir á þeim sem hafa
lesið að Hallgrímur sé á skot-
skónum. Og farið sé ómjúkum
höndum um viðfangsefnið. Sem er meðal
annars Krókurinn. Sagan íjallar um Böðvar
H. Steingrímsson, fyrrverandi kennara við
fjölbrautaskólann. Hann býr hjá móður sinni á
Króknum og bloggar reglulega um lífið í bæn-
um, þorpsbúum til nokkurrar hrellingar.
Böddi er of gáfaður fyrir Krókinn, of reiður fyr-
ir Reykjavík og of hreinskilinn fyrir ísland.
Aðspurður hvers vegna útgáfa bókarinnar
sé haldin hátíðleg á Sauðárkróki segir
Hallgrímur það einfaldlega vera vegna þess' að
sagan gerist á Sauðarkróki. „Krókurinn er
heimabær bókarinnar."
Hallgrímur þrætir ekki fyrir það að vera
skelkaður upp að vissu marki - að mæta við-
fangsefninu. „Já, en maður
verður að standa fyrir sínu.
1 Það þýðir ekkert að fara í fel-
ur. En þó bókin gerist á
Króknum, þá eru engar fyr-
irmyndir þaðan. Heldur er
þetta meira eins og leik-
mynd fyrir söguna. En, jú,
sagan mótast vitanlega af
því að hún gerist þarna."
Hall-
grímur segist
hafa komið
nokkrum sinnum
á Krókinn þegar
hann var að vinna
að bókinni. „Já,
skoða mig um, taka
myndir, afla heim-
ilda, tala við fólk. Svo
var ég sem strákur í
sveit í Skagafirði
þekki þetta því
vel.“
jakob@dv.is
Fjolbrautaskólinn
Söguhetjan varkenn-
ari þar, býr nú hjá
móður sinni og blogg-
ar reglulega bæjar-
búum til hrellingar.
Sauðárkrókur Þessi litli bær
er leikmynd í nýrri bók Hall-
grims. Rithöfundurinn er skit-
hræddur um að bæjarbúar
verði óánægðir með bókma.
Burt með kuldann er
dagskipun lægðarinnar
sem nú leikur lausum hala
suðvestur af landinu. (
Reykjavík verður nokkuð
ákvéðinn vindur af
suðaustri fram undir
hádegi en eftir það lægir.
Hitinn verður 3 til 8 stig.
7 44
Kaupmannahöfn 12
Ósló w
Stokkhólmur 13
Helsinki 10
London 14
Paris 14
Berlín 14
Frankfurt 13
Madrid 16
Barcelona 19
Alicante 21
Mílanó 18
New York 21
San Francisco 18
Orlando/Flórída 29