Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2005, Síða 12
72 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005
Fréttir DV
Selja íbúðir í
dvalarheimili
Magnús Reynir Guð-
mundsson, bæjarfultrúi á
ísafirði, mótmælir sölu
bæjarins á í íbúð sem bær-
inn á í dvalarheimilinu Hlíf.
„Er andvígur sölu íbúða á
Hlíf I og tel nauðsyniegt
fyrir Isafjarðarbæ að geta
boðið efnalitlu eldra fólki
leiguíbúðir þar á sann-
gjörnu verði," lét Magnús
bóka eftir sér þegar bæjar-
ráðið samþykkti rúmlega
sex milljóna króna kauptil-
boð í íbúðina. Tvær svipað-
ar íbúðir á Hlíf voru fyrir
þessi viðskipti í eigu einka-
aðila. Þessar íbúðir eru
tæpir 60 fermetrar.
Riðið í myrkri
Hestamenn riðu ekki
feitum hesti frá fundi um-
hverfis- og framkvæmda-
ráðs Húsavíkur sem fram
fór í fyrradag.
Hestamannafé-
lagið Grani hafði
lagt fram erindi
fyrir ráðið þess
efiiis að rið- og
gönguleið frá félgssvæðinu
í Traðagerði út að Bakka-
landi yrði lýst upp. Um-
hverfis- og framkvæmdaráð
komst að þeirri niðurstöðu
að ekki væri fært að verða
við óskinni á þessu stigi.
Hestamenn á Húsavík
þurfa því áfram að ríða í
myrkrinu.
Minni hagnað-
urAtorku
Hagnaður Atorku Group
á þriðja ársfjórðungi 2005
dróst saman um 70% á milli
ára samkvæmt uppgjöri fýr-
irtækisins sem birt var í gær.
Hagnaður á sama fjórðungi
síðasta árs nam 751 miUjón.
Veigamikill þáttur í afkomu
félagsins er söluhagnaður og
gangvirðisbreyting fjáreigna
sem er ýmist tilkomin vegna
hreyfinga á verðbréfasafni
félagsins eða breytinga á
gengi eigna félagsins. Þrátt
fyrir hagnaðarminnkun
segjast stjómendur fyrirtæk-
isins horfa björtum augum á
rekstur félagsins í nánustu
á Siglufíröi/ segir Ólafur
Jónsson sparisjóöss tjóri. ,Það
eru náttúruiega erfíöleikar í
Landsíminn
hérá
svæöinu. Sterkt gengi krón-
unnar trufíar fólk f fískvinnsl-
unni hérá Siglufírði. Ég vonast
til þess aö þaö ástand lagist.
Veöriö hefur veriö ágætt und-
anfarið, smá kuldakast en
annars erþaö ekkert tilþess
aö kvartayfír. LffíÖ I spari-
sjóðnum hérna gengurllka
mjög vel og viöskiptavinir
ánægöir.'
Eldri borgarar á Lindargötu í Reykjavík búa við mannsæmandi aðstæður, öfugt
við vistmenn á Sólvangi. í félagsmiðstöðinni getur gamla fólkið dundað sér við
handíð, leikfimi, bingó, félagsvist, boccia, glerskurð og margt fleira. Allir eldri
borgarar sem búa í nágrenninu eru velkomnir og félagslífið er í blóma.
Eldri borgarar sem búa í þjónustu-
íbúðum fyrir aldraða á lindargötu
em ánægðir með dvöl sfna þar, öfugt
við vistmenn á Sólvangi. Blaðamaður
DV fór í heimsókn þangað á dögun-
um og var góður andi meðal fólksins
sem þar býr. Hróbjartur Hróbjartsson
arkitekt hannaði húsaþyrpinguna
sem samanstendur af íbúðum og fé-
lagsmiðstöð. Alls eru byggingamar 17
þúsund fermetrar og fjöldi íbúða er
94.
Langur biðlisti
Að sögn forstöðumannsins, Eddu
Hjaltested, er langur- biðlisti til að
komast í þjónustuíbúð á Lindargöt-
unni, reyndar eins og víða annars
staðar. Allir íbúar hafa aðgang að
þeirri þjónustu sem félagsmiðstöðin
býður upp á auk þeirra eldri borgara
sem búa í næsta nágrenni. Öll að-
staða eldri borgara í félagsmiðstöð-
inni er til fyrirmyndar og mikið gert til
li/
Tölvuherbergi í aðalbyggingunni Ibúar
hafa netaögang. Vandamáliö er aö ekki eru
allir jafnklárir á tölvu.
að mæta óskum gamla fólksins.
Hugguleg setustofa er í anddyrinu
með fallegu útsýni yfir Esjuna,
Skarðsheiði og Akrafjall. Fyrir þá sem
vilja er aðstaða í tölvuherbergi til að
fara á netið en sumir eiga erfitt með
að nýta sér það sökum kunnáttuleys-
is á tölvur.
Matsalurinn opinn alla daga
ársins
Stór matsalur er á neðstu hæð
aðalbyggingarinnar og kemur fólk
úr hverfinu til að borða þar hádeg-
isverð. Alla daga ársins er eldaður
matur fyrir fólkið og á hátíðisdög-
um er veislumatur á boðstólum.
Þegar blaðamaður DV kom í heim-
sókn var kominn hádegismatur og
gestir og gangandi fylltu salinn. Þar
ríkti kátína og mikið skeggrætt um
stjórnmál og að sjálfsögðu málefni
aldraðra. Margir tjáðu blaðamanni
DV að þeir kviðu fyrir því að geta
ekki lengur séð um sig sjálfir og
jafnvel þurfa að fara á hjúkrunar-
heimili.
Fólk aðstoðað við að taka til
kvöldmat
Að sögn forstöðumannsins,
Eddu Hjaltested, er fólki boðið upp
á aðstoð á kvöldin við að taka til
kvöldmat. Sú þjónusta er ókeypis
og fer starfsmaður á milli þeirra
sem þess óska og hjálpar fólki við
að taka til lyfin sín og sumir þurfa
aðstoð til að hátta sig. örryggisrofi
er í öllum íbúðum og næturvörður
á vakt allan sólarhringinn.
Allir ættu að eiga kost á að búa við
þær aðstæður sem íbúar þjónustu-
íbúðanna á Lindargötu búa við. Því
miður er ekki svo farið á íslandi.
Skortur á íbúðum og þjónustu sem
þessari er mikill og sums staðar þarf
fólk að búa við aðstæður sem ekki eru
fólki samboðnar. í náinni framtíð
verður eftirspumin meiri, því eldri
borgurum landsins fjöigar með hveij-
um deginum sem h'ður.
jakobina@dv.is
Gamla fólkið hefur pað
gott á Lindargötu
Halldór Eggertsson er einn af íbúum í þjónustuíbúðum fyrir
aldraða. Hann er sáttur við að búa á Lindargötunni og segir að
það eina sem hann vanti sé góð kona til að tala við því hann
missti konuna sína ekki alls fyrir löngu. Hann er sáttur við sitt
hlutskipti að öðru leyti og það eina sem hann kvíðir fyrir er að
fara á hjúkrunarheimili.
Veski var stolið af ungri konu í Nóatúni í Hamraborg í gær
Hamraborgar-róninn á ferðinni
Starfsmenn Nóa-
túns Upplýstu mál-
iö meö hjálp örygg-
ismyndavéla.
„Það var ung kona með tvö böm
inni í versluninni og annar krakkinn
velti innkaupakörfunni þannig að
vörunnar runnu út um allt gólf. Þá
drífur að fólk og hjálpar henni að
tína vörumar upp í körfuna en þá
uppgötvar konan að veskið hennar
er horfið," segir Agnes Jónsdóttir,
verslunarstjóri Nóatúns í Hamra-
borg í Kópavogi. Uppi varð fótur og
fit í versluninni og viðskiptavinir og
starfsmenn lögðust á eitt við að upp-
lýsa málið.
„Við kölluðum út öryggisdeildina
okkar sem skoðaði myndir úr eftir-
litskerfinu og þá sést að vel kunnur
ógæfumaður var staddur í verslun-
inni þegar atvikið átti sér stað og
hann hafði stolið veskinu," segir
Agnes en maðurinn sem um ræðir
gengur undir nafninu Hamraborg-
ar-róninn. „Eiga ekki öll hverfi sinn
lókal-róna," segir Agnes.
Lögreglan fór heim til mannsins
og fann veskið í fórum hans þannig
að málið telst upplýst.
„Við ákváðum samt að bæta kon-
unni þetta upp með því að gefa
henni vömmar sem hún ætlaði að
kaupa af okkur. Auðvitað gemm við
allt fyrir okkar kúnna þegar svona
gerist."
svavar@idv.is
Nóatún í Hamraborg í
Kópavogi Hamraborgar
róninn á ekki afturkvæmt
þangað á næstunni.