Símablaðið - 01.01.1959, Qupperneq 15
Kristinn Eyjólfsson
Kristinn fæddist að Sölvholti í
Hraungerðishreppi hinn 13. júní
1895. Voru foreldrar hans Eyjólfur
Kristjánsson og Margrét Magnús-
dóttir. Ólst hann upp í Sölvholti með
móður sinni og átti þar heima, þar
til er hann fluttist til Reykjavíkur
árið 1920.
Sumarið og haustið 1922 vann
Kristinn við símalagningu úti á landi,
en 1925 hóf hann starf sitt við bæj-
arsímann í Reykjavík, og var skip-
aður þar línumaður 1941. Hjá bæjar-
símanum starfaði Kristinn síðan til
dauðadags.
Kristinn tók mikinn og virkan þátt
í félagsmálum símamanna. Þegar Fé-
lag símlagningamanna var stofnað,
varð Kristinn varaformaður þess og
síðar formaður. Fyrstu hagsmuna-
kröfur sínar knúði það félag fram
með verkfalli, og reyndist stjórn þess
þá starfi sínu fyllilega vaxinn. Þegar
Kristinn varð fastur starfsmaður hjá
bæjarsímanum, gerðist hann meðlim-
ur í Félagi ísl. símamanna, og átti
síðan sæti í stjórn þess um skeið og
var auk þess oft kjörinn fulltrúi á
landsfundi þess.
Eitt hið bezta einkenni Kristins
var glaðværðin, er ávallt fylgdi hon-
um, og er óhætt að segja, að hann
hafi notið vinsælda allra, er honum
kynntust. Skyldurækinn var Krist-
inn í bezta lagi og lagtækur við öll
sín störf.
Síðustu árin voru Kristni mjög
þungbær, vegna sjúkdómsstríðs, er
hann varð að heyja til hins síðasta.
Eftirlifandi konu sinni, Katrínu
Guðnadóttur frá Ásakoti í Hraun-
gerðishreppi, kvæntist Kristinn 1920.
Varð þeim þriggja barna auðið, er
öll komust á legg. Einkasonur þeirra,
Hörður, lézt snögglega haustið 1955.
Dætur tvær, Margré.t og Sjöfn, eru
báðar giftar hér í bæ.
Hann lézt í Landsspítalanum 4.
febrúar s.l.
Samúðarkveðjur eru hér með flutt-
ar ekkju hans og dætrum.
Gamall félagi.
SÍMAB LAÐIÐ