Símablaðið - 01.01.1959, Blaðsíða 31
Skákmeistaramót símamanna
er nýafstaðið. stóð það yfir
dagana frá 20. jan. til 24. febr.
Mótið fór fram í samkomusal
F.l.S. í Landssímahúsinu. Teflt
var þriðjudaga og fimmtu-
daga, og hófust skákirnar kl.
hálf níu á kvöldin. Mótið var
haldið á vegum Skák- og tafl-
félags simamanna, en formað-
ur félagsins er Jón Skagfjörð.
Þetta var fyrsta reglulega
skákmót, sem símamenn hafa
haldið, áður hafa aðeins farið
fram hraðskákmót. Skráðir
þátttakendur í þessu móti voru
24. Keppnisfyrirkomulag var
þannig að liinum 24 keppend-
um var skipt niður i fjóra sex
manna riðla. Siðan fór fram
keppni innan riðlanna, og
komust þrír efstu menn úr
hvorum riðli upp í 1. flokk, en
hinir þrír fóru í 2. fl. — Síðan
fór fram keppni í 1. og 2. fl.
Efsti maður i fyrsta flokki
hlaut titilinn skákmeistari
símamanna 1959, en tveir
neðstu menn fluttust niður i
2. flokk. Tveir efstu menn i 2.
fl. fluttust upp í 1. flokk.
Ef menn eru jafnir að vinn-
Fjöltefli milli síma-
manna og Hreyfilsmanna
1959.
ingum, þá segir stigaútreikn-
ingur, hvoy hærri er.
Tveir keppendur hættu þátt-
töku, er undanrásum var lokið.
Aðrir tveir hættu þátttöku eft-
ir að aðalkeppni var hafin, og
er skráður 0 vinningur hjá
þeim samkvæmt skákreglum.
Fyrsti skákmeistari Símans
Jón Ágústsson á sér langan
skákferil að baki, hann hefur
teflt bæði í meistaraflokki
Reykjavíkur og Hafnarfjarð-
ar. Hann var skákmeistari
Hafnarfjarðar 1946—7. Jón cr
vel að sigrinum kominn. 1
öðrum flokki var nokkuð tví-
sýn barátta um efstu sætin, og
fóru leikar þannig að lokum að
Þorsteinn og Vilhjálmur unnu
sig upp í 1. flokk, jafnir að
vinningum en Þorsteinn hærri
að stigum. — Að lokum birtum
við hér úrslitaskákina úr 1.
flokki, milli Jóns Ágústssonar
og Guðmundar Þorlákssonar,
en á þessari skák valt livor
þeirra yrði skákmeistari Sim-
ans. Guðmundi nægði jafntefli
en Jón varð að vinna.
Slcýringar við skákina eru
eftir Guðm. Þorláksson.
Þ. Ó.
Drottningarbyrjun.
Hvítt: Jón Ágústsson.
Svart: Guðm. Þorláksson.
1. d4 d5
2. c4 e6
3. Rf3 Rf6
4. Rc3 Be7
5. e3 0-0
6. Be2 c6