Símablaðið - 01.01.1959, Page 23
Magnúsar Jochumssonar og Egils Sandholt. Þetta voru
allt góðir leiðbeinendur ungum manni. Og eitt var merki-
legt, aldurs og þekkingarmunurinn gleymdist í návist
þeirra. Það munu vera einkenni hins þroskaða manns, í
samskiptum við aðra. Þetta eru aðeins leiftur minninga,
frá fyrstu kynnum við þá, er settu svip á þessa starfs-
stétt, á þessum tíma. En þær minningar hljóta að hafa
verið góðar, því þær eru svo ljósar enn. Það er lögmál
lífsins, að hið erfiða og leiða fyrnist og gleymist, en það
ljúfa og bjarta geymist
Það er, sem betur fer, oft gaman að lifa á líðandi stund,
en það getur líka verið skemmtilegt að lifa upp atburði
liðna tímans, og virða þá fyrir sér í skini fjarlægðar-
innar. Þá fæst líka oft réttara mat á lífinu heldur en
yfirstandandi tími veitir. Þegar ég nú minnist samstarfs
við póstmenn, hvort sem það hefur verið í Reykjavík,
eða annars staðar, er mér þakklæti í huga, fyrir góða
samvinnu, og fyrstu áhrifin móta sterkt. Þessi stutta grein
átti að vera árnaðaróskir til Póstmannafélags Íslands og
póstmanna yfirleitt í sambandi við þessi tímamót. Þær
óskir fela í sér vonir mínar um, að félagið standi ætíð
vörð um heill og hag stéttarinnar, þótt dreifð sé hún
um okkar fámenna, en víðáttu-mikla land og að það
megi verða traust undirstaða til velgengni stofnunarinn-
ar sjálfrar og þjóðarinnar í heild.
Karl Helgason.
Núverandi stjórn Póstmanna-
félagsins. Frá vinstri: Fremri
röð: Tryggvi Haraldsson for-
maður, Dýrmundur Ólafsson
ritari. — Aftari röð: Sigurjón
Björnsson gjaldkeri, Sigurður
Ingason varaformaður og Lúð-
vík Jónsson aðstoðar-gjaldkeri.
Póstmannafélag
islands 40 ára
Póstmannafélagið minntist
40 ára afmælis síns, laugardag-
inn 21. marz s.l., það er stofn-
að 26. marz 1919, og var fyrsti
formaður þess Þorleifur Jóns-
son póstmeistari.
Á árunum 1932—1944 að
einu ári undanskildu (1936),
gaf félagið út blað, er það
nefndi Póstmannablaðið. Árið
1947 stofnuðu póstmenn bygg-
ingarsamvinnufélag, og' munu
margir af starfsmönnum pósts-
ins hafa notið góðs þar af við
að komast í eigið húsnæði.
Eins og önnur félög starfs-
manna hins opinbera, hefur
Póstmannafélagið háð sleitu-
lausa baráttu fyrir bættum
kjörum félaga sinna, og hefur
það náð miklum og góðum
ánangri i þeirri baráttu.
Núverandi formaður er
Tryggvi Haraldsson.
F. í. S. óskar Póstmannafé-
laginu allra heilla í tilefni af
þessum merka áfanga í sögu
ffélagsins.
BÍMABLAÐIÐ 15