Símablaðið - 01.01.1959, Qupperneq 24
ci þttu, /„„> UNGA FÖLKIÐ
RITSTJÓRN: NDKKRIR UNGIR SÍMAMENN
SAIVIKEPPIMI
SÍIVIABLAÐSIIMS
Síðan F.Í.S. fékk til umráða
húsrými á VI. hæð í Lands-
símahúsinu í Reykjavík hefur
félagslífið aukizt til muna og
má í þvi sambandi nefna skák
og spilakvöld (sjá annars stað-
ar i blaðinu). Þátturinn á lin-
unni vill nú auka fjölbreytnina
í þessum efnum, með þvi að
efna til ljósmyndasamkeppni
fyrir alla ljósmyndara innan
símamannastéttarinnar. Vitað
er, að mikill fjöldi símamanna
stundar ljósmyndatöku í frí-
stundum sinum, og hafa marg-
ir þeirra náð mjög athyglis-
verðum árangri, svo ekki sé
meira sagt.
Veitt verða þrenn verðlaun,
•allt vandaðar bækur á sviði
ljósmyndatækni. 3ja manna
dómnefnd mun dæma mynd-
irnar. í ráði er að myndirnar
verði að loknum skilafresti til
sýnis í stærstu kaffistofum
stofnunarinnar, og að sjálf-
sögðu áskilur Símablaðið sér
rétt til birtingar á myndunum
í blaðinu. Simablaðið mun og
koma á framfæri myndum, þar
sem möguleikar eru á mjög
myndarlegri þóknun.
Þátttökureglur eru þessar:
A - Efni myndarinnar er al-
gjörlega frjálst.
B - Myndirnar skulu vera
svart/hvítar.
/----------------N
ViitaUkilií
V_______________/
Hér fer á eftir viðtal við
Kristján Helgason símafræðing,
en hann stundaði nám sitt í Nor-
egi. Þátturinn „Á línunni“ sneri
sér til Kristjáns með nokkrar
spurningar um skólann og
skólalífið í Noregi.
— Hvenær fórstu út, Kristj-
án?
— Ég fór upp úr miðjum maí
1956 og komst þá inn á undir-
búningsnámskeið fyrir inntöku-
próf.
— Hvernig er þeim nám-
skeiðum hagað?
— Þessi námskeið eru tvenns konar, annað stendur
yfir í 6 mánuði, og er það ætlað fyrir þá, sem ekki hafa
gagnfræðapróf eða langt er liðið frá því það hefur ver-
ið tekið. Hitt er 3ja mánaða námskeið, og er ætlað þeim,
sem hafa lokið gagnfræðaprófi innan ákveðins tíma, eða
hafa góða undirbúningsmenntun.
— Já, þú hefur staðizt prófið og komizt í skólann?
— Eftir prófið fór ég heim, og fékk síðar tilkynningu
um, að ég hefði staðizt prófið, og væri tekinn sem nem-
andi við „Oslo tekniske skole“.
— Þú hefur auðvitað orðið hinn ánægðasti, — og hve-
nær byrjaði skólinn?
— Þetta kom mér nú að nokkru leyti á óvart, og hafði
ég ekki undirbúið mig, svo sem með útvegun á húsnæði
o. fl. Sneri ég mér þá til Einars Pálssonar skrifstofustjóra,